Sagnir - 01.05.1982, Blaðsíða 25
endurtekningar, þannig að ekkert nýtt
komi fram sem gaeti gefið okkur fjöl-
breyttari og rikari mynd af lífi kvenna.
Að segja að karlar hafi alltaf kúgað
konur réttlætir þar fyrir utan að kvenna-
sögu beri einungis að fjalla um konur og
stöðu þeirra. Þar með er greið leið í þá
gryfju, að það sé ekki vert að beina aug-
unum að körlum og þeirra stöðu. Þegar
svo er komið, er næsta auðvelt að gagn-
rýna slíka kvennasögu fyrir sömu vinnu-
brögð og sú sama hefur beint að
karlsögu, eða sögu sem útlokar konur
sem skapandi afl: að kvennasagan úti-
loki og skapi alranga mynd af körlum/
stöðu karla.
Joan Kelli-Gadol er talsmaður fyrii
marxistískum-feministískum skoðunum í
kvennasögu sem eru í mörgum tilvikum
miklu frjóari. Hana greinir í mörgum at-
riðum á við Degler og Smith. Til dæmis eru
hugmyndir hennar varðandi aðferðafræðileg
vandamál mun sveigjanlegri og allar skil-
greiningar í kvennasögu eru háðar breyt-
ingum. Hún afneitar alfarið að nota þá sam-
líkingu að það séu karlar sem kúgi konur og
konur sem láti kúgast vegna þess að þær séu
bara svona, en það er einmitt þetta sem
Degler og Smith hamra svo mikið á. Kelly-
Gadol lætur sér ekki nægja að staðnæmast
eingöngu við tengslin á milli kynjanna og líta
á.konur sem eitthvað einangrað fyrirbæri.
Stúlkur I matreiðsluskóla á Akureyri.
4) Kvennasögurannsóknir sem láta sér
nægja að fjalla eingöngu um atriði sem
verka takmarkandi á stöðu og mögu-
leika kvenna, sem miðar allt út frá körl-
um/stöðu karla mun eiga á hættu, þó
svo að forsendurnar séu aðrar, að
endurskapa þá lífsseigu kvenmynd, þ.e.
að líf kvenna hafi verið einhvers staðar á
mörkum samfélagsins. í staðinn liggur
það beinast við að staðsetja þær í miðju
samfélagsins ásamt öllum þeim þáttum
sem þar tilheyra.
Það má segja að hún eigi frekar samleið með
konum eins og Juliet Mitchell og Sheilu
Rowbotham. Kelly-Gadol gengur út frá því
að konur séu á allan hátt þátttakendur í
félagsgerð samfélagsins. Þau atriði sem eiga
við konur og tengslin á milli kynjanna eru
samkvæmt henni hugtök sem eiga upptök sín
í þjóðfélagslegu samhengi. Hugtök sem hafa
mismunandi þýðingu og tilgang allt eftir
þeim þjóðfélagsveruleika sem þeim er beitt
á. Samkvæmt því beri að líta á þau sem af-
stæð hugtök. Hún bendir réttilega á, að
23