Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 107
þingtíðindi
89
Úlbreiðslu- og fræðslumál
Stjórnarnefndin hefir unnið að þeim
málum eftir föngum, enda eru þau
þannig vaxin, að þeim ber að halda sem
bezt vakandi, eigi félagsskapurinn að
halda áfram að ná tilgangi sínum. Auk
stjórnarnefndarinnar hafa ýmsir aðrir
lagt hönd á plóg þessum málum til stuðn-
mgs.
Fyrrv. forseti félagsins, dr. Valdimar
J• Eylands, hefir á samkomum víðs vegar
talað máli þess og hvatt fólk til þess
að styðja þjóðræknislega viðleitni vora,
enda hefir hún lengi átt góðan hauk
i horni, þar sem hann er.
Núverandi varaforseti og fyrrv. for-
seti, séra Philip M. Pétursson, hefir unn-
ið að útbreiðslu- og fræðslumálunum
með ýmsum hætti. í fjarveru forseta
flutti hann kveðju félagsins á íslend-
ingadeginum að Gimli, kom fram fyrir
nönd þess í ársveizlu Icelandic Canadian
Club og víðar af hálfu þess. Þakka ég
honum kærlega þau fulltrúastörf.
Hitari félagsins, prófessor Haraldur
Bessason, hefir í ræðu og riti unnið
hyggilega að málum vorum.. Hann flutti
erindi á ársfundi fræðafélagsins „The
Linguistic Circle of North Dakota and
Manitoba“ í maí; þ. 17. júní hélt hann
ræðu á samkomu þjóðræknisdeildarinn-
ar „Esjunnar“ í Árborg; snemma á ár-
inu hélt hann enn fremur tvær ræður
a United College hér í Winnipeg, og
kennir þar nú íslenzku og flytur fyrir-
lestra einu sinni í viku. Meðalaðsókn
hefir verið 12 nemendur. Hann hefir
einnig ritað fjölda greina um íslenzk
efni fyrir hið íslenzka vikublað vort og
víðar.
Vararitari, Walter J. Lindal dómari,
flutti ræðu á minningarsamkomunni um
Mrs. j. b. Skaftason og ávörp víðar á
samkomum. Hann hefir einnig ritað mik-
fð um þjóðræknis- og menningarmál í
The Icelandic Canadian, og skipar fram-
Vegis forystusess í Canada-Iceland Foun-
hation og blaðamannafélaginu „Cana-
hian Ethnic Press Federation.“
Féhirðir, Grettir L. Jóhannson ræðis-
þiaður^ hefir flutt ræður um ísland og
avörp á ýmsum samkomum. Á ferð sinni
1 .Kaliforníu síðastliðið sumar hélt hann
einnig ræðu um vestur-íslenzk félags-
°g menningarmál á fslendingasamkomu,
er honum var haldin til heiðurs í Long
Beach.
Varaféhirðir, frú Hólmfríður F. Dani-
slson, flutti þrjár ræður um ísland og
jslenzk efni, eina þeirra á samkomu
Pjóðræknisdeildarinnar á Gimli^en hin-
ar á samkomum í Winnipeg. Hún hafði
einnig umsjón með þátttöku íslendinga
1 >.The Festival of Nations" í júlí síðast-
liðið sumar. Fram að jólum kenndi hún
hóp ungra stúlkna íslenzku. Enn fremur
hefir hún annazt undirbúning og fjöl-
ritun minninga („Pioneer Sketches“) S.
B. Olson, og ritað greinar um íslenzk
efni bæði á ensku og íslenzku.
Fjármálaritari, Guðmann Levy, hefir
með bréfum til deilda unnið þarft starf
í þá átt að halda sambandi við þær, og
starfað í ýmsum nefndum af hálfu
stjórnarnefndar. Hið sama gildir um
varafjármálaritara, ólaf Hallsson, sem
hefir einnig, eins og að undanförnu, unn-
ið ötullega í þágu heimadeildar sinnar
að Lundar.
Oss í stjórnarnefndinni var það fagn-
aðarefni, þegar frú Marja Björnsson var
kosin skjalavörður, og hörmuðum það
að sama skapi, er hún gat eigi starfað
áfram í nefndinni vegna brottflutnings
þeirra hjóna vestur að hafi En svo sem
vænta mátti, hefir hún haldið áfram að
sýna í verki tryggð sína við málstað
vorn með ræðuhöldum á samkomum,
og þá sérstaklega um sitt mikla áhuga-
mál, skógræktarmálið.
Áður en hann lagði af stað í fslands-
ferð sína, flutti forseti fyrirlestur um
norrænt efni á Fylkisháskólanum í Mani-
toba og erindi um Gunnar Gunnarsson
rithöfund á ársfundi Félagsins til efl-
ingar norrænum fræðum (Society for
the Advancement of Scandinavian
Study) í Chicago; enn fremur kveðjur
félags vors á 75 ára afmælissamkomu
íslenzka-lúterska Kirkjufélagsins í Vest-
urheimi ( Argyle, Man., og á samkom-
um til heiðurs biskupi íslands að Moun-
tain, N. Dak., og í Winnipeg. Síðan hann
kom heim úr ferðinni hefir forseti flutt
fjölda af ræðum, meðal annars útvarps-
erindi um Leif Eiríksson frá útvarps-
stöð Ríkisháskólans í N. Dakota, ræðu
um norrænar menningarerfðir á fundi
Þjóðræknisfélags Norðmanna í Grand
Forks, og erindi um íslandsferðina á
somkomu þjóðræknisdeildarinnar „ís-
land“ í Brown, Manitoba, og á fundum
Rótaryklúbbsins og Kiwanisklúbbsins í
Grand Forks. Hann talaði einnig á segul-
band jólakveðju af hálfu Þjóðræknisfé-
lagsins, sem íslenzka Ríkisútvarpið út-
varpaði um hátíðaleytið. Einnig hefir
hann á árinu birt fjölda greina og rit-
dóma um íslenzk efni austan hafs og
vestan.
Fer þá vel á því að geta hér sérstak-
lega heimsóknar séra Braga Friðriks-
sonar hingað vestur um haf, en hann
kom hingað til að kynna íslenzka mynd-
list. Ferðaðist hann á vegum Þjóðrækn-
isfélagsins um byggðir vorar í Mani-
toba og Norður-Dakota, flutti erindi,
með litmyndum af íslandi og íslenzku
þjóðlífi, og sýndi prentmyndir af kunn-