Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 117
þingtíðindi
99
Úlgáfumálanefnd
Guðmann Levy
Jónas Jónasson
Páll Stefánsson.
Grettir L. Johannson flutti þessu næst
viðbót við þá skýrslu, sem hann hafði
áður gefið á þinginu. Las Grettir þing-
gestum bréf frá Sigurði Sigurgeirssyni
1 Reykjavík og reikningsyfirlit frá hon-
um. Þá skýrði Grettir frá því, að Þjóð-
ræknisfélagið hefði fengið að gjöf frá
Þjóðræknisfélaginu heima leikritið Hrólf
eftir Sigurð Pétursson, en það hefði verið
tekið upp á segulband. Dr. Beck þakkaði
í nafni Þjóðræknisfélagsins, en Grettir
gerði tillögu um, að skýrslu sinni yrði
vísað til fjármálanefndar. Mrs. Kristín
Thorsteinsson studdi þá tillögu, og var
hún samþykkt.
Ritari las viðbót við ársskýrslu Gimli-
deildar, þar sem frá því var skýrt, að
bæjarstjóm Gimlibæjar hefði verið
rninnt á það, að Minnisvarði landnem-
anna væri bæjarins eign og að bæjar-
stjórnin hefði lofazt til skömmu eftir
byggingu minnisvarðans að annast hann
°g landið umhverfis. Nokkra gleymsku
mun bæjarstjórnin hafa sýnt í þessu
máli, en hefir nú fastlega lofað að rækja
allar skyldur sínar varðandi eftirlit og
umhirðu minnisvarðans og umhverfis
hans.
Guðmann Levy skýrði frá því, að S.
A. Björnson og séra Hjalti Guðmunds-
son væru mættir á þingi sem fulltrúar
>iBárunnar“ á Mountain í Norður Dakota
?g færu þeir með 10 atkvæði hvor. Bor-
m var fram tillaga um að veita þeim
Mr. Björnson og séra Hjalta full þing-
rettindi. Var sú tillaga þegar studd og
samþykkt.
Grettir L. Johannson las bréf frá séra
Braga Priðrikssyni í Reykjavík varðandi
samvinnumál við fsland. Var erindi séra
Braga vísað til samvinnumálanefndar.
Pundi var síðan frestað þangað til kl.
2 e. h.
Fjórði fundur
var settur kl. 2.15 e. h., mánud. 21. febr.
1961. Pundargerð síðasta fundar var lesin
°g _ samþykkt. Ritari las því næst árs-
skýrslu deildarinnar „Aldan“ í Blaine,
Washington.
Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar
..Aldan" í Blaine .Washington
Árið 1960 hefir þjóðræknisdeildin
>>Aldan“ í Blaine, Washington haldið í
uorfinu líkt og að undanförnu undir
mrystu okkar ágæta forseta, séra Alberts
"• Kristjánssonar, Fjórir starfsmála-
tundir voru haldnir á árinu og auk þess
tvær almennar skemmtisamkomur. Sú
fyrri var haldin á sumardaginn fyrsta,
21. apríl, en sú síðari 26. október, og
tókust þær báðar vel. Vmissa erfiðleika
vegna var 17. júní ekki minnzt með op-
inberu hátíðarhaldi.
Annan september sá „Aldan" um sýn-
ingu á eftirprentunum íslenzkra lista-
verka, sem séra Jón Bjarman hafði til
kynningar hér vestra. Á síðasta fundi
ársins var ákveðið, að „Aldan“ skyldi
gerast meðlimur í Skógræktarfélagi fs-
lands frá næstu áramótum og greiða tíu
dala árstillag. Til elliheimilisins Stafholts
gaf „Aldan“ $300.00.
Sú uppbyggilega ánægja veittist Öld-
unni, að dr. og Mrs. Sveinn E. Björn-
son og Thorbjörg Ruby Couch, sem eru
öll búsett í White Rock, B.C., og Gísli
Benedictson, nú einnig í White Rock,
gerðust meðlimir frá ársbyrjun 1961.
Eins og verið hefir, frá því að „Ald-
an“ var stofnuð, eru eindrægni og góð
samvinna í bezta lagi, og er það eitt
aðalatriðið í velfamaði og ánægju í
hverjum félagsskap.
Meðlimatala deildarinnar er nú 34.
Albert E. Kristjánsson
forseti
Dagbjört Vopnfjörð
ritari.
Þjóðræknisdeildin „Aldan“ í Blaine,
Washington sendir hinu fertugasta og
öðru ársþingi íslendinga í Vesturheimi
alúðar kveðju og einlæga ósk um heppi-
lega úrlausn allra mála og væntir þess,
að þingið verði sem ánægjulegast.
Albert E. Kristjánsson
forseti
Dagbjört Vopnfjörð
ritari.
Flutningsmaður lagði til, að skýrslan
yrði viðtekin. Miss Guðbjörg Sigurdson
studdi, og var tillagan samþykkt.
Þsesu næst flutti Mr. O. Thomton árs-
skýrslu þjóðræknisdeildarinnar „Strönd-
in“ í Vancouver.
Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar
„Ströndin" í Vancouver
Þrír almennir skemmtifundir voru
haldnir á árinu auk allmargra stjómar-
nefndarfunda. Voru almennu fundirnir
allvel sóttir og ýmis áhugamál rædd. Þá
hafði deildin 5 skemmtisamkomur á ár-
inu auk hinnar árlegu hlutaveltu. Þorra-
blót var haldið þann 26. febrúar í Alpen
Hall. Var það allvel sótt. Þar var ís-
lenzkur matur á borðum, og efnt hafði
verið til stuttrar skemmtiskrár. íslenzki
karlakórinn söng undir stjórn Stefáns
Sölvasonar allmarga íslenzka söngva.