Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 20
fræðingur. í langflestum tilvikum var um að ræða fólk í BS-námi í verkfræði við Háskóla
Islands eða Háskólann í Reykjavík sem velti fyrir sér framhaldsnámi í ýmsum löndum,
en einnig bárust nokkrar fyrirspurnir frá öðrum.
Áskorun til stjórnar VFÍ um að efla ungfélagaaðild
Stjórn VFI fékk á árinu ítrekun á erindi menntamálanefndar um mikilvægi ungfélaga-
aðildar. Því var beint til stjórnarinnar að hún gengist fyrir breytingu á inntökureglum,
þannig að verkfræðinemar gætu orðið ungfélagar strax að loknu einu námsári (60 ECTS-
einingum) í stað tveggja nú. Ennfremur að efla kynningu á ungfélagaaðild að VFÍ, bæði
í HR og í HÍ. Nefndin sér það sem æskilegt markmið að öllum verkfræðinemum við báða
skólana þyki sjálfsagt að gerast ungfélagar í VFÍ að loknu fyrsta námsárinu.
Endurskoðun á stefnu VFÍI menntamálum
Að beiðni stjórnar VFI hefur nefndin hafið endurskoðun á stefnu VFI í menntamálum.
Núverandi stefna er frá 1994, en var endurskoðuð að hluta árið 2003. Ætlunin er að þessi
nýja endurskoðun verði að einhverju leyti gerð í samráði við menntanefnd TFÍ, og æski-
legt væri að félögin standi saman að nýrri menntastefnu verkfræðinga og tæknifræðinga.
Steindór Guðmundsson formaður
Siðanefnd VFÍ
Siðanefnd hélt níu fundi á starfsárinu. Nefndin fjallaði um eitt kærumál og eitt mál
óformlega. Auk þess kom nefndin að málþingi VFI um siðferðislegar skyldur verk-
fræðinga og var formaður nefndarinnar einn framsögumanna. Málþingið sló upptaktinn
í umræðu um siðareglur félagsins og endurskoðun á þeim.
Siðanefnd er skipuð fimm fyrrverandi formönnum VFÍ. Siðanefnd starfsársins var skipuð
eftirtöldum mönnum: Guðmundur G. Þórarinsson formaður, Vífill Oddsson, Karl Ómar
Jónsson, Pétur Stefánsson og Hákon Ólafsson.
I kærumálinu, sem nefnt var hér að framan, tók Halldór Þór Halldórsson sæti í nefndinni
í stað Péturs Stefánssonar sem var vanhæfur.
Guðmundur G. Þórarinsson formaður
Gerðardómur VFÍ
Fyrir nokkrum árum skipaði stjórn Verkfræðingafélags Islands nefnd til að yfirfara reglur
gerðardóms VFÍ og gera tillögur um á hvern hátt megi kynna hann betur. í nefndina voru
skipuð Kolbeinn Kolbeinsson formaður, Viðar Ólafsson, Óskar Valdimarsson, Hjörtur
Torfason hrl. og Kristrún Heimisdóttir (fulltrúi SI).
Nefndin vann ötullega að endurskoðun reglna gerðardómsins í ljósi þess að hann hefur
lítið sem ekkert verið nýttur á undanförnum árum. Misjafnar skoðanir hafa verið uppi
um hvaða breytingar beri að gera á reglum dómsins. Nefndin lauk störfum í nóvember-
mánuði 2009 og skilaði ítarlegri skýrslu sem ber yfirskriftina Sáttaleiðir í mannvirkjagerð
og framtíð Gerðardóms Verkfræðingafélags íslands. Markmið niðurstöðu nefndarinnar
er að mæta þörfinni á mannvirkjamarkaði fyrir skjóta og vandaða úrlausn deilumála og
efla núverandi kerfi. Skýrsluna má nálgast á heimasíðu VFÍ eða á skrifstofu félagsins.
Löggildingarnefnd
Löggildingarnefnd VFÍ skipa Hallgrímur Sigurðsson, Rúnar G. Sigmarsson og Tómas R.
Hansson. Nefndin hélt fimm fundi á starfsárinu og voru teknar fyrir átta umsóknir um
1 8
Arbók VFl/TFl 2010