Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 154
sem stýrist af birtu utan ganga. Ennfremur er aukin lýsing
í öllum neyðarútskotum og öll skilti í göngum eru upplýst.
Farsímasamband er í göngunum og einnig Tetra fjarskipta-
kerfi og ljósleiðari. Þrjár spennistöðvar eru í göngunum og
sérstök stjórnhús utan á vegskálum í Siglufirði og Ólafs-
firði. 33 kV háspennustrengur var lagður um göngin fyrir
dreifikerfi Rarik. Heildarlengd allra raflagna í göngunum
er um 185 km og ídráttarrör eru um 71 km að lengd. Öflugt
stýrikerfi stjórnar öryggisbúnaði og fylgst verður með
umferð og ástandi í göngunum af skjám í vaktstöðvum
Vegagerðarinnar. Sérstakir neyðarstjórnskápar eru einnig
utan við hvern munna þar sem viðbragðsaðilar geta m.a.
stjórnað lokunarbómum og loftræsingu í göngum. Veður-
stöð verður í Héðinsfirði.
Vegalengd milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um göngin er
einungis um 15 km og stytta göngin vegalengdina milli
þessara þéttbýliskjarna Fjallabyggðar um 47 km miðað við
sumarleið um Lágheiði en um 219 km miðað við leið um
Öxnadalsheiði. Heildarkostnaður við framkvæmdina alH
er um 12 milljarðar króna.
Vegagerðin sem er verkkaupi hafði umsjón með undirbúningi og hönnun ganganna-
Sérstakur stýrihópur verkkaupa var skipaður fyrir þetta verk og hann skipa, Birgir
Guðmundsson svæðisstjóri Norðaustursvæðis, sem er formaður, Rögnvaldur
Gunnarsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar, og Gunnar H-
Guðmundsson, umdæmisstjóri á Sauðárkróki.
Fulltrúi verkkaupa við verkið var Sigurður Oddsson, framkvæmdadeild Norðaustur-
svæðis, frá byrjun fram til 2008, en eftir það Jón Magnússon, framkvæmdadeild
Norðvestursvæðis. Guðmundur Heiðreksson, yfirmaður áætlana og hönnunarkaupa
Norðaustursvæðis og Gísli Eiríksson yfirmaður jarðgangadeildar fóru með umsjón hönn-
unar en hönnuðir voru:
Mannvit, Reykjavík og Reyðarfirði, hönnun ganga.
Vegagerðin, hönnun brúa í Siglufirði og Héðinsfirði.
Verkfræðistofa Norðurlands, Akureyri, hönnun vega og gerð mælinets.
Verkís, Akureyri, hönnun vegskála og brúar á Ólafsfjarðarós.
Raftákn, Akureyri, rafhönnun.
Teikn á lofti, Akureyri, landmótun og hönnun áningarstaða
Verkfræðistofa Siglufjarðar, hönnim snjóflóðavarnargarðs.
Jarðfræðistofan, Reykjavík, annaðist jarðfræðirannsóknir.
GeoTek ehf. annaðist umsjón framkvæmda og eftirlit. Umsjónarmaður var Bjöm A-
Harðarson og aðstoðarmaður hans og staðgengill var Oddur Sigurðsson. Verktaki var
tékkneska fyrirtækið Metrostav a.s. og Háfell ehf. Verkefnisstjóri Háfells var fyrst
Magnús Jónsson, síðan Guðmundur Björnsson og loks Valgeir Bergmann. Verkefnis-
stjórar gangavinnu að hálfu Metrostav voru David Cyro og Ermin Stehlik.
Helstu undirverktakar BM Vallá, Rafmenn, Hlaðbær Colas, Vatnsklæðningar og Bás.
Séra SigurðurÆgisson og séra
Sigríður Munda Jónsdóttir flytja
blessunarorð i Héðinsfirði.
Helstu aðilar verksins
1 5 2
Arbók VFÍ/TFÍ 201 0