Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Page 34
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 201234
reynsla þriggJa grUnnskóla af fJölmenningarlegU starfi
aðfErð
Í rannsókninni sem hér er greint frá var leitað svara við því hvað í starfsháttum og
skipulagi þriggja skóla megi ætla að stuðli að farsælu fjölmenningarlegu skólastarfi.
Rannsóknin var gerð í apríl til júní 2010 og beindist að því draga fram það sem hefur
reynst best í skólastarfi með nemendum af erlendum uppruna. Markmiðið var að
móta tillögur að áherslum við skipulag fjölmenningarlegs skólastarfs sem byggðust
á því sem best hefur reynst. Skólarnir voru valdir í ljósi sérstöðu sinnar og þekkingar
á viðfangsefni rannsóknarinnar. Samkvæmt Ársskýrslu Menntasviðs Reykjavíkurborgar
2008 voru Austurbæjarskóli og Fellaskóli með flesta nemendur sem fá kennslu í
íslensku sem öðru máli (Menntasvið Reykjavíkurborgar, 2009). Ákveðið var að einn
skólanna yrði erlendur, með lengri reynslu af fjölmenningu en um er að ræða hér á
landi. Lamptonskóli í London hefur skilað góðum árangri í opinberum könnunum og
því áhugavert að skoða þau gildi, skipulag og starfshætti sem þar eru við lýði. Hér á
eftir verður gerð stutt grein fyrir skólunum þremur.
Þátttökuskólar
• Austurbæjarskóli hefur langa reynslu af fjölmenningarlegu skólastarfi. Í skólanum
var starfrækt móttökudeild fyrir nemendur af erlendum uppruna frá árinu 1994.
Eftir að móttökudeildir voru lagðar niður hefur verið starfrækt nýbúadeild við
skólann þar sem nemendur af erlendum uppruna hafa fengið kennslu í íslensku og
stuðning við annað nám. Skólinn vann að þróunarverkefninu fjölmenningarlegur
grunnskóli frá árinu 2001. Markmið verkefnisins var að þróa þekkingu og reynslu
innan skólakerfisins til að takast á við þá fjölbreytni sem einkennir nútímasamfélag.
Skólaárið 2009–2010 voru nemendur af erlendum uppruna um 20% af nemendum
skólans. Fram kemur í skýrslu um heildarmat Menntasviðs Reykjavíkurborgar í
Austurbæjarskóla 2010 að meðalárangur nemenda skólans á samræmdum prófum,
í læsiskönnunum og stærðfræðiskimun er yfir landsmeðaltali og í flestum tilfellum
yfir meðaltali borgarinnar. Líðan nemenda í kennslustundum er yfir meðaltali allra
grunnskóla á landinu (Austurbæjarskóli, 2010).
• Fellaskóli hefur einnig reynslu af fjölmenningarlegu skólastarfi. Á stuttum tíma
fjölgaði börnum af erlendum uppruna mikið. Árið 2003 fengu 7% nemenda í Fella-
skóla kennslu í íslensku sem öðru máli og árið 2008 voru þeir orðnir um 21%
(Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, 2004; Menntasvið Reykjavíkurborgar, 2009). Skóla-
árið 2009–2010 voru um 44% nemenda af erlendum uppruna í skólanum og hafði
fjórðungur þeirra búið hér á landi skemur en fjögur ár. Í sjálfsmatsskýrslu skólans
kemur fram að yfir 90% foreldra telja að barninu sínu líði almennt vel í skólanum.
Skólinn fékk hvatningarverðlaun Menntaráðs Reykjavíkurborgar vorið 2009 fyrir
Foreldranámskeið fyrir erlenda foreldra (Fellaskóli, 2010). Í Fellaskóla var ekki
starfrækt móttökudeild en slík deild var í hverfinu. Í skólanum hefur verið nýbúa-
ver í nokkur ár. Með auknum fjölda nemenda af erlendum uppruna hefur skólinn
unnið þróunarverkefni sem stuðla að því að nemendur geti verið sem virkastir
þátttakendur í bekk með innlendum jafnöldrum en fengið stuðning við námið og
íslenskuna í nýbúaveri.