Sagnir - 01.05.1991, Page 40
Pétur Pétursson og Snorri Már Skúlason
rullu. Á þriðja dag jóla átti irinbrot-
ið, sem minnst var á í blaðinu, sér
stað.
Loksins hefir ákærði kannast
við það, að hann hafi á jólaföst-
unni þennan sama vetur stolið
22 kr. (þ.e. 2 10 króna seðlum
og 1 2 krónu-pening) frá Guð-
mundi lækni Guðmundssyni,
með þeim hætti, að ákærði fór
ofan í buxnavasa Guðmundar,
meðan þeir stóðu úti undir sjó-
búðarvegg og voru að tala
saman, náði peningabuddu upp
úr vasanum, tók úr henni
ofannefnda pcninga, og lct
síðan budduna aftur ofan í vasa
Guðmundar, án þess að hann
yrði nokkurs var. Peningum
varði ákærði mestmegnis til
brennivíns- og tóbakskaupa.
Áður framin afbrot Helga fólust
m.a. í skjalafalsi og þremur þjófn-
uðum, sem búið var að refsa fyrir.
Dómurinn í þessu máli var þriggja
ára betrunarhúsvinna auk greiðslu
málskostnaðar.37
En saga þessa máls er ekki öll því
Helgi ákvað upp á sitt eindæmi að
strjúka úr gæslu hrcppstjóra, þar
sem hann beið flutnings. Hann stal
tuttugu krónum úr buddu hús-
móður sinnar til þess að kaupa sér
nesti til fararinnar, nestið var
brennivín og brauð. Síðan tók
hann hest, skipti á honum og
öðrum hesti sem stolið var frá
ferðalöngum, sem áttu næturgist-
ingu á leið hans. Enn fremur stal
hann hnakk og tösku með ýmsum
munum í. Reiðbeisli stal hann úr
skemmu á bæ einum. Á sama bæ
stal hann matvælum, braut upp
kistu og stal úr henni sex krónum
og tuttugu og fimm aurum. Síðan
reið Hclgi sem leið lá til Reykjavík-
ur, stal olíustakk á leiðinni og seldi
svo hluta af þýfinu þegar þangað
kom. Var „það áform hans, að
komast með strandferðabátnum
’Hólar' til Austfjarða, en hann var
handsamaður áður en úr því
yrði.“38 Þegar þarna var komið
sögu var ákæruskjal Helga orðið
ansi langt og ferðasaga hans ævin-
týri líkust (og er óhætt að fullyrða
Fótahlekkir, sem nú eru í vörslu lögregl-
unnar í Árnessýslu. Á skildinum stendur
m.a.: „25. janúar Í979 ajhenti Lýður
Guðmundsson hreppsstjóri í Litlu-Sand-
vík lögreglunni í Árnessýslu þessafóta-
hlekki til vörslu. Hlekkir þessir eru að
líkindum danskir að uppruna og hafa
fylgt embœtti hreppsstjóra í Sandvíkur-
hreppi um langan tíma og í einhverjum
tilvikum notaðir til að geyma í fanga."
Þessum hlekkjum hefði Bjarni Sigurðs-
son, strokumaður, átt að kynnast.
að orðstír forhertustu glæpamanna
var í hættu ef Helgi yrði ekki
stöðvaður). Fyrir þessi afglöp hlaut
Helgi fimm ára betrunarhúsvinnu39
með möguleika á styttingu dóms í
þrjú ár.40
Hér var á ferðinni eini síbrota-
maðurinn og vasaþjófur sem ijár-
magnaði „fíkniefnakaup" sín með
þjófnuðum. Þessi frásögn staðfestir
einnig það sem sagt hefur verið um
breytt afbrotaform, sem fylgdi
þéttbýli.
Annað stórþjófnaðarmál varðaði
fjárpretti gagnvart Landsbank-
anum í Reykjavík, þar sem tekið
var 850 kr. lán, gegn falsaðri sjálf-
skuldaábyrgð. „Bankaræninginn“
bar því við að hann væri bundin
við sjóferð og mætti því ekki bíða
og hafi því þurft skjótrar afgreiðslu
við. Bankastjórnin vildi eigi hefta
för mannsins og afgreiddi hann því
í snatri. Þetta mál kom aldrei fyrir
dómstóla því það komst ekki upp
fyrr en eftir dauða „bankaræningj-
ans“ Stefáns Valdasonar. „Síðasta
daginn sem hann lifði lét hann
skrifa fyrir sig 2 bréf, annað til
konu sinnar og hitt til sóknarprests
síns í Mýrasýslu, og nefndi sig þar
hinu rétta nafni.“41
Á meðan dómabirtingum fækk-
aði virtist fréttum af glæpum fjölga
að sama skapi. Ólíklegt verður að
telja að þar hafi verið einhver tengsl
á milli. Orsaka þess að afbrota-
fréttum fjölgaði á tímabilinu ber að
leita í eðli þeirra mála er komust í
sviðsljós fréttanna á tímabilinu,
þ.e. afbrotin á seinna tímabilinu
voru alvarlegri. Þannig fjallar
helmingur afbrotafréttanna í ísa-
fold á tímabilinu 1891-1893 um eitt
og sama morðmálið, Bárðardals-
morðið. Tvær af tíu fréttum fjöll-
uðu unt mál þar sem sifjaspell,
barnsmorð og sjálfsmorð voru allt
hlutar af glæpamáli sem upp kom á
prestsetrinu Svalbarða í Þistilfirði.42
Ein frétt fjallaði um morðmál sem
kom upp á Vestfjörðum.43 Ein frétt
var af nauðgun og blóðskömm þar
sem roskinn bóndi gat barn með 19
ára dóttur sinni,44 og loks var frétt
af árás geðveiks nemanda presta-
skólans á dómkirkjuprestinn í
Reykjavík þar sem hann stóð fyrir
A myndinni má sjá skip sem sýna fram á aukið mikilvægi Reykjavíkur í fiskveiðum og
verslun um aldamótin. Ef myndin prentast vel má sjá að eitt skipanna er strandferða-
báturinn „Hólar", sem Helgi Ingimundarson ætlaði að flýja með til Austfjarða.
38 SAGNIR