Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 115
þingtíðindi
97
til Morden byggðar. f för með þeim voru
Miss Helen Josephson og herra Sveinn
Skorri Höskuldsson frá íslandi, sem er
nú búsettur í Winnipeg. Fundurinn var
vel sóttur. Jón B. Johnson sveitarráðs-
maður bauð þessa góðu gesti velkomna.
Fyrst flutti Haraldur Bessason stutt
en vingjarnlegt ávarp. Næst flutti dr.
Beck ræðu. Hann sagði okkur frá ferða-
lagi sínu um ísland og Noreg í sumar
sem leið. Ræðan var skemmtileg og fróð-
leg, allir voru hrifnir og hefðu gjama
viljað, að ræðan hefði verið miklu lengri.
Hafi dr. Beck innilegt þakklæti fyrir
þessa hugvekju og hans hlýju orð til
deildarinnar og góðar óskir.
. Herra Sveinn Höskuldsson var beð-
mn að segja fáein orð. Hann flutti stutt
avarp, þrungið af velvild og næmum
skilningi á félagslífi okkar. Næst sýndi
Miss Josephson margar mjög góðar
myndir frá íslandi. Við þökkum henni
innilega fyrir skemmtunina og þökkum
óllu þessu góða fólki fyrir komuna.
Embættismenn deildarinnar „ísland“
eru sem hér segir:
Forseti Ólafur Lindal, varaforseti Ben
Einarson, ritari Guðrún Thomasson, fjár-
málaritari Jonathan Thomasson, féhirð-
m Jón B. Johnson.
Með beztu óskum til þingsins fyrir
hönd deildarinnar „ísland“.
Virðingarfyllst,
Louisa G. Gíslason.
Flutningskona gerði að tillögu sinni,
að skýrslan yrði viðtekin. Margir studdu,
°g var tillagan síðan samþykkt.
Ritari, Haraldur Bessason las árs-
skýrslu deildarinnar „Brúin“ í Selkirk.
Ársskýrsla deildarinnar
„Brúin" í Selkirk
Á árinu voru haldnir fjórir fundir.
Ejórtán meðlimir sóttu þá fundi að með-
altali.
. Þriggja félagssystra urðum við að sjá
a bak á árinu, þeirra Sigurbjargar John-
s°n, Ástu Sveinsson og Þóru Austman.
Meðlimatala er nú 24.
Félagið hélt sína árlegu tombólu í maí
^yeð góðum árangri. Deildin sendi $25.00
til styrktar vikublaðinu Lögbergi-Heims-
kringlu, og aðrir $25.00 voru lagðir til
Betel.
Bókasafn félagsins var opið yfir vetr-
|rmánuðin.a f það hefir verið bætt bók
Skógræktarfélagsins.
í sjóði félagsins voru í janúar 1961
5363.26. f stjórnarnefnd voru kosin: Frið-
Hk Nordal, Márus Benson, Mrs. Alla
Guðbrandson og Guðrún Vigfússon.
Virðingarfyllst,
Guðrún Vigfússon.
Flutningsmaður lagði til, að skýrslan
yrði viðtekin. Miss Guðbjörg Sigurdson
studdi, og var tillagan að því búnu sam-
þykkt.
Séra Jón Bjarman flutti munnlega
skýrslu um ferðalag þeirra séra Braga
Friðrikssonar um byggðir fslendinga í
Vesturheimi í sambandi við sýningar á
eftirprentunum íslenzkra listaverka.
Þakkaði séra Jón sérstaklega „Öldunni"
í Blaine, Washington og „Ströndinni“ í
Vancouver fyrir fjárstyrk, sem deildirn-
ar höfðu látið af hendi rakna í sambandi
við áður greint ferðalag. Skýrsla séra
Jóns sýndi, svo að ekki varð um villzt,
að þeir klerkar höfðu verið atorkusam-
ir með afbrigðum á ferðum sínum. Séra
Jón bar fram tillögu um, að séra Braga
yrði þakkað fyrir komuna hingað vest-
ur. Var sú tillaga samþykkt með lófa-
taki.
Forseti, dr. Richard Beck, gat þess,
að í jólafríi sínu hefði hann flutt erindi
um íslenzkt efni meðal fslendinga í Los
Angeles og San Francisco. Skilaði dr.
Beck kveðjum frá löndum vestur þar.
Mrs. Kristín Johnson gerði tillögu um,
að forseta yrði falið að skipa þrjá menn
í allsherjarnfend. Sú tillaga var studd
og samþykkt.
Ritari, Haraldur Bessason, flutti þessu
næst munnlega skýrslu um húsbygg-
ingarmálið og las álitsgerðir ýmissa
þjóðræknisdeilda um það mál, en þær
álitsgerðir er að finna annars staðar í
þessum fundargerningi. Mrs. Kristín
Johnson gerði tillögu þess efnis, að hús-
byggingarmálið yrði tekið af dagskrá.
Var sú tillaga studd af Miss Hlaðgerði
Kristjánsson og Gunnari Sæmundssyni.
Séra Jón Bjarman gerði breytingartil-
lögu þess efnis, að málinu yrði vísað til
væntanlegrar allsherjarnefndar. Guð-
mann Levy studdi, og var breytingartil-
lagan síðan samþykkt.
Ritari flutti þessu næst skýrslu milli-
þinganefndar í skógræktarmálinu.
Skýrsla milliþinganefndar
í skógræklarmálum árið 1960-1961
Nefnd sú, sem sett var á síðasta árs-
þingi til milliþingastarfs í þessu máli,
hafði engan fund með sér á árinu. Hefi
ég því enga skýrslu að gefa um sam-
starf nefndarinnar. En á síðasta árs-
þingi hafði ég ársrit Skógræktarfélags-
ins til útbýtingar þeim, sem þá lögðu
fram ársgjald sitt, eins og meðfylgj-
andi listi sýnir.
Eins og listinn sýnir, nema meðlima-
gjöld á árinu $107.00, en þar frá dregst
kostnaður, $2.00, fyrir póstgjald með
flugi á fræi því frá H. Austman, sem
getið er um í síðustu ársskýrslu. Síðast