Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Page 141

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1930, Page 141
Ellefta affs|íiinigf f>j©ÖE5^K.ms£él&gg§isfcS. Fundargerð. Ellefa ársþing Þjóðræknisfélags Islend- inga í Vesturheimi var sett af forseta, séra Jónasi A. Sigurðssyni, miðvikudag- inn 26. febrúar 1930, í samkomuhúsi ís- lenzkra Góðtemplara í Winnipeg. Hófst þingið með þvi að sunginn var sálmur- inn nr. 293 (Lærdómstími æfin er). Að því búnu flutti forseti þinginu ávarp sitt: Háttvirtu Þingmenn! Hið merkilega ár í sögu Islendinga, 1930, er þegar tveggja mánaða. Og vér, vestur-íslenzkir þjóðræknismenn, erum hér staddir til að há hið 11. ársþing Þjóðræknisfélags Islendinga í Vestur- heimi. Eru allir þingmenn, þinggestir, vinir félagsins og íslenzkrar menningar, boðnir velkomnir. Þing þjóðræknismanna eru venjulega ein helzta hátíðin i félagslífi vestur fluttra Islendinga. Er það efa- laust ósk vor allra, að þetta þing verði í því efni engin undantekning. Ber oss að gæta þess, jafnvel venju fremur, að hafa á þessu þingi fullkomið taumhald á því miðflótta-afli, er einatt auðkennir félags- samvinnu Islendinga. Engan vegin verða þessi ávarpsorð míu fullnaðar greinargerð um stefnu né starf félagsins. Veit eg vel að á mér sannast, að hið góða sem eg vil geri eg ekki, en hið gagnstæða, sem eg ekki vil, geri eg einatt. En við það er skylt að kannast. að þorri þeirra manna, sem eg hefi nú um áratug einkum unnið með I þjóð- ræknismálum, hafa reynst mér umburðar- lyndir og sanngjarnir. Mér hefir fundist þeir skilja það öðrum fremur, að allur minn metnaður er í því fólginn að þjóna, meðan eg get, íslenzkum almenningi. A hinu ytra sviði í félagsstarfinu verð- ur tæplega bent á árið umliðna sem at- hafna ár. Með sanni má einnig á það benda, að kostir hins íslenzka þjóðlífs eru örsjaldan á hinu ytra sviði lífsins, heldur fólgnir í kyrlátum þroska og skiln- 'ngi hið innra, og þá í viðnámi gegn hættum og eyðing. En til þess sem á- brestur hvað árið snertir eru margar og óhjákvæmilegar orstakir er liggja í aug- um uppi. Styrr miklum hefir verið að oss steðjað sem kunnugt er. Það slys henti oss Vestur-Islendinga að eigingjörn ó- friðaröfl herleiddu heimferðarmálið. En það mál tókum vér á dagskrá samkvæmt fyrirspurnum og bendingum frá Islend- ingum hér vestra, er, meðal annars, komu opinberlega fram á einu ársþingi félags- ins. Þá hvatti og Alþingisnefnd íslands með bréfi til forseta, félag vort til athafna í því máli. Og samkvæmt eðli málsins og anda þessa félags fanst oss, í full- komnu grannleysi, málið vort mál. Þjóð- ræknisfélagið taldi það ástfóstur iðju sinnar. Sú víðsýni félags vors, að velja utanfélags menn í Heimferðarnefndina, stoðaði heldur ekki. En af því flaut, að svipað og hernaðar andinn hertók nálega alt starf þjóðanna fyrir fimtán árum síðan, lagði undir sig og lógaði flestu friðsamlegu starfi meðan á þeirri ægilegu orrahríð stóð, þannig reyndist Þjóðræknisfélaginu örðugt að sinna til muna öðru starfi en því, sem beinlínis var vikið að, og meðan mein- bugir heimferðar-deilunnar voru i al- gleymingi. I þeim frændvígum öllum hefir andúðin gegn Þjóðræknisfélaginu og þeim mönnum, er mest hafa að .málum þess unnið, verið “eitrið í kaleiknum”, eins og Stephán G. Stephánsson kvað forðum. En í líking við þær þjóðir er nú gangast fyrir útlegð ófriðarins, eða i hið minsta takmörkun vígvéla og hermensku, og nú sitja á rökstólum i Lundúnum, höfum vé- þjóðræknismenn alvarlega leitast við að gera árið friðar ár. Vér höfum gengið fram hjá svigurmælum, kerskni og hnjóði er að oss hefir steðjað. Með þessu er alls eigi kvartað undan þeim skerf er mér var greiddur úr þeirri átt á árinu. En að öllu athuguðu hygg eg að aðferðin verði notadrýgst er stundir líða, að auð- sýna umburðarlyndi samfara þreki gegn æsing og deilum, þótt vitanlega verði ein-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.