Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 87

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 87
Bækur Valdimar J. Eylands ARFUR OG ÆVINTÝR Akureyri 1961 Ekki má þetta Tímarit ýta svo úr vör, að það minnist ekki merkustu bókarinnar, sem út hefir komið á árinu frá Vestur-íslendingi, ef und- anskilin er hin mikla Bókmennta- saga Dr. Stefáns Einarssonar, sem enn er ókomin hingað vestur. Bókin Arfur og ævintýr eftir séra Valdi- mar J. Eylands Dr. Theol. er bæði læsileg og skemmtileg og höfundin- um til stórsóma, og Bókaforlagi Odds Björnssonar til verðugs heið- urs. Hygg ég, að sú prentsmiðja láti frá sér fara einna smekklegustu bækurnar, eins og sakir standa nú á íslandi. Þó er hér samt einn ljóð- ur á máli: Framan á skrautkápunni er nafnið stafað ÆFINTÝR, en á tit- ilblaði, innan bókar og aftan á kápu ÆVINTÝR, og að minnsta kosti á einum stað Ævintýri. Sjálfur hefði ég helzt kosið 'þann ritháttinn, sbr. þuluna gömlu: Köttur úti í mýri setur upp stýri. Út er ævintýri. En um þetta ber ekki að sakast. Bókin skiptist í sex aðalflokka. Eyrst er „Umbrot æskumanns, upp- haf að ævisögu“ — hressileg og nær- færin sjálfslýsing og skýring lifnað- arhátta á fyrsta fjórðungi 20. aldar- iunar. Sé ég, að ekki hafa framfar- irnar verið ýkja miklar frá þeim tímum, er ég ólst upp, og er ég þó fullum aldarfjórðungi eldri en bók- arhöfundurinn. Næst koma Blaðagreinir, fjórar að tölu, og er „Opinberunin í eyðimörk- inni“ þeirra markverðust, en því miður of stutt, enda eru þar víst fæst kurl komin til grafar enn. Greinin er um hina stórmerku hand- ritafundi í hellisgjótum nálægt Dauðahafinu, sem sumir halda fram að gjörbreyta muni skoðunum fræði- manna á ýmsum ritum Biblíunnar. Þriðji flokkurinn er nefndur ,Fyr- irlestrar“, einnig fjórir talsins. Má þar nefna „Heimkoman til fslands“, eftir aldarfjórðungs útivist, og „Deil- an um Palestínu", sem birtist í þessu riti fyrir skemmstu. Þá koma þrjú snjöll þjóðræknis- erindi, og í fimmta kasti þrjár Stól- ræður, hákristilegar, eins og vera ber. Að lokum er ferðasagan, „Ævin- týr í átján löndum“, sem kom í smá- skömmtum hér í blaðinu. Er hún fullur helmingur bókarinnar og bæði fróðleg og víða skemmtileg. Þess verður að geta, að þeir prest- arnir, séra Bragi Friðriksson og séra Benjamín Kristjánsson, sáu um efn- isval bókarinnar, því meira lá víst fyrir en útgefandi treysti sér til að prenta, svo hún yrði ekki of stór. Og kem ég þá að því atriði, sem ávallt hefir verið mér þyrnir í aug- um, en það er þegar einstakir menn taka sér það bessaleyfi að ráða úr-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.