Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Page 73
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 2012 73
friðriK diego
MenntavíSindaSviði HáSKóla íSlandS
KriStín Halla JónSdóttir
MenntavíSindaSviði HáSKóla íSlandS
Undirbúningur verðandi stærðfræði-
kennara í ljósi hugtakaskilnings og
hugsmíðahyggju
Í greininni er fjallað um rannsókn á hugtakaskilningi verðandi stærðfræðikennara . Hugtaka-
skilningur og röksemdafærsla eru undirstöðuþættir í stærðfræðilegri hæfni og samkvæmt
hugsmíðahyggju er aðalhlutverk stærðfræðikennara að skapa aðstæður sem ýta undir það að
hugtakaskilningur nemenda þeirra mótist . Markmið rannsóknarinnar var að kanna hugtaka-
skilning og stærðfræðilega ígrundun þátttakenda til að leggja mat á það hvort undirbún-
ingur í fræðilegri stærðfræði í kennaranámi tæki nægilegt mið af því að undirbúa nemendur
undir að starfa af fagmennsku í anda hugsmíðahyggju . Þátttakendur voru tólf kennara-
nemar, allir á stærðfræðikjörsviði . Gagnaöflun fólst í að leggja fyrir þátttakendur verkefni
af nokkrum sviðum stærðfræðinnar og greina glímu þeirra við viðfangsefnin bæði með
umræðum og yfirferð á skriflegum úrlausnum . Niðurstöður benda til þess að í kennara-
námi þurfi að leggja meiri áherslu á að styðja kennaranema til að fóta sig vel í hugtakaheimi
stærðfræðinnar og í heimi formlegrar stærðfræði þar sem röksemdafærsla skipar öndvegi .
Efnisorð: Stærðfræðilegur undirbúningur, hugtakaskilningur, hugsmíðahyggja, starfs-
hæfni, gagnrýnin og greinandi hugsun, þrautalausnir
inngangur
Á undanförnum árum hefur hugmyndafræði sem kallast hugsmíðahyggja (e. con-
structivism) notið aukinnar hylli og hún verið talin mikilvæg í stærðfræðikennslu.
Samkvæmt henni eiga nemendur að byggja sjálfir upp skilning sinn á sérhverju stærð-
fræðilegu hugtaki og aðalhlutverk kennarans er ekki að segja frá, útskýra eða á annan
hátt að reyna að yfirfæra stærðfræðiþekkingu til nemandans. Kennarinn á að skapa
aðstæður sem ýta undir það að hugtakaskilningur nemandans mótist skref fyrir skref
og þá er nauðsynlegt að hann fylgist með nemandanum við námið, ræði við hann og
Uppeldi og menntun
21. árgangur 1. hefti 2012