Sagnir - 01.05.1991, Qupperneq 22

Sagnir - 01.05.1991, Qupperneq 22
Sigríður K. Þorgrímsdóttir í Essen, en þær fá yfirleitt engir útlendingar að sjá“ sagði Morgun- blaðið.36 „Efnahagsundur“ Hitlers íslendingar voru ekki einir um að dást að undrum þriðja ríkisins. Það gerði fjöldi fólks um Evrópu alla og varla von að íslendingar sæju frekar inn í framtíðina en aðrir. Þjóðverjar lögðu mikið upp úr að ganga í augun á útlendingum og ckkert var til sparað í þeint tii- gangi. Má til dæmis nefna Ólym- píuleikana í Berlín 1936, en glæsi- leiki þeirra vakti hrifningu víða. Margt af því sem miður fór var hulið á bak við tjöldin. Hitlcr tókst að nokkru á við atvinnuleysið, sent var gífurlegt, með því að endurher- væða Þýskaland. Auk þess var komið á þegnskylduvinnu fyrir ungt og atvinnulaust fólk. Þetta þótti mörgum ágætt ráð hér heima á Fróni, þegnskylduvinna hafði löngum átt hér talsmenn. Nasistar (og einnig fasistar) fjötruðu verka- lýðshreyfinguna og lækkuðu laun- in. Þenslan í efnahagskerfinu gat ekki endað vel ef friður hélst, en Hitler ætlaði sér í stríð og láta her- tekin meginlönd Evrópu um að leysa efnahagsvanda Þýskalands. Hlýðni Þjóðverja við nasista og foringjadýrkunin á Hitler var haldið við að töluverðu leyti með því að ala á ótta og ofbeldi. En um það var umhciminum lítið kunnugt. Utlendingar fengu jafn- vel að heimsækja fangabúðirnar í Dachau til að sannfærast um mannúðlega meðferð fanga. Hitler tókst að varpa ryki í augu margra íhaldsmanna. Hitler var að fram- fylgja sinni eigin óháðu stefnu og notaði til þess hvaða meðul sem var. Hann friðmæltist við íhaldsöfl innanlands og utan og lést vilja vinna með þeim eftir þeirra nóturn. Afnám þingræðis og hin miklu ríkisafskipti á öllum sviðum í Þýskalandi voru þó vart í anda íhaldsflokka Vestur-Evrópu. Margir íhaldsmenn virðast ekki hafa skoðað stefnu nasista nógu vel til að gera sér grein fyrir raunverulegu eðli Sumir hœgrimenn voru alla tíð á móti Hitler og nasistum. Peirra á meðal var hreski íhaldsmaður- inn Winston Churchill og sá íslenski Ólafur Thors. íslenskir nasistar töldu Ólaf vera af Gyðingacett- um. hennar. Sumir íhaldsmenn voru þó alla tíð á móti Hitler, til dæmis breski íhaldsmaðurinn Winston Churchill og íslenski íhaldsmaður- inn Ólafur Thors.37 Margir íslenskir og breskir íhaldsmenn áttu það sammerkt að hrífast af hinum „sterka“ stjórn- málamanni, ekki síður af Mussolini en Hitler.38 íslenskir hægrimenn létu ekki síður blekkjast af fallegu yfirborði þriðja ríkisins, en margir samherjar þeirra erlendis. Umsagnir um Hitlers Þýskaland voru yfirleitt jákvæðar í Vísi og Morgunblaðinu, eftir að líða tók á árið 1933 og eftir það. Ótti við að neikvæð umræða setti viðskipta- hagsmuni í hættu, aðdáun á harðri baráttu Hitlers gegn kommún- istum og hrifning á „framförum“ í Þýskalandi eru allt orsakir sem liggja hér að baki að meira eða minna leyti. Islenskir nasistar Þjóðernishreyfing íslendinga leit dagsins Ijós árið 1933. Þá ríkti kreppa og óánægja með þá valkosti sem fyrir voru í stjórnmálunum. Hreyfingin bauð fram til bæjar- stjórnarkosninga í Reykjavík 1934 ásamt Sjálfstæðisflokknum. Við það klofnaði hún og stofnaður var Flokkur þjóðernissinna. 1 honum voru aðallega ungir menn og var stefnuskrá flokksins mikið til sam- hljóða stefnu þýskra nasista. Þjóð- ernishreyfingin byggði ekki nema að litlum hluta á nasískri hug- myndafræði og var mun „íslensk- ari“ en Flokkur þjóðernissinna. Tengsl hreyfingarinnar við Sjálf- stæðisflokkinn voru mikil, en öðru máli gegndi um Flokk Þjóðernis- sinna. Hann kærði sig ekkert um nein tengsl við „íhaldið“. Líklega voru engin bein tengsl á milli þýskra og íslenskra nasista þrátt fyrir einkennisbúninga og haka- kross beggja. Flokkur þjóðernis- sinna lognaðist út af smárn saman og eftir 1939 heyrðist ekki meira frá honum.39 Ástæður hafa eflaust vcrið ýmsar, en líklcga leist íslensku nasistunum ekki meira en svo á framgang Hitlers. 20 SAGNIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.