Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Blaðsíða 121
þingtíðindi
103
þverra, hvetur þingið alla þá, sem tök
hafa á, að gerast styrktarmeðlimir fé-
lagsins.
3. Þingið felur stjórnarnefndinni að
greiða Lögbergi-Heimskringlu $500.00
framlag fyrir árið 1961.
4. Þingið felur framkvæmdanefndinni
að skrásetja Þjóðræknisfélag íslendinga
í Vesturheimi sem meðlim í Skógræktar-
félagi fslands og greiða félagsgjaldið í
kanadískum dollurum.
5. Þingið felur framkvæmdanefndinni
að ganga endanlega frá ráðstöfun á
tuyndastyttu Leifs Eiríkssonar, sem er
hjá Mariner’s Museum, Newport News,
Virginia.
. 6. Að erindrekanum frá Vancouver, hr.
pðni Thomton, verði greiddir $50.00 upp
1 ferðakostnað.
7. Að öllum óafgreiddum tillögum
þessa þings varðandi fjármál verði vísað
til stjórnarnefndar félagsins til yfirveg-
unar og úrslita.
Á þjóðræknisþingi í Winnipeg, 22.
febr. 1961.
Hjálmur Thorsteinsson
Jóhann K. Johnson
Grettir Leo Johannson.
, Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
alitið yrði tekið fyrir lið fyrir lið. Sú
tillaga var studd af mörgum og síðan
samþykkt. Allir liðir hlutu samþykki
svo og nefndarálitið í heild.
.Síðan var fundi frestað þangað til eftir
hadegi.
Sjötli fundur
hófst kl. 1.30 e. h., miðvikud. 22. febr.
1961. Lesin var fundargerð síðasta fund-
ar og hún samþykkt.
. Þá var kosið í stjórnarnefnd Þjóðrækn-
isfélagsins, og hlutu þessi kosningu: For-
seti dr. Richard Beck, varaforseti séra
Philip M. Pétursson, ritari próf. Haraldur
Bessason, vararitari Walter J. Líndal
domari, féhirðir Grettir L. Johannson
konsúll, varaféhirðir frú Hólmfríður
Daníelson, fjármálaritari Guðmann Levy,
varafjármálaritari ólafur Hallsson,
skjalavörður Jakob F. Kristjánsson. End-
drskoðendur voru kjömir þeir Davíð
Djörnsson og Jóhann Th. Beck.
Forseti, dr. Beck, þakkaði þinghenni
Það traust, er honum hefði verið sýnt
með því að endurkjósa hann sem for-
seta Þjóðræknisfélagsins. Las forseti
þessu næst símsenda kveðju til þings-
ms frá forseta íslands, herra Ásgeiri Ás-
geirssyni, en kveðjan hljóðar þannig:
Reykjavík, 22. febr. 1961.
Ég sendi þjóðræknisþinginu beztu
heilla- og árnaðaróskir.
Ásgeir Ásgeirsson.
Þinggestir risu úr sætum í virðingar-
skyni við forseta fslands og fögnuðu
kveðjunni með lófataki.
Ólafur Hallsson flutti skýrslu út-
breiðslumálanefndar.
Nefndarálit úibreiðslumálanefndar
Nefndin leggur til:
1. Að dr. Richard Beck séu þökkuð
mikil og góð störf fyrir Þjóðræknisfé-
lagið vestan hafs og á íslandi, bæði í
ræðu og riti.
2. Að þingið þakki þeim, sem á árinu
hafa kynnt ísland og íslenzka menningu
á einn eða annan hátt. Einnig hvetur
þingið þjóðræknisdeildimar til að halda
þessu kynningarstarfi áfram eftir beztu
getu.
3. Þingið lýsir ánægju sinni yfir hin-
um góðu heimsóknum íslendinga á liðnu
ári. Má þar sérstaklega þakka komu
herra Sigurbjarnar Einarssonar biskups
yfir íslandi, heimsókn séra Braga Frið-
rikssonar, er hann kom með hina stór-
merku myndasýningu. Þá var það ekki
sízt mikið ánægjuefni að fá vestur hing-
að Karlakór Reykjavíkur, sem söng hér
af frábærri snilld. Þingið álítur, að slík-
ar heimsóknir styrki meira en nokkuð
annað bræðraböndin milli íslendinga
austan hafs og vestan og auki virðingu
og áhuga unga fólksins á íslenzkum
málum.
4. Þingið eggjar stjómarnefndina á að
halda áfram og auka heimsóknir til
deildanna.
5. Þingið bendir stjórnarnefndinni á
að reyna að koma í framkvæmd lið nr. 6
úr nefndarálitinu frá því í fyrra.
6. Þingið hvetur alla fslendinga til að
styrkja vestur-íslenzka vikublaðið Lög-
berg-Heimskringlu með því að kaupa
það og senda því fréttir.
ólafur Hallsson
Hólmfríður Daníelson
Margrét Goodman
Louisa G. Gíslason
Hjalti Guðmundsson.
Flutningsmaður lagði til, að nefndar-
álitið yrði tekið fyrir lið fyrir lið. Var
sú tillaga studd og samþykkt. Hlutu
allir liðir samþykki svo og nefndarálit-
ið í heild.
Dr. Valdimar J. Eylands bar fram til-
lögu þess efnis, að ritara Þjóðræknisfé-
lagsins yrði falið að senda dr. Finnboga
Guðmundssyni kveðjur þjóðræknisþings
og árnaðaróskir í tilefni af nýafstaðinni
doktorsvöm hans við Háskóla íslands.