Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 35

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 35
Stefnir] Hvaðan er fjárkreppan? 35 Eg ætla nú að nema staðar með þessu. Eg ætla mér ekki að bera hér fram neinar tillögur um það, hvað gera skuli. Kreppan ber sína eigin hrossalækning í sér, fátækt- ina og baslið. Þegar kreppan er komin, keppast allir við að skera niður, og nauðsyn knýr til þess. En þó hygg eg, að þar verði að beita varúð engu síður en í óhóf- inu á góðu árunum. í blíðu og stríðu er betra að hafa einhverja stjórn á sér. En tilgangur minn með þessu erindi er sá, að reyna að finna upptök og orsakir þessara vand- ræða. Að vísu kynni einhver að segja, að lítið gagn sé að þeirri vizku eftir á. En því fer fjarri. Við megum eiga alveg víst, að það birtir upp eftir þetta él og syrtir svo að aftur. Eina gagnið, sem við getum nú haft af óvitaskap og illu ráðslagi stjórnarinnar er það, ef við gætum lært að forðast slíka menn framvegis í stjórnarsessi. Þá hefði þessi reynsla ekki orðið alveg til ónýtis. FÓLKSFJÖLDI RÍKJA. Það er ekki óhugsandi, að einhverj- um geti komið dálítið á óvart fólks- fjöldi sumra ríkja í veröldinni, — er ríkin eru talin með nýlendum og öllu saman. Sum smá-lönd braytast þá í stórveldi. Hér fer á eftir fólkstala í nokkrum ríkjum, og skal þess getið, að tölurnar eru ekki alveg nýjar (um 4—5 ára) en eiga að vera mjög áreiðanlegar, eftir því sem frekast er hægt að fá þær. Lang f jölmennust eru : 1. Brezka alríkið 444 milljónir 2. Kínaveldi 440 — Þá er langt hil, og svo verður röðin: 3. Rússncska ríkið 138 milljónir 4. Bandaríkin 117 — 5. Frakkland 100 — 6. Japan 82 — 7. Þýzkaland 60 — 8. Hollenzka ríkið 56 — 9. Ítalía 41 — 10. Brasilía 30 — 11. Pólland 27 — 12. Spánn Pámennust eru: 23 — 1. Páfaríkið með 600 íbúum 2. Audona —, 5000 — 3. Liehtenstein — 12000! — 4. San Marino — 13000 — 5. Monaco — 23000 — í samanburði við þessi ríki er Island stórveldi, með sínar 100 þúsundir og betur þó! 3

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.