Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Síða 86
/
35
30
25
20
15
10
5
0
\_____
Greiddar stundir er samanlagður fjöldi greiddra stunda á viku í fullu starfi hvort heldur
sem er í dag-, vakta- eða yfirvinnu. Greiddar stundir voru 43,1 að meðaltali árið 2009,
44,0 hjá körlum og 41,3 hjá konum. Greiddar stundir hafa dregist nokkuð saman frá árinu
2008 og þá sérstaklega hjá körlum. Karlar fá nú að jafnaði greiddar 2,7 stundum meira en
konur, en samsvarandi tala var 4,6 árið 2008.
Eins og sjá má á myndunum hér að framan er miðgildi allra launahugtaka lægra en
meðaltal þeirra. Það má meðal annars skýra með því að kjarasamningar tryggja
ákveðin lágmarkskjör en þeir kveða ekki á um hámarkskjör. Því eru fleiri útgildi til
hækkunar meðaltals en lækkunar.
Á mynd hér til hliðar má sjá dreifingu
reglulegra launa, reglulegra heildarlauna
og heildarlauna hjá fullvinnandi launa-
mönnum árið 2009. Um 63% launa-
manna eru með regluleg laun á bilinu
175-375 þúsund krónur á mánuði, 58%
þeirra eru með regluleg heildarlaun á sama
bili og helmingur er með heildarlaun á
þessu bili,
Regluleg laun launamanna í hæsta fjórðungi
voru 3,2 sinnum hærri regluleg laun launa-
manna í lægsta fjórðungi. Árið 2008 var
samsvarandi tala 3,4. Þetta má sjá þegar
fjórðungastuðull launa er skoðaður. Fjórð-
ungastuðull heildarlauna var 2,8 árið 2009
og hafði lækkað úr 3,3 árið áður. Þetta gefur
vísbendingu um að dreifing launa á al-
mennum vinnumarkaði sé að minnka.
Þrátt fyrir að gagnasafninu, sem laun á almennum vinnumarkaði byggja á, sé ekki haldið
föstu á milli ára má draga almennar ályktanir um breytingar á milli ára. Þannig hafa
regluleg laun hækkað um 3% á almennum vinnumarkaði í heild. Hjá fullvinnandi launa-
mönnum hafa regluleg heildarlaun staðið í stað en heildarlaun hafa dregist saman um
7%. Þá hefur heildarfjöldi greiddra stunda dregist saman um tæp 4%. Samsetning gagna-
safnsins hefur einnig breyst nokkuð með tilliti til atvinnugreina.
Áhrifa af breyttri samsetningu vinnumarkaðarins gætir í gagnasafninu. Þannig dregst
vægi byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar saman úr 14% í 8% frá fyrra ári en vægi
samgangna og flutninga og verslunar og viðgerðarþjónustu hefur aukist um 3-4 prós-
entustig. Samdráttur í efnahagslífinu endurspeglast einnig í breyttri samsetningu innan
einstakra atvinnugreina. Þannig fækkaði verkafólki í fyrrgreindri atvinnugrein frá því að
vera 49% af vegnum heildarfjölda í greininni árið 2008 niður í 37% árið 2009. Þá jókst
vægi stjórnenda á sama tíma úr 3% í 6%. Þessar breytingar á samsetningu starfsstétta
skýra fyrst og fremst þá launahækkun sem var í byggingariðnaði og mannvirkjagerð á
milli ára þar sem regluleg laun hækkuðu um 12,5%.
Laun fullvinnandi eftir starfsstétt
Arið 2009 voru stjórnendur með hæst laun allra starfsstétta. Regluleg laun þeirra voru
676 þúsund krónur að meðaltali á mánuði, regluleg heildarlaun 684 þúsund krónur og
heildarlaun 749 þúsund krónur. Laun voru að jafnaði lægst hjá verkafólki, þar sem reglu-
leg laun voru 238 þúsund krónur að meðaltali, regluleg heildarlaun voru 294 þúsund
krónur og heildarlaun 320 þúsund krónur. Greiddar stundir voru flestar hjá verkafólki
eða 46,5 stundir að meðaltali á viku.
8 4
Arbók VFl/TFl 2010