Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 114
96
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Deildin „Frón" í Winnipeg
Miss Guðbjörg Sigurdson ...... 10
Jakob Kristjánsson ........... 10
Mrs. Oddný Ásgeirsson ........ 10
Mrs. Kristín Johnson ......... 10
Miss Hlaðgerður Kristjánsson 10
Guðmann Levy ................. 10
Haraldur Bessason .............10
Gunnar Baldwinson ............ 10
Deildin „Lundar" Lundar
Séra Jón Bjarman ............. 20
Mrs. Rannveig Guðmundson 17
Deildin „ísland" í Morden
Mrs. Louisa Gíslason .......... 7
Mrs. Ingunn Thomasson ......... 7
Deildin „Siröndin" í Vancouver
Mr. O. Thornton .............. 20
Deildin „Báran" á Mouniain,
Norður Dakola
Séra Hjalti Guðmundsson ...... 10
Sigurður Björnsson ........... 10
Auk ofan greindra fulltrúa hafa 30
meðlimir deildarinnar „Frón“ í Winni-
peg sitt eigið atkvæði, svo og allir skuld-
lausir meðlimir aðalfélagsins.
20. febr. 1961
Guðmann Levy
Krisiín Johnson
Krislin Thorsieinsson.
Flutningsmaður lagði til, að skýrslan
yrði viðtekin. Miss Guðbjörg Sigurdson
studdi, og var tillagan samþykkt.
Séra Jón Bjarman flutti þessu næst
ársskýrslu þjóðræknisdeildarinnar að
Lundar.
Ársskýrsla þjóðræknisdeildarinnar
„Lundar"
Deildin hélt þrjá fundi á árinu. Einnig
gekkst hún fyrir minningarathöfn, sem
haldin var við minnisvarða landnema
byggðarinnar þann 14. ágúst.
Snemma á árinu varð deildin fyrir
því tjóni að missa einn af sínum ágæt-
ustu félagsmönnum, Daníel J. Líndal.
Hann hafði verið féhirðir deildarinnar í
mörg ár.
Séra Bragi Friðrikssson heimsótti
deildina í ágústmánuði. Hann hélt sam-
komu hér, sýndi eftirprentanir íslenzkra
listaverka og íslenzkar kvikmyndir.
Samkoman var vel sótt.
Deildin leit eftir lestrarfélagi byggð-
arinnar. Ekki hefir verið mikið um bóka-
kaup, en ein bók var keypt á árinu. Allt
um það hafa félaginu verið gefnar all-
margar bækur, og þökkum við Mrs. Guð-
ríði Einarson og Mrs. Margréti Líndal
fyrir þessar bókagjafir.
Tekjur deildarinnar á árinu voru
$166.73. Útgjöld voru $71.00. í sjóði eru
því $95.73. í lestrarfélagssjóði eru $36.84.
Deildin telur 37 meðlimi.
Gísli S. Gíslason
ritari.
Flutningsmaður gerði að tillögu sinni,
að skýrslan yrði viðtekin. Miss Hlað-
gerður Kristjánsson studdi, og var til-
lagan samþykkt.
Mrs. Louisa Gíslason flutti ársskýrslu
þjóðræknisdeildarinnar „ísland“ í Mor-
den.
Skýrsla deildarinnar
„ísland" í Morden
Næsta haust verða liðin 40 ár frá því
að deildin var stofnuð. Margir spáðu því
í upphafi, að félagið yrði ekki langlíft,
en sú spá rættist ekki. Reyndar hefir
ekki verið sami áhuginn sem fyrr seinni
árin. Þeir eldri hafa fallið frá og sumir
flutzt burt, en hvað um það, við eigum
endurminningar, og gaman var að vinna
saman í gamla daga og allt fram á þennan
dag.
Það er ekki mikið að frétta frá deild-
inni. Samt get ég sagt, að það er ofur-
lítið meira lífsmark með félagsskap okk-
ar heldur en árið sem leið, og þakka ég
það komu góðra gesta, sem skemmtu
okkur svo vel á árinu. Við stöndum í
stórri þakkarskuld við allt það góða
fólk.
Þrír fundir voru haldnir á árinu. Sá
fyrsti var haldinn á sumardaginn fyrsta,
21. apríl. Fundurinn var dável sóttur.
Að fundarstörfum loknum fór fram stutt
skemmtiskrá, og síðan var drukkið kaffi.
Það er alltaf jafngaman að koma saman
á sumardaginn fyrsta. Annar fundur var
haldinn mánudagskvöldið _ 15. ágúst.
Séra Bragi Friðriksson frá íslandi og
séra Hjalti Guðmundsson frá Mountain
í Norður Dakota heimsóttu okkur það
kvöld. Séra Bragi var beðinn að flytja
íslenzka prédikun, áður en samkoman
byrjaði. Eftir messuna sýndi séra Bragi
eftirprentanir af íslenzkum listaverkum,
skýrði myndirnar stuttlega og fór nokkr-
um orðum um listmálarana og verk
þeirra. Séra Hjalti var svo vænn að
syngja fyrir okkur nokkur þjóðlög, okk-
ur öllum til ánægju. Því næst voru fram-
reiddar góðgjörðir fyrir alla, sem við-
staddir voru. Að því búnu sýndi séra
Bragi kvikmyndir frá íslandi, þar sem
sýndar voru ýmiss konar íþróttir svo
sem sundkeppni og margt fleira.
Þann 15. október komu dr. Richard
Beck, forseti Þjóðræknisfléagsins og
próf. Haraldur Bessason ritari þess i
heimsókn. Er þetta í fyrsta sinn, sem
prófessor Halaldur Bessason hefir komm