Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 112
94
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
valda því dauðsföll og burtflutningar
fólks til betri staða eins og „Strandar-
innar“. Þangað fluttu þau dr. Sveinn
Björnson læknir og frú hans, Marja, í
fyrra vor. Beggja söknum við, ekki sízt
frúarinnar, sem var í stjórnamefnd
deildarinnar.
Ekki verður þeirra allra getið, sem
fallið hafa frá á árinu og við söknum
úr okkar fámenna hópi. Fárra mun þó
meir saknað en Elínar Hall og Guð-
mundar Stefánssonar. Bæði höfðu unnið
deildinni mikið og gott starf um fjölda
ára.
Á ársfundinum, sem haldinn var 30.
jan. s. 1., varð mikil breyting á stjórnar-
nefndinni og í sumum tilfellum að
minnsta kosti til bóta. Nefndin er þann-
ig skipuð: Forseti próf. Haraldur Bessa-
son, varaforseti Jakob Kristjánsson, rit-
ari Heimir Thorgrímsson, gjaldkeri
Jochum Ásgeirsson, fjármálaritari Gunn-
ar Baldwinson, vararitari Benedikt Ól-
afsson, fjármálaritari Guðmann Levy,
varagjaldkeri Guðbjörg Sigurdson.
Endurskoðendur: Grettir L. Johannson
og Jóhann Th. Beck.
Frón óskar Þjóðræknisfélaginu allra
heilla og mun, eins og að undanförnu,
styrkja það eftir mætti til allra mála,
sem þjóðrækninni mega að gagni koma.
Virðingarfyllst,
H. Thorgrimson
ritari.
Flutningsmaður gerði að tillögu sinni,
að skýrslan yrði samþykkt, og var það
þegar gert.
Frú Kristín Thorsteinsson flutti árs-
skýrslu þjóðræknisdeildarinnar að Gimli.
Ársskýrsla þjóSræknisdeildarinnar
„Gimli" 1960
Á síðasta ári hafa verið haldnir þrír
starfs- og skemmtifundir, en stjórnar-
nefndarfundir hafa verið haldnir, þegar
þörf gerðist. Þann 18. maí var samþykkt
á stjórnarnefndarfundi að selja 40 bæk-
ur af happdrættismiðum og halda ís-
lenzka samkomu 19. ágúst. Eftir sam-
komuna sendi deildin Lögbergi-Heims-
kringlu tvö hundruð dollara gjöf. Þann
5. ágúst stóð deildin fyrir sýningu á
eftirprentunum íslenzkra málverka, sem
séra Bragi Friðriksson ferðaðist með um
byggðir íslendinga. Ungmennasöngflokk-
ur deildarinnar hefir sungið við 7 mis-
munandi tækifæri, m. a. á fslendinga-
deginum að Gimli síðast liðið sumar og
í samsæti því, sem haldið var til heiðurs
biskupi fslands, herra Sigurbirni Ein-
arssyni, er hann kom til Gimli s. 1. vor.
Á árinu var Jóhann Sæmundsson kjör-
inn heiðursfélagi deildarinnar með þökk
fyrir gott samstarf í þjóðræknismálum.
Tvö félagssystkini okkar hafa látizt á
árinu, þ. e. Guðmundur Björgvin Magn-
ússon d. 23. júní 1960 og Mrs. Ragn-
hildur Stevens d. 5. jan. 1961. Við þökk-
um þeim samfylgdina og vottum skyld-
mennum þeirra djúpa samúð.
Fjárhagsskýrsla sýndi inntektir,
sem námu ....................... $522.29
Útgjöld ........................... 355.90
Á banka 16. jan. 1961 .......... 166.39
Deildin telur 95 meðlimi.
Embættismenn deildarinnar eru sem
hér segir:
Forseti Mrs. Kristín Thorsteinsson,
varaforseti Mr. J. B. Johnson, ritari Mr.
Ingólfur N. Bjarnason, vararitari Mrs.
I. N. Bjarnason, gjaldkeri Mr. W. J.
Arnason, varagjaldkeri Mrs. W. J. Arna-
son, fjármálaritari Mr. Baldur Peterson,
varafjármálaritari Mr. Hjálmur V. Thor-
steinsson, skjalavörður Mrs. Helgi Stev-
ens.
Kær kveðja til þingsins.
Gimli, Man., 19. febr. 1961,
I. N. Bjarnason
ritari.
Viðbót við skýrslu Gimlideildar:
Á almennum deildarfundi, sem hald-
inn var 7. febrúar s. 1., var fulltrúum
falið að tilkynna Þjóðræknisfélaginu, að
Gimli-deild hafi ekki ástæður til að
styrkja byggingarmálið.
Flutningskona gerði að tillögu sinni,
að skýrslan yrði viðtekin. Margir studdu,
og var tillagan samþykkt. Ritari gerði
þessu næst tillögu um fundarfrestun
þangað til kl. 2 e. h. Var sú tillaga studd
og samþykkt.
Annar fundur
hófst kl. 2 e .h. mánud. 20. febrúar.
Fundargerð síðasta fundar var lesin upp
og samþykkt.
Dr. Beck gat þess, að Jón Samson,
fyrrum lögregluþjónn í Winnipeg, hefði
látizt rétt í þingbyrjun. Þinggestir vott-
uðu hinum látna virðingu sína með því
að rísa úr sætum. Dr. Valdimar J. Ey-
lands lagði til, að ritara yrði falið að
senda aðstandendum Jóns heitins sam-
úðarkveðjur þingsins og Þjóðræknisfé-
lagsins. Árni Sigurðsson studdi þá til-
lögu, og var hún síðan samþykkt.
Frú Herdís Eiríksson flutti þessu næst
ársskýrslu þjóðræknisdeildarinnar „Esj-
an“ í Árborg.
Ársskýrsla deildarinnar
„Esjan" í Árborg
Meðlimatala deildarinnar er 124 og er
það þrjátíu og tveimur fleira en á síðast
liðnu ári.