Sagnir


Sagnir - 01.05.1982, Page 52

Sagnir - 01.05.1982, Page 52
vegna þess eins að hann neitar að láta ógna sér eða taka við mútum. Nei, því ekkert jafnast á við illsku gamalla íhaldskerlinga.“ Það voru konurnar sem tóku að sér að setja ríka og íhaldssama kaupmenn í bann, kaupmenn sem vitnuðu gegn Chartistum við réttarhöld og fleiri slíka. Margir fóru á haus- inn, en aðrir sem studdu Chartista komust í álnir. í Newcastle var gerð samþykkt kvenna sem sagði að þeir kaupmenn sem ekki styddu óskir feðra þeirra, eiginmanna og bræðra væru andstæðingar réttlætis og hagsmuna vinnandi fólks. Við þá ætti ekki að versla. Konurnar skipulögðu aðgerðir, sáu um að sauma fána, og tóku þátt í göngum og mót- mælaaðgerðum. Þær börðust gegn fátækra- lögunum sem sett voru 1834, þær gerðu sér jafnvel spjót til að nota gegn lögreglunni. Á einum stað er nefnt að hreyfingin í Hyde hafi talið 300 karlmenn og 200 konur og sama heimild nefnir að konurnar séu betri helm- ingurinn í því félagi. Þegar heildarsamtök Chartista voru stofnuð 1840 sagði í ávarpi fyrsta þings þeirra: Enginn vinnandi karl- maður, engin vinnandi kona eða barn á að standa utan okkar miklu og dýrðlegu hreyf- ingar. Af því sem hér hefur verið sagt ætti að vera ljóst að konur voru mikilvægur hluti Chartistahreyfingarinnar. Þær höfðu sín eig- in félög, þær sendu frá sér yfirlýsingar, þær fóru út á göturnar og þær skipulögðu her- ferðir gegn kaupmönnum, þær tóku jafnvel þátt í undirbúningi aðgerða sem greinilega höfðu að markmiði að velgja yfirvöldum undir uggum. Enda þótt Chartistahreyfingin stefndi að auknum pólitískum réttindum var henni líka ætlað að verja réttindi. Það var skoðun Chartista að ríkisstjórnin væri að undirbúa allsherjar árás á forn lýðréttindi og reyndar allan lifsstíl verkalýðsstéttarinnar. Chartistar töldu að hin nýríka millistétt, með sinn ný- fengna kosningarétt reyndi að ala á slíkum áformum. Verkafólk sá vinnuna sem það hafði sjálft skipulagt hverfa smám saman inn í verksmiðjurnar og það leit á hugmyndir hagfræðingsins Malthusar2 um ,,of mikla fólksfjölgun“ sem hreina ógnun við sig. (Malthus sagði að ekki væri hægt að bæta kjörin af því að fólkið væri of margt og þar af leiðandi væri atvinnuleysi óhjákvæmilegt innsk. ká). Þessar hugmyndir endurspegluð- ust í fátækralögunum, sem verkafólk túlkaði líka sem ógnun. Það er ef til vill vegna þess- ara beinu hótana sem áhrif kvenna komu verulega til sögunnar á 19. öld. Vöruframleiðsla, menntun barnanna, um- önnun, ást og tilfinningalegt athvarf einstak- linganna, var áður innan fjölskyldunnar. Þegar talað er um fjölskyldu hér, er ekki að- eins átt við kjarnafjölskylduna í nútíma skilningi, heldur allt heimilisfólkið. Fjöl- skyldan var framleiðslueining, um leið og hún sá um endurframleiðsluna (endurnýjun og viðhald vinnuaflsins innsk. ká). Hún þurfti að hafa innan sinna vébanda lærlinga, sölumenn, þjónustufólk og aðra þá sem til- heyrðu framleiðsluferlinu, ættu heimilis- störfin og framleiðslan að ganga að óskum. Það var að miklu leyti starf kvenna að halda heimiliskerfinu gangandi, ýta undir fram- leiðslu eiginmanna og sona, en líka að taka þátt í framleiðslunni, auk heimilisstarfanna. Hún varð að kunna skil á öllum þáttum handverksins og geta tekið stjórnina þegar þurfa þótti. (Til er kvæði um það hverning kona iðnaðarmannsins átti að vera til að telj- ast hin fullkomna eiginkona, innsk. ká). Um miðja 19. öld eða á þeim árum sem hér um ræðir, hafði þessi mynd heldur betur fölnað. Framleiðsla fjölskyldunnar varð að láta i minni pokann fyrir verksmiðjufram- leiðslunni. Meistarakerfið var mjög á fall- andi fæti, lærlingarnir urðu að ódýru vinnu- afli í verksmiðjunum og skólar sem einkum voru reknir af trúarsamtökum tóku við menntun barnanna. Áður höfðu mæðurnar séð um menntunina og kemur greinilega fram í ævisögum Chartista að þeir lærðu að lesa og skrifa af mæðrum sínum, í skólum sem reknir voru af konum, eða þá að frænk- ur hlupu undir bagga. Kennsla var kvenna- starf. Þessir piltar urðu fyrir pólitískum áhrifum, urðu róttækir innan um allar þess- ar róttæku fjölskyldur. Konurnar héldu líf- inu í róttækum hugmyndum og börnin drukku þær inn með móðurmjólkinni, en þessi kennsla þeirra í róttækni hvarf eins og fleira síðar á öldinni. Konan þurfti að kunna allt 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.