Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 78

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 78
TVÆR GREINAR UM ATVINNU- LEYSI OG ATVINNUBÆTUR. Eftir Gustav Cassel. I>ær tvær greinar um atvinnu- leysið, sem hér eru birtar, eru að vísu orðnar nokkuð gamlar. En svo þrálátt reynist þetta böl, og svo lítið ráða menn við það, að menn eru engu nær nú en fyrir 6—7 árum, þegar Cassel skrif- aði greinarnar og gagnrýndi með skarpleika sínum „ráðstafanir" þær, sem sósíalista postularnir hafa b'arflt fyrir, og fjöldi ann- ara manna láta glepjast af. Sá tími, sem liðinn er, síðan þessar greinar voru skrifaðar, gefur kenningum þeirra aukið gildi, því að reynslan hefir staðfest það, sem þar er sagt. Náttúrlega er ýtt þéttings-fast á eftir þessu máli hér sem annars staðar. Óp- in um atvinnubætur af hendi þess opinbera, atvinnuleysistryggingar og allt það, sem nú er að sliga aðrar þjóðir, gerast æ háværari og háværari, því að ekki er um að tala að læra af reynslunni. l»að virðist því vera tímabært að birta nú þessar greinar hins skarpa sænska þjóðmegunarfræð- ings. — 1. Lækning atvinnuleysisins. 30. nóv. 1925. Það var einu sinni auðugur jarðeigandi. Hann hafði mikið um sig og hélt margt starfsfólk. En. það voru erfiðir tímar, og í sömu sveit var dálítið af atvinnulausum mönnum. Einn góðan veðurdag kom sósí- alisti til ríka jarðeigandans og sagði: ,,Þú auðugi maður. Þú lif- ir sjálfur í allsnægtum, en lætur aðra ganga atvinnulausa í sömu sveit. Sparaðu við sjálfan þig og láttu féð ganga til þess, að út- vega þeim atvinnulausu vinnu“.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.