Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1938, Blaðsíða 31
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGIÐ 20 ÁRA
7
stæðisþrá einstaklinganna varð
naumast líft við að búa.
Fundur var boðaður að heimili
Árna Eggertsonar 10. jan. 1917, til
þess að ræða um stofnun íslenzks
Þjóðræknisfélags í Winnipeg. —
Fundurinn var ekki alment auglýst-
ur svo þeir komu aðeins sem fundar-
boðið fengu. Fundarstjóri var kos-
inn Árni Eggertson og skrifari Frið-
rik Sveinsson. Skýrði fundarstjóri
tilefni fundarins. Til máls tóku
Jón J. Bíldfell, séra Runólfur Mar-
teinsson, séra Björn B. Jónsson, Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson, séra Friðrik
J. Bergmann, Jóhannes Sigurðsson
og fl. Allir voru ræðumenn því
nieðmæltir, að stofnað yrði íslend-
ingafélag, er gæfi út tímarit málum
sínum til stuðnings. Kosin var 15
nianna nefnd til að undirbúa al-
niennan fund (Hkr. 18. jan. 1917),
en fundur sá var aldrei boðaður, og
féll svo málið niður að því sinni.
Leið svo hátt á annað ár að ekkert
var gjört. En þá var fundur boðað-
Ur í samkomuhúsi Skjaldborgar
safnaðar 80. sept. 1918, fyrir for-
Sóngu Sigurbjörns Sigurjónssonar
Prentara, Thórðar gullsmiðs Jóns-
sonar, Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar
°g einhverra fleiri er ekki eru nafn-
greindir í fundarboðinu, (Voröld, 24.
®®PL 1918). Fundurinn var fámenn-
Ur og hafði ekki verið vel auglýstur.
Lrá gjörðum fundarins skýrir fund-
arskrifarinn á þessa leið: :
‘Fundur kallaður til að ræða um
stofnun Þjóðræknisfélags, haldinn í
samkomuhúsinu Skjaldborg, 30.
SePt. 1918.
Forseti fundarins kosinn Rev. R.
Marteinsson.
Skrifari fundarins kosinn S. D. B.
Stephansson.
Forseti bað þá er boðað hefðu
fundinn að taka til máls, og gefa við-
stöddum hugmynd um hvað fyrir
þeim vakti.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson, skýrði
frá að hann væri einn af þeim er
kallað hefðu fundinn. Taldi ástæð-
una þá að nú virtist vera kominn
tími til að mynda hér íslenzkt Þjóð-
ræknisfélag, — sem nokkrum sinn-
um hefði verið talað um hér í bæ.
Væri slík félagshugmynd nauðsyn-
leg af mörgum ástæðum, meðal ann-
ars gæti slíkt félag átt byggingu,
þar æfinlega mætti taka á móti ís-
lenzkum gestum er í bæinn kæmu.—
hafa bókasafn, listasafn, fundarsaM,
o. s. frv. Gat þess að allareiðu stæði
til boða frá einum velunnara þess-
arar 'hreyfingar aMáMtlegt bókasafn.
TiMaga, Sig. Vilhjálmssonar, Sig.
Júl. Jóhannessonar, að kosin sé 9
manna nefnd til að hrinda máMnu
áfram.
Sigurbj. Sigurjónsson gat þess að
fyrir 2 árum hefði verið haldinn
fundur í húsi Árna Eggertsonar, til
að ræða einmitt um sama mál. 9
manna nefnd hefði þá verið kosin til
að hafa framkvæmdir, og á þeim
eina fundi sem nefndin hafði haldið
síðan, hefði henni komið saman um
að hreyfa ekki við máMnu meðan
stríðið stæði yfir.
Helgi Sigurðsson taldi enga á-
stæðu að bíða með myrfdun félags-
ins vegna stríðsins.
Eiríkur Þorbergsson var eindreg-
ið með uppástungunni.
Mrs. G. J. Goodmundson vildi láta
stofna félagið strax. Lagði til að
15 manna nefnd væri kosin til að