Hugur - 01.01.2008, Side 169

Hugur - 01.01.2008, Side 169
Sápukúlur tískunnar" 167 Nú hafa lesendur afar óh'kar forsendur, allt eftir þeirri þjálíun sem þeir hafa hlotið, til að lesa fræðilega texta. Það er því fráleitt að tala um „lesendur" sem einsleitan hóp líkt og Einar Már gerir. Oháð því hvaða álit maður hefur á þeirri tegund heimspeki sem Derrida iðkar er erfitt að ímynda sér Foucault eða aðra þjálfaða fræðimenn gefast upp á lestri rits eftir Derrida vegna þess að það var svo erfitt aflestrar. Auðvitað skilja innvígðir texta hver annars. Derrida er ekki í hópi auð- lesnustu heimspekinga en sú hugmynd er fráleit að hugsuðir séu almennt með- vitað að reyna að skrifa texta sem óinnvígðir eigi erfitt með að lesa - ekki frekar en að Einar Már sé meðvitað að sletta óþýddri latínu inn í textann (166) til þess að gera lesanda sem hefur ekki kunnáttu á því sviði erfitt fyrir. Eitt af því sem vefst fyrir Einari Má hjá meintum talsmanni formgerðarhyggj- unnar er þetta: „I ritum sínum á Derrida til að skrifa orð en krossa jafnframt yfir það og meinar hann þá með þessu að það sé alls ekki rétta orðið, en ekkert annað orð sé til, þetta sé í rauninni alls ekki hægt að segja.“ (125) Sá sem eitthvað þekkir til meginlandsheimspeki myndi mögulega kenna þetta við svonefnda „neikvæða guðfræði" og benda á að þetta stíleinkenni Derrida hafi ekkert með formgerð- arhyggju að gera heldur sé það komið frá þeim heimspekingi sem hafði einna mest áhrif á hann, Heidegger.661 þokkabót hafa Heidegger og Nietzsche lítið með formgerðarhyggju að gera eins og Einar Már virðist halda: Samkvæmt orðanna hljóðan hefði þessi formgerðarhyggja átt að vera sprottin upp úr málvísindum, enda voru frumkvöðlar hennar gjarnir á að flagga slíkum fræðum, en hún var eigi að síður greinilega undir sterkum áhrifum frá Heidegger og frá Nietzsche og mótaðist fyrst og fremst af þeim. (115) Fyrirmynd formgerðarhyggjunnar voru málvísindi Saussure. Margir þeirra heim- spekinga sem telja mætti til póststrúktúraUsma studdust við heimspeki Nietzsches en það væri fulllangt gengið að fullyrða að Heidegger væri þar sérstakur áhrifa- valdur þótt segja megi Derrida lærisvein hans. Pierre Bourdieu, sem Einar Már telur sömuleiðis til formgerðarhyggju, varð fyrir takmörkuðum áhrifum frá þýsku heimspekingunum tveimur. Horfa mætti framhjá því að Derrida getur, ólíkt Bourdieu á yngri árum, ekki talist formgerðarhyggjusinni. Telja mætti hugsuðina tvo þess í stað póststrúktúralista að því leyti sem þeir gagnrýna Lévi-Strauss. Sú gagnrýni Bourdieus að Lévi-Strauss horfi framhjá stjórnlist og félagsmótun 66 Einar Már segir að bent hafi verið „á að einn kaflinn í riti Foucaults Ordin og hlutirnir sé með öllu óskiljanlegur ef menn eru ekki áður búnir að kynna sér lítt þekkt rit eftir Heidegger, sem hann vísar að sjálfsögðu ekki til.“ (127) Nú er reyndin sú að enginn kafli Les mots et le choses (1966) er nálægt því að vera óskiljanlegur, jafnvel þótt lesandinn hafi ekki lesið allan Heidegger. Eftir að hafa skammað Foucault fyrir að vísa ekki í ritið er „vísindamaður einn“ kynntur til sögunnar án þess að Einar Már nafngreini fræðimanninn. Þeir sem þekkja til vita að um er að ræða eðlisfræðiprófessorinn Alan Sokal sem Sokal-málið (1996) svonefnda er kennt við.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.