Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1938, Blaðsíða 171
NÍTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
147
Skýrsla Yngri Islendinga
Að gefa nokkra skýrslu um félags-
myndun hinna Yngri Islendinga hér í Win-
nipeg er nokkuð sem eg ætla mér ekki að
gera. Það er eitt af þeim málum, sem
eg álít, að þess minna sem um þau er tal-
að, þess betra.
Mér virðist alveg óþarfi, að rifja hér
upp erfiðleika þá er komið hafa fram við
myndun þessa félags, og sem er orsök
þess, að félagið er ekki komið lengra en
það er, en hefði annars getað verið starf-
andi í fullum blóma að áhugamálum þeim,
er legið hafa fyrir og fyrir félaginu vaka.
Á árinu hefir nefndin haft ellefu fundi
með sér, og þar að auk þrjá opinbera. Á
þessum opnu fundum var reynt að fá
samþyíktar tiilögur nefndarinnar viðvikj-
andi formlegri myndun félagsins, lögum,
nafni o. s. frv. En það varð ekki fyr
en s. 1. mánudag (21. febr.), er síðasti
fundur var haldinn, að þetta tókst.
Á þessum fundi var kosin stjómarnefnd
fyrir næsta ár, og hlutu þessir kosningu:
Edvald Olson, forseti
E>r. Lárus Sigursson, vara-forseti
Tryggvi Olesron, skrifari
Miss Margrét Pétursson, féhirðir
Mrs. Laura Sigurðsson
Stefán Hansson
Thomas Finnbogason
Winnipeg 23. febr. 1938.
B. Edvald Olson,
forseti nefndarinnar
A. P. Jóhannsson og Ari Magnússon að
skýrslan sé viðtekin. Samþ. Th. Thor-
finnsson og Á. P. Jóhannsson að þessi
deild sé boðin hjantanlega velkomin í
Þjóðræknisfélagið. Var tillagan samþykt
með þvi að þingheimur reis á fætur með
lófaklappi. B. E. Oison, forseti hinnar
n«u deildar bauð, að ef einhverjar bygð-
*r eða deildir æsktu eftir því að menn frá
Pessum nýstofnaða félagsskap heimsæktu
P®r í von um ag stofna fleiri slikar
óeiidir, þá væri það velkomið, Th. Thor-
mnsson og séra Jakob Jónsson æsktu
6;ftir aðstoð í sínum bygðarlögum frá
meðlimum þessarar nýju deildar.
ÁJit útgáfunefndar lagt fram og lesiö
** ^rs. b. E. Johnson:
Alit útgáfumálanefndar
Nefndin leggur til að eftirfarandi tillög-
ur séu samþyktar:
1. trtgáfu Tímarits Þjóðræknisfélags-
ins verði haldið áfram með svipuðu sniði
og verið hefir og stjórnamefndinni sé fal-
ið að annast um útgáfu þess.
2. Nefndin álítur útgáfu barnablaðsins
“Baldursbrá” eitt þarfasta fyrirtæki og
nauðsynlegasta sem félagið hefir með
höndum, svo framarlega að Islendingar
sýni því þá rækt sem það á skilið. —
Nefndin leggur til að útgáfu blaðsins sé
haldið áfram svo framarlega að stjómar-
nefndin sjái sér það fært.
3. Nefndin leggur ennfremur til að þar
sem deildir eru starfandi að þær taki að
sér sölu og útbreiðslu blaðsins í þeim
bygðarlögum.
Á þingi 22. febrúar 1938.
S. W. Melsted
Á. P. Jóhannsson
Kristín Johnson
Ari Magnússon og S. Vilhjálmsson að
álitið sé tekið fyrir lið fyrir lið. Samþ.
Pyrsti liður samþ. óbreyttur. Annar
liður samþ. eins og lesin. 1 sambandi við
þenna lið tóku til máls Á. P. Jóhannsson
og séra Rúnólfur Marteinsson ,er báðir
mintust á nauðsyn þessa fyrirtækis og
hvöttu þingheim að útbreiða blaðið Bald-
ursbrá. Einnig töluðu í sömu átt, Ari
Magnússon, Sigurður Baldvinsson, séra
Guðm. Ámason, séra Egill Fáfnis og Th.
Thorfinnsson. Þriðji liður samþ. óbreytt-
ur. Á. P. Jóhannsson og Árni Eggertsson
að nefndarálitið sé samþ. í heild eins og
lesið. Samþ.
Alit samvinnumálanefndar var þá lagt
fram og lesið af séra Jakob Jónssyni:
Alit samvinnunefndar
1. Þingið lýsir sérstakri ánægju sinni
yfir heimsókn frk. Halldóru Bjarnadóttur,
sem er nýmæli í menningarlegum við-
skiftum milli Islendinga austan hafs og
vestan, þar eð hún mun vera fyrsta konan,
er tekst það á hendur af eigin ramleik að
kynna ísl. heimilisiðnað hérlendis með
sýningarmunum, er hún flutti heiman að.
2. Þingið lýsir ánægju sinni yfir þeim