Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 186
Þannig er t.d. spuming hvort tveggja metra há girðing umhverfis flugvöll sé nægjanleg
eða hvort girða þurfi flugvöll eins og um fangelsi sé að ræða. Það er alveg ljóst að fólk
með einlægan brotavilja finnur alltaf leið til að fremja afbrot, en er það réttlætanlegt í
öllum tilfellum að kostnaður mótvægisaðgerða miðist við það? Þessari erfiðu spurningu
þurfa stjórnendur að svara. Þannig er SMS kerfisbundin nálgun við stjórnun öryggis sem
inniheldur skipulag og ábyrgð sem styður við stjórnkerfið og nauðsynlega verkferla.
Ferlar gæðastjórnunarkerfis byggja á kerfisbundinni nálgun og henta þar af leiðandi vel
sem stjórntæki og verkfæri fyrir öryggisstjórnunarkerfi. Meginmunur er hins vegar að
allar ákvarðanir em teknar út frá áhættumati, en í gæðastjórnunarkerfum eru væntingat
viðskiptavinarins ávallt miðdepill ákvarðana. Því heyrast iðulega raddir sem segja að
þetta tvennt fari ekki saman. En ef við lítum á samanburð á ISO 9001(Gæðastjórnun) og
skilgreiningu á SMS (Öryggisstjórnun) krefjast bæði eftirfarandi þátta:
• Kerfisbundna nálgun sem skilgreinir ábyrgð og verkferla
• Eftirlit og mælingar
• Skuldbindingu stjórnenda og starfsmanna
• Stöðugar umbætur
Þannig krefjast bæði öryggis- og gæðastjórnunarkerfi nákvæmni, að þau séu mælanleg
og endurtakanleg.
Öryggis- og gæðastjórnunarkerfi Isavia
Isavia hefur innleitt öryggis- og gæðastjórnunarkerfi (QSMS) sem byggir á aðferðafræði
gæðastjórnunar (ISO 9001) og styðst við fjóra máttarstólpa (the four pillars of SMS):
P1 Stefna og skipitlag: Setja fram öryggisstefnu, skilgreina verkferla, skipulag og
ábyrgð þannig að flugöryggi sé framar öðmm þáttum og ávallt sé haft að leiðarljósi
að lágmarka áhættu í öllum rekstri fyrirtækis.
P2 Áhættustjórnun: Hönnun kerfis sé miðuð við kerfisbundna nálgun, skilgreini
öryggisviðmið og tryggi að aðilar, fyrirtæki eða stofnanir sem tengjast rekstri og
þjónustu fyrirtækisins þekki öryggisviðmið þess. Settir séu öryggismælikvarðar til að
fyigjast með að öryggisviðmið séu uppfyllt og að framkvæmt sé áhættumat með
tilheyrandi mótvægisaðgerðum þegar það á við.
P3 Tryggja örtjggi: Þegar skipulag, verkferlar og ábyrgð hafa verið skilgreind þarf að
sjá til þess að þau séu rýnd reglulega til að tryggja að markmiðum fyrirtækisins sé
náð. Stjórnunar- og ábyrgðarferlar þurfa að vera skilgreindir á öllum sviðum þannig
að ábyrgð hríslast niður skipuritið, allt frá forstjóra til almennra starfsmanna.
P4 Efla öryggi: Öryggi varðar alla er lykillinn í þessum máttarstólpa og spilar þar
öryggismenning stærsta hlutverkið. Á sama tíma er þetta mesta áskorun við innleið-
ingu stjómunarkerfa, sama hvort um er að ræða gæða-, öryggis- og/eða umhverfis-
stjórnunarkerfi. Þessu markmiði verður aldrei náð nema með skuldbindingu stjórn-
enda og að starfsmenn tilkynni það sem fer úrskeiðis eða gæti farið úrskeiðis (tilkynn-
ingakerfi aðgengilegt öllum). Þessar tilkynningar þarf að taka alvarlega, meta þær og
koma niðurstöðum á framfæri. En allt þetta hefur litla þýðingu ef því er ekki komið
til starfsmanna þannig að hægt sé að læra af því eða eins og Einstein sagði: „it is
insanity to continue doing the same thing over and over and expect the result to be
different."
1 8 4
Arbók VFl/TFl 2010