Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 106

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Page 106
88 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA haga og markvísa lýsingu á kjarnanum í þeirri baráttu, sem Grímseyingar háðu öldum saman, er verður um leið tákn- mynd af baráttu hinnar íslenzku þjóðar fyrir tilveru sinni við hin andvígustu kjör öld eftir öld: En haldið við sálarlífs sumri um sólhvörfin döprust og lengst. Þetta er hið allra aðdáunarverðasta í sögu þjóðar vorrar, að hún lét ekki bug- ast, hvernig sem á móti blés, hélt eigi aðeins áfram að vera til sem þjóð, en hélt vakandi sjálfstæðisanda sínum og lifði andlega frjósömu menningarlífi, misjafnlega blómlegu að vísu, þrátt fyrir allt. Það er þetta, sem gerir sögu fá- mennrar settþjóðar vorrar því dásam- legri og um margt lærdómsríkari í mín- um augum, því betur, sem ég kynni mér þá sögu, og reyni eftir beztu getu að lesa hana sem réttast í ljósi ferils og reynslu annarra stærri þjóða. f hinum fagra og tilþrifamikla kvæða- flokki sínum, Björn á Reyðarfelli, lýsir Jón Magnússon einyrkjanum, sem berst sinni baráttu með frábærlegum hetju- skap, á þessa leið: Mér fannst hann vera ímynd þeirrar þjóðar, sem þúsund ára raunaferil tróð og dauðaplágum varðist gadds og glóðar, en geymdi alltaf lífs síns dýrsta sjóð. — Því gat ei brostið ættarstofninn sterki, þótt stríðir vindar græfu aldahöf, að fólk, sem tignar trúmennskuna í verki, það tendrar eilíf blys á sinni gröf. Skáldið bregður hér birtu á það grund- vallaratriði, hvers vegna þjóð vorri tókst að standa af sér storma aldanna og ganga sigrandi af hólmi úr aldalangri baráttu sinni. Það var trúnaðurinn við hið bezta í erfðum hennar og hið göfugasta í henni sjálfri, sem bar hana fram til sig- urs. Þennan sannleika er oss gott að bera í minni, enda er hjartað í allri vorri þjóðræknisviðleitni sú sannfæring, að varðveizla og ávöxtun hins bezta í ættar- og menningarerfðum vorum sé bæði mannbætandi fyrir oss sjálf og geri oss að sama skapi vökulli og gjöfulli þegna vors nýja lands, menningarlega talað. Og vor íslenzka arfleifð er mörgum þáttum ofin, gömul og ný; við hana eru ávallt að bætast nýjar gersemar á sviði bókmennta og lista. Ég nefni sem dæmi nýútkomna kvæðabók Davíðs Stefáns- sonar frá Fagraskógi, f dögun, þar sem hvert kvæðið er öðru snjallara og feg- urra, þrungið speki og mannkærleika. Það tekur bæði sérstaklega til íslenzku þjóðarinnar og talar til vor vestur-ís- lenzkra þjóðræknismanna og kvenna þetta erindi úr snilldarkvæðinu „Óður til lífsins“: Vor jörð hefur átt og alið ættir, sem klifu fell og tind. Því vísa þær öðrum veginn að vizkunnar dýpstu lind. Enn getur nútíð notið náðar og fræðslu hjá liðinni öld. Drauminn um vorið vekja vetrarins stjörnukvöld. „Enginn stöðvar tímans þunga nið,“ segir Davíð einnig í einu af sínum eldri merkiskvæðum. Enn á ný hefir hrað- fleygur straumur hans borið frá oss yfir móðuna miklu stóran hóp ágætra fé- lagssystkina vorra, er vér kveðjum með hlýjum huga, virðingu og þökk fyrir samfylgdina og traustan stuðning .við málstað félags vors, en þau eru þessi samkvæmt upplýsingum, sem fjármála- ritari, Guðmann Levy, hefir látið mér í té: Dr. Þorkell Jóhannesson háskólarektor, Reykjavík, heiðursfélagi; Ragnar Á. Stefánsson, Winnipeg, skjalavörður fé- lagsins; Daniel J. Lindal, Lundar; Árni Brandson, Hnausum; Hildibrandur Hildi- brandon, Hnausum; prófessor Sigurður Jónsson, Chapel Hill, North Carolina; Guðmundur A. Stefánsson, Winnipeg; Miss Elín Hall, Winnipeg; Mrs. J. B. Skaptason, Winnipeg; Hjálmar Gíslason, Winnipeg; Miss Friðmunda Christie, Winnipeg; Mrs. Ingibjörg Butler, Winni- peg; Thorvaldur Pétursson, Toronto; Guðmundur B. Magnússon, Gimli; Mrs. John Stevens, Gimli; Hjörtur T. Hjalta- lín, Mountain, oftsinnis forseti deildar- innar ,,Báran“; John H. Johnson, Moun- tain; Steini Goodman, Milton; Mrs. Sig- urbjörg Johnson, Selkirk; Mrs. Ásta Sveinsson, Selkirk, og Mrs. Thora Aust- mann, Gimli. Um leið og vér vottum aðstandendum þessara_ horfnu félagssystkina úr hópn- um djúpa hluttekningu vora, skulum vér minnast þeirra með því að rísa úr sætum. En lífið heldur áfram, og oss, sem uppi stöndum, ber að halda merkinu á lofti eftir mætti, þótt á brattann sé að sækja. Það hefir stjórnarnefnd félagsins leit- azt við að gera á liðnu starfsári. Á all- mörgum fundum, og utan þeirra, hefir hún fjallað um þau mál, sem síðasta þjóðræknisþing fól henni í hendur, og jafnframt haft til umræðu og fram- kvæmda ýmis önnur málefni. Samnefnd- arfólki mínu þakka ég nú sem áður ágæta samvinnu. Rennum því næst sjón- um yfir starfsárið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.