Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 62

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 62
Húsnæ&ismál íbúðarhús Búseta við Klapparstíg í Reykjavík. Búseti hefur byggt 22 íbúðir við Eiðismýri á Seltjarnarnesi. magnskostnaðar en fyrir árið 1998 var kostnaður- inn 4,9%. Skortur á byggingarlóðum á höfuðborgarsvæðinu er nýfundin tekjuaukningarleið sveitarfélaganna, í formi lóðauppboðs. Að bjóða út lóðir er í sjálfu sér sanngjörn leið til að deila út takmarkaðri auðlind. Byggingarverktakar þurfa einungis að gera sér grein fyrir því hvað markaðurinn þolir í lóðarverði. A höfuðborgarsvæðinu voru verktakar að greiða fyrir 2-3 árum 550-700 þúsund krónur á íbúð að meðaltali fyrir lóðir undir fjölbýli. í dag er ekki óalgengt að greiða 1300-1500 þúsund fyrir hverja íbúð. I kjölfar breytinga á byggingarreglugerð árið 1998 má segja að íbúðir hafi stækkað um 15-20% að flatarmáli. Það voru gerðar auknar kröfur um lágmarks herbergjastærð, þvottahús í íbúðum o.fl. Þegar hver fermetri kostar fullbúinn 130-150 þús- und krónur þá er ljóst að fjögurra herbergja íbúð sem hefúr stækkað vegna þessara breytinga um 12-15 m2 hefúr hækkað um 1,5-2,2 milljónir. Það er því ljóst að meginhækkanir á íbúðum undanfarin misseri eru tilkomnar vegna stærri íbúða sem standa á dýrari lóðum. Hlutverk íbúðalánasjóðs Ef vextir á húsnæðislánum fara upp í markaðs- vexti hljóta menn að spyrja hvort ríkið ætti ekki að draga sig af þessum risalánamarkaði og láta öðrum fjármálafyrirtækjum það eftir að lána einstakling- um og félagasamtökum til íbúðakaupa. Það er skoðun undirritaðs að einfaldari vaxta- stefna væri að mörgu leyti ákjósanlegri og láta hús- næðisbætur koma einungis í gegnum skattakerfið. Það er hins vegar líka hægt að réttlæta niður- greidda vexti til almannasamtaka, er reka íbúðar- húsnæði, eins og Búseta. Ibúðalánasjóður ætti að vera í forystu með rann- sóknir á breytingum sem eiga sér stað í þjóðfélag- inu og kalla á breyttar áherslur í íbúðamálum landsmanna. Við höldum úti ríkisstofnun, Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins, sem hugar að ytra byrði húsa en það ætti líka að gefa notendun- um gaum. Hvað er æskilegt að húsnæði sé stórt, hvert herbergi? Ætti að vera skylda að vera með eldhús í hverri íbúð? Er ekki til hópur fólks sem hreinlega eldar ekki með hefðbundnum hætti held- ur þarf aðeins tengingu fýrir örbylgjuofn og góðan Lazy boy stól með matarhólfum? Hvernig er kjarnafjölskyldan að þróast? LFm þessar mundir er staðreyndin sú að fjölskyldur eru almennt að minnka en íbúðir að stækka. Það er varla byggð tveggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu í dag. Ibúðalánasjóður ætti að rannsaka þessa hluti og vera til ráðgjafar fyrir leiðbeinandi byggingar- reglugerðir sveitarfélaganna. Byggingarreglugerðir ættu að vera leiðbeinandi en ekki sem heilög stað- reynd. Það á að treysta hönnuðum og verktökum til að framleiða vöru (íbúðir) sem selst og er í takt við það sem kaupendur vilja kaupa. Að banna fram- leiðslu á minni íbúðum í hágæðaflokki er eins og að skikka alla til að kaupa stóra bíla og banna fólki kaup á t.d. Toyotu Yaris! Fólk leggur misjafnar áherslur á stærð híbýla sinna og þótt það sé ofúr eðlilegt að gera kröfur um öryggisþætti og skipu- lag þá ættu ibúðastærðir sem slíkar að vera undir kaupendum komnar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.