Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 53

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 53
JÓLAGULL 35 slíkri. Bófi sá játi brot sín öll, að höggvast megi að helgum morgni. Rís.: Fífli ber sína flónsku játa. Hvatti hann kóngs son og kothyski hverfa héðan í kotsælu, burt frá ógn- um örlaganorna. Gullv.: Ein eru örlög, ætlanir vor- ar. Sundrum vér sögu eða saman tengjum. Hefji nú hirð vor helgi- drykkju, jólasumbl mest á jörðu hér. (Drykkjan hefst fyrir alvöru.) Rís.: Hvort förlast fráneygum fylki sýn? Gerist alvizka öðlings algleymi? Eygir hann ei hér örlög aldurtila? Gullv.: örlög sköpum vér aldur- tila. Sjáum vér fleira en sagan get- ur, fortíð, framtíð að furðuströnd- um. Hlægir oss ófeigan aldurtili. Örvast gleðin við illspár, kætin við kreddur fífls. Rís.: Víst mælir gylfi á guða máli. En svo hermir Ali og alkemistar: aldurtili bíði vor hér, nóttin helga helvæn sé, en utan hallar á ógnum hlé; kerti gullsins kyngi hlaðin gneistagaldurs grimmra fjenda, er spúa og spýta sprengieldum, myrk- urlogum svo máninn slokknar, og rísi dagur dóms. Gullv.: Fróður skal fár boða, en íífl eigi, en mæt er oss þín mælska, °g skalt þú því höfði halda. Rís.: Hver kýs að lifa, ef kóngur brennur? Gullv.: Spök er spurn, en grátt þitt gaman. Leiði lífverðir í lofð- ungs sal kóngs son og karls dóttur, karl og kerling. Skipum vér söguna svo að rætast. (Nokkrir lífverðir út). Nálgist Ali náð vora. Krjúpi sá fróði að fótskör vorri og geti oss gátu gullkertanna. Ali (fer að boði kóngs): Ei er hér gátu að geta. Flutt hefur fíflið fróm sannindi alkemíu og æðstu speki. Gullv.: Greini oss glöggur grunn- fróður Ali. Ali: Áttum vér tal við alkemista. Leynast í ljósmat lýsigullkerta for- múlufjendur fjörs og ljóma. Bála þau bölvun en birtu eigi, springa og sprengja spræka sem veika, búa buðlungi bana. Svo inntum vér af ailkemingum, andans kyngi, krist- álshringa — stjörnu-þingum. Því skal kertum í sjó sökkva. Gullv. (æfur): Liggja svo lífverð- ir á liði sínu? Færi þeir hingað fól öll, er oss fjörtjóni spá, arga alkem- inga og aðra þrjóta. Dragið þá dólga að drottins fótskör, að hátignar hæll megi á háls þeim stíga. Rís.: Gerðist Gullvaldur guðum máttugri, er gull skóp hann úr grómi jarðar. Vísari vitringi hverj- um, nema fífl sé; því máttugra er flónið guðum og gylfa; horfir um hönd sér og höggur fjötra boða sinna er til bana leiða. Gerist nú Gull- valdur guðum líkur, en mönnum minni? Ófær til óvissu? Ragur til rifta rangri skipan, þó dragi hún dauða til? Gullv.: Djarfari erum vér dauða. Rís.: Fullhuginn fellur fyrstur allra, en hugleysið blauðum bjarg- ar. (Hlustar og þefar). Berst fúl ná- lykt í nasir, náhljóð að eyrum. Gullv. (ölvaður): Haldi fífl hljóð- um kjafti, er raust reisir reginsjóli, höfundur heims og undra allra, ör- laga manns og hafs og fjalla. Skipar vor hátign sköp: Gerist formúlur fá- vit, dulspeki dauðasök. Hengist hrakspár heilvitringa. Höggvist ótti og aðrar skræfur. Tendrist ljós í lýsigulli og ljómi skærra sólum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.