Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 118
100
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Einnig las Nói Bergmann upp. Góð
hljómsveit lék fyrir dansi, sem stóð til
kl. 1 f. h.
Sumarmálasamkomu hélt „Ströndin“
þann 21. apríl (sumardaginn fyrsta) í
samkomusal íslenzku kirkjunnar. Var
samkoman vel sótt og skemmtiskrá fjöl-
breytt. Aðalræðumaður var Sveinn
Þórðarson frá Reykjavík, sem hér var
vestra við nám og kennslu.
Skemmtisamkoma var haldin 18. maí
(spilað á spil og myndir sýndar) í Con-
tinental Hall (Cor. Robson & Richard
Strs.).
Fjölmenn samkoma var haldin 17.
júní í samkomusal íslenzku kirkjunnar.
Skemmtiskrá var mjög fjölbreytt. Þar
stjómaði Karlakórnum við ágætan orð-
stír ungur fslendingur frá íslandi, herra
Árni Arinbjarnarson, hálfbróðir Grettis
Björnssonar. Heldur Árni söngskóla í
Reykjavík. Auk þess að vera ágætur
söngstjóri er hann afbragðs slaghörpu-
og fiðluleikari.
Þá hélt séra Jón Bjarman, prestur
frá Lundar, Man. sýningu á vegum
„Strandar" í samkomusal íslenzku kirkj-
unnar. Voru þar til sýnis litprentaðar
myndir af mörgum fögrum málverkum
eftir marga beztu málara fslands. Var
sýningin aðallega haldin til þess að
kynna Vestur-íslendingum íslenzka mál-
aralist og fólki og gefinn kostur á því
að panta myndir eftir þessum sýnis-
hornum. Séra Jón og kona hans skýrðu
myndirnar.
Þá var hin árlega hlutavelta „Strand-
ar“ haldin í nóvember við allgóða að-
sókn.
Á aðalársfundi „Strandar", sem hald-
inn var 17. jan. 1961, voru eftirtalin kos-
in í stjórnarnefnd deildarinnar:
Forseti Mr. Snorri Gunnarssson, vara-
forseti Mr. Nói Bergmann, skrifari Mrs.
Thordur Teitsson, varaskrifari Mr. Har-
old Eyford, fjármálaritari Mr. David
Eggertsson, varafjármálaritari Mr. Oscar
Howardson.
í elliheimilisnefnd „Strandar“ var
kjörinn Mr. Bennie Brynjólfsson. f
Central Scand. Committee voru kjörnir
dr. J. E. Fridleifsson og Mr. Stefán Ey-
mundsson.
Yfirskoðunarmenn eru þeir Mr. Odinn
Thornton og Mr. Hákon Kristjánsson.
Vancouver, B.C., 18. febrúar 1961
Virðingarfyllst,
G. Stefánsson
fyrrv. ritari.
Ritari lagði til, að skýrslan yrði við-
tekin með þakklæti. Miss Guðbjörg Sig-
urdson studdi, og var tillagan samþykkt.
Séra Hjalti Guðmundsson flutti árs-
skýrslu þjóðræknisdeildarinnar „Báran“
að Mountain, N.D.
Skýrsla þjóðræknisdeildarinnar
„Bárunnar" árið 1960
Ársfundur „Báru“ árið 1960 var hald-
inn í skólahúsinu að Mountain, N.D. 6.
febrúar 1960. Forseti „Báru“, Guðmund-
ur J. Jónasson, setti fund og stjórnaði
honum.
Embættismenn hlutu kosningu sem hér
segir:
G. J. Jónasson forseti, S. A. Björnson
varaforseti, H. B. Grímson skrifari, séra
Hjalti Guðmundsson varaskrifari, Joseph
Anderson féhirðir, H. J. Björnson vara-
féhirðir, O. G. Johnson fjármálaritari,
Fred Halldórson varafjármálaritari.
Starf „Báru“ árið 1960 var aðallega
fólgið í því að taka á móti gestum frá
fslandi og undirbúa samkomur þeirra.
Má þar nefna heimhókn séra Braga Frið-
rikssonar og myndasýningu hans í ágúst,
sem var mjög vel sótt og mikill fengur
að. Mættu slíkar heimsóknir gjarnan
verða árlegir viðburðir, því að þær stuðla
mjög að því að kynna ísland og íslenzka
menningu. Þá má nefna heimsókn Karla-
kórs Reykjavíkur til Mountain. Kórmenn
stóðu við í nokkrar klukkustundir og
voru miklir aufúsugestir. Þeir sungu
nokkur lög við mikla hrifningu allra
viðstaddra. Veitingar voru framreiddar
fyrir kórmenn í samkomuhúsinu að
Mountain svo og fyrir alla þá, sem
komu til þess að sjá og heyra kórinn,
en þeir voru mjög margir. Um allar
veitingar sáu kvenfélögin í Mountain
prestakallinu.
Það fer ekki hjá því, að íslenzkri
tungu hrakar nú meðal Vestur-íslend-
inga, og er sennilega ekkert meðal til
að sporna við því. Það er því þeim mun
gleðilegra að geta sagt þingheimi frá
því, að í barnaskólanum að Mountain
er kennd íslenzka í nokkrum bekkjum
eina stund á viku. Við kennsluna eru
notaðar kennslubækur í lestri frá fs-
landi, t. d. Gagn og gaman, sem flestir
íslendingar þekkja. Börnin hafa sýnt
mjög mikinn áhuga á íslenzkunni og
því, sem íslenzkt er, og er það vissu-
lega góðs viti. Kennari sá, sem að þessu
stendur, er Mrs. Jack Thorfinson, Moun-
tain.
Að lokum vil ég flytja þinginu beztu
kveðjur og árnaðaróskir frá Guðmundi
Jónassyni forseta ,,Báru“.
Á tímabilinu milli aðalfunda 1960 og
1961 hafa fjórir félagsmenn „Báru“ lát-
izt: Hjörtur Hjaltalín, Mountain, John
H. Johnson, Garðar, Steini Goodman,
Milton og Björn Stefánsson, Hallson.
Hjalii Guðmundsson
vararitari.
Séra Hjalti lagði til, að skýrslan yrði
viðtekin. Ritari studdi, og var tillagan
samþykkt.