Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 120
102
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
tilveru Þjóðræknisfélagsins, og meðan
slík samskipti haldast, telur þingið, að
tilveru Þjóðræknisfélagsins sé borgið.
Sérstaklega gleður það þingið, hve vel
tókst til með móttökur fyrir Karlakór
Reykjavíkur á síðast liðnu hausti. Vill
þingið þakka þeim mönnum, sem lögðu
fram krafta sína og tíma til þess að
gera heimsókn Karlakórsins eins ánægju-
lega og hún varð. Þingið fagnar því
einnig, hversu vel tókst til með kynn-
ingu á eftirprentunum á íslenzkum lista-
verkum á árinu og þakkar stjómar-
nefndinni fyrir undirbúning og fyrir-
greiðslu þess máls.
2. Þingið þakkar Þjóðræknisfléagi ís-
lendinga í Reykjavík fyrir góða sam-
vinnu á árinu. Þingið fagnar þeirri fregn,
að von sé á segulbandsspólu frá því fé-
lagi með leikritinu „Hrólfur" eftir Sig-
urð Pétursson. Þingið hvetur stjórnar-
nefndina til að sjá um, að deildum fé-
lagsins verði gefinn kostur á að hag-
nýta sér leikritið og geri tillögur um,
hvemig því verði bezt komið í kring.
3. Þingið minnist með þakklæti heim-
sókna góðra gesta á árinu og álítur, að
gagnkvæmar heimsóknir milli landanna
stuðli að því að halda við sambandinu
milli íslendinga austan hafs og vestan.
4. Þingið fagnar því einlæglega, að
þeir Birgir Thorlacius og Steindór Stein-
dórsson skuli hafa tekið sæti í ritnefnd
Lögbergs-Heimskringlu. Einnig er það
fagnaðarefni, að Alþingi fslendinga
skuli hafa lagt fram kr. 100.000.00 til
styrktar útgáfu blaðsins. Aukin sam-
vinna um útgáfu íslenzks vikublað hér
í Winnipeg milli fslendinga austan hafs
og vestan er mikilvægur þáttur í sam-
vinnumálum fslendinga og Vestur-ís-
lendinga.
5. Þingið gleðst yfir því, hve góðum
árangri „Canada-Iceland Foundation“ og
samsvarandi samtök á íslandi hafa náð,
eins og sjá má á útvegun og fyrir-
greiðslu varðandi námsstyrki frá „Can-
ada Council“. Á þeim þremur árum,
sem þessir styrkir hafa verið veittir, hafa
þrír íslenzkir náms- og menntamenn
notið þeirra. Þingið álítur slík störf djúg-
an skerf til eflingar þjóðræknismálum
báðum megin hafsins.
6. Þingið fagnar þeirri fregn, sem því
hefir borizt um, að á fslandi sé á döf-
inni útgáfa á afmælisriti til heiðurs
fyrrverandi forseta Þjóðræknisfélagsins,
dr. Valdimar J. Eylands. Kemur rit þetta
út í sambandi við 60 ára afmæli hans,
en dr. Valdimar verður sextugur 3. marz
n.k. Þingið hvetur alla félagsmenn Þjóð-
ræknisfélagsins til að styðja þetta mál
og gerast áskrifendur að þessari væntan-
legu bók.
7. Þingið lýsir þakklæti sínu til heima-
þjóðarinnar fyrir þær hlýju viðtökur,
sem hún veitti forseta Þjóðræknisfélags-
ins, dr. Richard Beck, á ferðum hans um
fsland á liðnu sumri. Einnig þakkar
þingið forseta sínum fyrir þann mikla
skerf, sem hann hefir lagt fram til auk-
innar samvinnu milli fslendinga og
Vestur-íslendinga, bæði með ferðum
sínum og svo í ræðu og riti, hvar sem
hann hefir því við komið.
Jón Bjarman
Mrs. Krislín Thorsteinsson
Guðbjörg Sigurdson
Grettir Leo Johannson.
Séra Jón lagði til, að nefndarálitið
yrði tekið fyrir lið fyrir lið. Var svo
gert þegar. Allir liðir hlutu samþykki
svo og nefndarálitið í heild sinni.
Guðmann Levy flutti þessu næst
nefndarálit þingnefndar í útgáfumálum.
Nefndarálil útgáfumálanefndar
1. Þingið ákveður að gefa út Tímaritið
næsta ár í svipuðu formi og stærð og
síðast liðið ár.
2. Þingið felur væntanlegri stjórnar-
nefnd að ráða ritsjtóra og auglýsinga-
stjóra.
3. Þingið tekur undir með forseta að
þakka öllum starfsmönnum Tímaritsins
vel unnið starf á síðast liðnu ári.
Guðmann Levy
Jónas Jónasson
Páll Stefánsson.
Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
álitið yrði viðtekið. Jónas Jónasson
studdi, og var tillagan síðan samþykkt.
Dr. Richard Beck las símsenda kveðju
til þingsins frá séra Braga Friðrikssyni á
íslandi, en hún hljóðaði þannig:
„Sendi Þjóðræknisfélaginu og deild-
um þess kærar þakkir fyrir móttökumar
í sumar og óska þinginiu allra heilla.“
Bragi Friðriksson
Þinggestir fögnuðu kveðjunni með
lófataki.
Féhirðir, Grettir L. Johannson flutti
þessu næst nefndarálit fjármálanefndar.
Nefndarálit fjármálanefndar
Að athuguðum fjárhagsskýrslum frá
s. 1. ári beinir fjármálanefnd eftirfarandi
tillögum til þingsins:
1. Að fjárhagsskýrslur, sem lagðar hafa
verið fyrir þingið yfir fjárhag félagsins
á s. 1. ári, verði viðteknar.
2. Að því athuguðu, hve meðlimagjöld