Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1938, Side 36

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1938, Side 36
12 TfMAEIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA og æðri en skilningur sumra annara þjóða. Vér viljum að þeim sé greið- ur gangur að bókmentúm þjóðar vorrar, sem, þó lítil sé, er eina þjóð- in í heimi er, á lifandi máli, á sí- gildar fornaldar bókmentir, sem af fræðimönnum eru taldar jafnsnjall- ar, ef ekki snjallari, því bezta í bók- mentum fornaldarinnar. Þetta með- al annars, þráum vér að geti orðið ævarandi eign niðja vorra í álfu þessari og hjartfólginn fjársjóður, er þeir svo fái auðgað með hið vax- andi þjóðlíf, svo að það megi verða þróttmeira og fegurra en ella. Nú byggir land þetta, sem kunn- ugt er, fólk úr öllum álfum heims og hefir hvert um sig með sér flutt, þá siðu, þær hugsjónir, þá tungu, er tíðkað hefir verið í heimalandi þess. Standa menn hér því á mjög misjöfnu menningarstigi, þó ná- búar gjörist eftir að hingað kemur. Frá borgaralegu sjónarmiði, er þjóð- in ein og óskift. En tími sá er enn eigi kominn að fólk þetta hafi náð því takmarki að mynda eina þjóð- ernislega heild, er öðlast hafi sér- skilin og ákveðin andleg þjóðarein- kenni, þó, með framtíðinni, að eftir því sé vonast, að svo megi verða. Gætir því margbreytilegra skoðana, á öllum þeim málum er varða fram- tíðina og áhrif geta haft til að efla eða hnekkja menningu hinnar upp- vaxandi þjóðar, á komandi tíð, og ræður í því efni á hverjum stað fyr- ir sig, að mjög miklu leyti, hver þjóðflokkurinn er öflugastur að fólksfjölda eður efnahag. Nú er það hin helgasta skylda gagnvart þessu ríki og hinni uppvaxandi þjóð, að þeir, er að arfi hafa tekið göfugar hugsjónir og haldgóða menningu og hingað hafa flutt, ávaxti þenna arf sinn og verndi þessar hugsjónir sínar frá glötun. Nú hagar svo til hjá oss, að vér erum búsettir meðal allra þessara þjóðflokka og hefir þegar komið í ljós, að straumar þessara áhrifa eru mjög mishollir voru andlega heilbrigði, og hafa því orðið þess valdandi, að vér höfum í sumum efnum verndað miður en skyldi hinn þjóðernislega arf vorn, og það gengið svo langt, að jafnvel hugsjóna lífi voru og tungu hefir staðið háski af. Áhrifin hafa eigi fremur borist oss, frá þeim þjóð- flokkum, er ofar standa í menning- arlegu tilliti en vér, en hinum, sem þar standa neðar, og veldur því af- staða bygðarlaga vorra og nábýli við hina ýmsu þjóðflokka. Þess- vegna getur svo farið, ef vér eigi gjörum neitt til þess að varðveita þjóðerni vort í framtíðinni, að í stað þess að taka framförum and- lega og líkamlega, fari oss svo aftur, að af því súpum vér og niðjar vorir um langan aldur. Það er þessvegna skoðun vor að íslendingar hér í álfu ættu að bind- ast samtökum sín á meðal, til að mynda félagsskap til viðhalds tungu sinni og þjóðerni, er og jafnframt hefði það að markmiði að efla sæmd þjóðar vorrar og virðingu, innbyrð- is og út á við, í öllum efnum, eftir þvá sem ástæður leyfðu; er orðið gæti hvöt mentamönnum vorum í námi þeirra og vísindaiðkunum, rit- höfundum vorum styrkur í verki þeirra og frumkvöðull að því, að kynna afkomendum vorum og með- borgurum sögu vora og bókmentir að fornu og nýju, með fyrirlestra haldi eða útgáfu þar til kjörinna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.