Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Side 137

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Side 137
AUÐLEGÐ ÍSLENZKRA ÖRNEFNA 103 þar sem Baldur hvíti bjó. Breiða' blik þýðir ljósheimur víðáttumikill, og minnir útsýnin í Baldursheimi á þess háttar stöðvar. Þar sést langt inn á öræfi, yfir Mývatnssveit og Bláfjall og Seljalandsfjall blasa við í blárri móðu þeirra öræfa, sem jafnan eru undir andgufu og þáma- slikju jarðyls og hverastöðva. Sá brjóstylur er gamall og þó síung- ur. Hinsvegar leggur gufur upp úr Mývatni, svo að stafar stundum á loftið og skýin, þegar sólin leggur til sína blessun og tíbráin sína. Allar þessar lögmálsgreinir hafa verið til staöar forðum daga, þeg- ar Baldursheimur var í laugartrogi landnámstíðai'. Norræn snild hefir seilst langt og þó ekki um hurð til lokunnar. Ganr an er og lærdómsríkt að bera sam- an danska skírn og íslenzka á sama náttúrusmíði, gnæfandi jök- ulhæð grænlenzkri. Danir kalla þann háturn Sykurtopp, en íslend- ingar nefndu hann Hvítserk. ís- lenzkt eyra og íslenzk bragðnæmi finnur fegurðarmuninn á þessu. Mundi nokkur fagurfræði velja nafn jökulvarðanum, sem tekur fram Hvítserksheitinu. Sama snild- in leggur lófa sinn yfir strand- lengju Vínlands, þar sem Furðu- strendur eru skírðar. Þeir menn, sem þessi nöfn yöldu, voru leik- menn, ekki rithöfundar. — Eiríkur rauði var fyrst og fremst vígamað- ur. En þó átti hann þá djúpsæi til að bera að sjá það, að mikla þýðingu hafði að landið héti fögr,u nafni, það sem hann fann og nam. Svo segja fróðir menn, að okkar land, nafn þess, andi kulda á alla, sem heyra það nefnt og eru ókunnir landsháttum. Eiríkur rauði sá lengra en nef hans náði. Stórhuga farmenn eru innan brjósts, meiri fyrir sér en almenn- ingur eða sá meðalmaður, sem heima situr á jafnsléttunni. Það höldum vér að minsta kosti. Oklt- ur grunar að þeir stórliuga menn, sem sáu og skírðu Hvítserk og Furðustrendur, hafi verið afburða- menn. En reyndar kemur sama snildin í Ijós á láglendinu, þar sem nöfnin eru sett á grasrótina. Möðru- vellir og Blómsturvellir sóma sér vel og bera þau nöfn vott um grasafræðilega aðdáun. Þess er getið í fornum fræðum, að kona nokkur færði bygð sína á land- námsöld, af því að henni þótti ekki nógur ilinur úr jörðinni, þ. e. a. s. grasinu, þar sem liún bygði fyrst. Sú fornkona hefir verið þokkakvendi. Og af henni leggur angan meiri og betri eftir þúsund ár, en þeim sem ýra á sig ilmvatni úr búðum, og vii eg þó ekki lasta þá vöru. Möðru- vellir eru þó nokkrir á landi voru, Möðrufell og Möðrudalur. Þessi jurt hefir aldrei fylt fjóshlöðurnar, og þó var hún svona mikils metin fyrrum, að stórbýli voru við hana kend. Örnefnin, er fornsögurnar geyma, hafa orðið til áður en ritlistin hefst. Ef svo er, sem varla verður véfengt, er það sannað, að orðlistin hefir verið almenningseign, bæði þeirra, sem voru á förum milli landa, og hinna, er heima sátn. Nöfnin Al- viðra og Svalvogar t. d., hljóta að skapast við reynslu þeirra, sem þar bjuggu; sömuleiðis nöfn eins og Vindheimar, Hyassafell, Vlndfell. Eg drep á þetta vegna þess, að sú skoðun er til, að sagnastíllinn forni hafi verið mál höfðingja eða aðals- manna vorra. Þeir menn, sem halda fram þeirri skoðun, segja, að al- múginn muni hafa talað ógöfgara mál og fáskrúðugra. Þessi kenn- ing er af útlendu bergi brotin og styðst við bláberar getgátur, og þær bollaleggingar, að óhugsandi sé. eöa því sem næst, að alþýða manna hafi verið svo þrosfeuð, sem mál- snildin í samtölunum vottar. Það kann að þykja furðulegt, og er í sannleika undarlegt, að griðkonan í Kórmáks sögu t. d. skuli skilji vísur Kórmáks jafnskjótt sem hann kveð- ur þær til Steingerðar. Þær eru þó dult kveðnar og fullþungar fræði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.