Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 116
98
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
liðið sumar sendi ég heim með dr. Beck
$65.00, sem hann afhenti Hákoni Bjarna-
syni skógræktarstjóra, og síðan hafa
komið inn $40.00, sem ég hefi ekki fram-
vísað að svo stöddu, en mun koma þeim
til skila, eins fljótt og unnt er.
Eftir að við settumst að í White Rock,
B.C., flutti ég erindi um skógræktarmál-
ið á samkomu hjá „Öldunni" í Blaine,
Washington, og gerðumst við hjónin
seinna meðlimir í þeirri deild. Á fundi
„Öldunnar“ í desember var svo sam-
þykkt, að deildin skyldi gerast meðlim-
ur í Skógræktarfélagi íslands frá 1. jan.
1961, og hefi ég veitt móttöku árstil-
lagi deildarinnar, eins og mðefylgjandi
listi sýnir.
Á síðasta ársþingi afhenti ég þessu
fólki ársrit Skógræktarfélagsins til út-
sölu: Séra Jóni Bjarman, Lundar, frú
Herdísi Eiríksson, Árborg. Hefi ég síðan
ekki frétt, hvort nokkuð hefir selzt af
þessum ritum, og munu þau séra Jón
og frú Herdís gera grein fyrir því á
þinginu.
Ég vil mælast til þess, að þingið haldi
áfram að hafa skógræktarmálið á dag-
skrá sinni, og þó ég nú búi í fjarlægð,
mun ég leitast við að halda málinu vak-
andi hér vestra, eftir því sem ástæður
leyfa. Að þessu sinni hefi ég engin rit
fengið að heiman, og því miður náði ég
ekki í Hákon Bjarnason, þegar hann var
hér á ferð síðast liðið haust, en síðan
hafa engin bréfaviðskipti átt sér stað
okkar í milli.
Með alúðarkveðjum og heillaóskum til
þjóðræknisþingsins.
Marja Björnson,
1371 Lee St., White Rock, B.C.
Athugasemd frá ritara: Listi meðlima,
sem greitt hafa árstillag, var birtur í
Lögbergi-Heimskringlu skömmu fyrir
þjóðræknisþing árið 1961.
Flutningsmaður lagði til, að skýrslan
yrði viðtekin. Séra Jón Bjarman studdi,
og var skýrslan samþykkt með þakk-
læti.
Frú Kristín Thorsteinsson veitti þær
upplýsingar, að þjóðræknisdeildin
„Gimli“ hefði sent árstillag sitt til Skóg-
ræktarfélags fslands Hákoni Bjarnasyni
skógræktarstjóra í Reykjavík.
Guðmann Levy gerði tillögu þess efn-
is, að milliþinganefnd í skógræktarmál-
inu yrði endurkjörin. Sú tillaga var
studd og samþykkt. Síðan var fundi
frestað til næsta morguns.
Þriðji fundur
var settur kl. 10.15 f. h., þriðjud. 21.
febrúar. Lesin var fundargerð síðasta
fundar og hún samþykkt. Síðan skipaði
forseti, dr. Beck, í allsherjarnefnd.
Allsherjarnefnd
W. J. Líndal dómari
J. B. Johnson
Jakob Kristjánsson.
Mrs. Kristín Johnson lagði til, að for-
seta yrði falið að skipa fimm manna út-
breiðslumálanefnd. Var sú tillaga studd
og samþykkt, en forseti skipaði nefndina
þegar.
Úfbreiðslumálanefnd
Ólafur Hallson
Margrét Goodman
Hólmfríður Gíslason
Louisa Gíslason.
Jakob Kristjánsson gerði tillögu um,
að forseta yrði falið að skipa þrjá menn
í fjármálanfend. Tillaga Jakobs var
studd og samþykkt, og skipaði forseti
nefndina að bragði.
Fjármálanefnd
Grettir L. Johannson
Hjálmur V. Thorsteinsson
Jóhann K. Johnson.
Miss Hlaðgerður Kristjánsson gerði
tillögu um, að forseta yrði falið að skipa
fimm manna fræðslumálanefnd. Tillagan
var studd og samþykkt, og skipaði for-
seti nefndina án tafar.
Fræðslumálanefnd
O. Thornton
Herdís Eiríksson
Rannveig Guðmundsson
Sigrún Nordal
Oddný Ásgeirsson.
Þá kom fram tillaga frá frú Herdísi
Eiríksson um, að forseta yrði falið að
skipa fimm manns í samvinnumálanefnd
við fsland. Tillagan var studd og sam-
þykkt, og skipaði forseti nefndina í
snatri.
Samvinnumálanefnd við ísland
Séra Jón Bjarman
Grettir L. Johannson
Kristín Thorsteinsson
Dr. Valdimar J. Eylands
Guðbjörg Sigurdson.
Tillaga kom fram um það, að forseta
skyldi falið að skipa þrjá menn í út-
gáfumálanefnd. Sú tillaga var studd og
samþykkt. Forseti skipaði nefndina um-
yrðalaust.