Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Blaðsíða 29
Stefnir]
1929 — 2.1 + 3.4...............= 5.5
1930 — 7.4 + 12.8 .............= 202
1931 — 8.2+ 3.5. . . . . . = 11.7
Samtals 37.4
Þessum greiðslujöfnuði hrakar
sem sé um eitthvað nálægt 37
milljónir frá ársbyrjun 1929 til
ársloka 1931.
Og á árinu, sem stjómin borg-
ar úr ríkissjóði 26 milljónir króna,
er hallinnn á greiðslujöfnuðin-
um við útlönd yfir 20 milljónir.
Óhagstæður greiðslujöfnuður
banka ætti æfinlega að vera
hverri stjórn viðvörun, og það
er viðvörun, sem kemur þegar í
stað. Á fyrsta mánuði ársins 1930
var orðið augljóst, að halli hafði
orðið á búskapnum 1929. En
stjórnin sá ekki, eða vildi ekki
sjá.
En þó að eg hafi nú hér verið
að tala um þetta, og sýna fram
á, að hægt var að sjá kreppuna
fyrir, þá á ieg ekki með því við
það, að neitt slíkt eigi að þurfa,
til þess að stjórn haldi vel og
gætilega á fé þess opinbera. Þó
að engin fjárkreppa hefði verið
sýnileg, eða þó að stjórnin væri
raunverulega svo glámskyggn á
tákn tímanna, að hún sæi þau
ekki, þá hefði hún ekki þurft
neitt annað, en þá ráðvendni og
samvizkusemi, sem hver maður
29
á að hafa, og þó einkum þeir, sem
fyrir miklu er trúað, til þess að
stýra slysalaust. En gáleysið verð-
ur náttúrlega því óafsakanlegra
og afleiðingar þess því hörmu-
legri, þegar svona fór, að einhver
þyngsta fjárkreppa var aðsteðj-
andi.
Það þyrfti í rauninni ekki að
segja meira en það, sem hér hef-
ir verið nefnt, til þess að allir
geti séð, að fjárkreppan, sem að
okkur sverfur nú, er að mjög
miklu leyti orsökuð af illri fjár-
málastjórn þess opinbera. En eg
vil vil nú samt leitast við að
draga þetta sérstaklega fram dá-
lítið meira.
Megin orsök hverrar fjár-
kreppu er framferði mannanna
sjálfra. Að vísu geta kreppur og
vandræði stafað af náttúruvið-
burðum og slíku, en það kemur
ekki þessu máli við. Hinar eigin-
legu fjárkreppur stafa af því,
hvernig menn haga sér. Hinn
mikli og voldugi drifkraftur, sem
keyrir menn áfram til fram-
kvæmda rekur menn í góðærinu
fram úr því, sem til heilla horfir.
Framleiðsla og allskonar rekstur
eykst stöðugt, og um stund virð-
ist allt vera komið á stöðuga
Hvaðan er fjárkreppan?