Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 47
Stefnir]
Japanar í Mansjúríu.
47
Klnverskir rœningjar.
allar þessar nýju brautir tengja
nýja landshluta við járnbrautar-
kerfi Suður-Mansjúríubrautarinn-
ar og auka bæði flutning hennar og
gagn Japana af landinu. Þeir sem
þessu félagi stjórna, eru sann-
færðir um, að allt, sem gert er í
landinu, auki þess eigin ágóða, og
ýta því undir allt slíkt, hvaðan sem
það kemur. Þeir eru sannfærðir
um, að Japanar muni bera sigur
úr býtum, hver sem í hlut á.
Það eru ekki litlir hagsmunir,
sem Japanar hafa að gæta í Man-
sjúríu. Þeir eiga þar um 800
verksmiðjur og myllur, og stend-
ur í þeim geysileg fjárhæð, lík-
lega ekki langt frá þúsund milljón-
'um króna. Á þriðja hundrað
verksmiðjur framleiða ýmiskonar
kemiskar vörur, á annað hundrað
verksmiðjur vinna ýmsar tegundir
fæðu, og álíka margar vinna úr
járni og stáli, sérstaklega ýmis
verkfæri. Árið 1928 var áætlað,
að Japanar ættu um 700.000.000