Uppeldi og menntun - 01.01.2011, Page 68
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (1) 201168
HÖnnUn og SmÍÐi
eru vart merkjanlegir og sjást því ekki á súluritinu. Áherslan á hina þættina er ólík
milli tímabila en sýnir þó megináherslu á menntun, sem eykst verulega á tímabilinu
1997–1999. Áherslan á uppeldisgildin minnkaði umtalsvert á síðasta tímabilinu.
Undirbúningur fyrir frekara nám og starf er enn mikilvægur.
Flokkunin vekur margar spurningar og frekari athugun bíður ítarlegrar könnunar.
Þessi athugun gefur þó til kynna að hin upprunalegu uppeldislegu gildi slöjdsins séu
enn í fullu gildi en trúlega ekki eins áberandi og áður. Þetta gæti stafað af áherslunni á
tæknimennt sem kom fram í námskránni 1999 og breyttum þjóðfélagsaðstæðum sem
hafa kallað á aðrar áherslur í menntun.
niðUrlag
Undir lok 19. aldar, þegar fyrst var farið að kenna smíði á Íslandi sem skyldunáms-
grein, byggðist greinin á almennum uppeldislegum gildum slöjdstefnunnar. Mark-
miðið var að þroska einstaklinginn og gera hann að betri þegn með verklegri fram-
kvæmd í skólastarfi. Áherslan var á skólamiðuð viðfangsefni, ekki á gerð hluta sem
tengdust heimilinu eða öflun tekna (Jón Þórarinsson, 1891).
Þó að uppeldismiðuð smíði hafi tekið miklum breytingum í tímans rás eru upp-
runaleg gildi slöjdsins ennþá grundvöllur námsgreinarinnar og birtast í aðalnámskrá
grunnskóla fyrir hönnun og smíði. Hinn hugmyndafræðilegi bakgrunnur er sem fyrr
áhersla á þroska einstaklingsins og hagnýtingu handverks í almennu skólastarfi sem
tæki í þjónustu uppeldisins. Inn í námsgreinina í dag fléttast þó tæknimenntaþættir
og rík áhersla er á hugmyndavinnu sem birtist í áherslunni á nýsköpun og hönnun.
Skilin á milli tæknimenntar og uppeldismiðaðrar smíði eru ekki alltaf greinileg.
Hægt er að stefna að mikilvægum uppeldislegum markmiðum í tæknimenntakennslu
á sama hátt og í uppeldismiðaðri smíði. Á mynd 9 birtist tilraun höfunda til að draga
fram hugmyndafræðileg einkenni námsgreinarinnar smíði í dag, sem eru bæði lituð af
upprunalegum gildum slöjdsins og nútíma tæknimenntaáherslum. Með slöjd var lögð
áhersla á einstaklinginn og þroska hans en tæknimennt byggist á samfélagslegum
þörfum og lausn samfélagslegra vandamála (Kananoja, 1991). Markmið slöjdsins var
að mennta og þroska nemandann sem hinn góða borgara með hefðbundnu handverki
(Moreno Herrera, 1999). Í líkaninu sem sýnt er á mynd 9 á nemandinn nú að búa yfir
tæknilæsi sem gefur honum skilning á nútímalegu umhverfi sínu og gerir honum
kleift að taka virkan þátt í að móta samfélag sitt. Með því að flétta þessi sjónarmið
saman hafa fortíð og nútíð greinarinnar sameinast í áhugaverðu uppeldislíkani.