Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Aldrei verður fólk of oft minnt á að
fara varlega með eld yfir hátíðarn-
ar. Sérstaklega eru það kertaskreyt-
ingar og óvarin ljós sem skapa eld-
hættu.
Næstu dagana er spáð strekkings
norðanátt með hríðarveðri á norð-
anverðu landinu en úrkomulitu
syðra. Hiti verður frá frostmarki og
niður í tíu gráðu frost. Á laugardag
er útlit fyrir vaxandi suðaustanátt
og það fari að snjóa sunnan- og
vestanlands. Hvassviðri og slydda
eða rigning um kvöldið. Hægari
vindur og úrkomulítið á norðaust-
anverðu landinu. Hlýnandi í bili. Á
sunnudag er svo spáð breytilegri
átt og víða éljum, en snjókoma við
norðurströndina. Kólnandi veður
skömmu fyrir jól.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns. „Hvernig spáir þú að 2015
verði fyrir þig fjárhagslega?“ Mis-
munandi álit kom fram við spurn-
ingunni. „Betra en árið 2014“ sögðu
35,91% svarenda, „Jafn gott/slæmt“
var svar 35,6%. „Verra en árið 2014“
sögðu 28,48%.
Í þessari viku er spurt:
Hver er uppáhalds jólamaturinn?
Sá eða þeir sem viðhalda hinum
sanna, hófstillta jólaanda, eru Vest-
lendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Sendum íbúum Vesturlands,
félagsmönnum, félagasamtökum,
fyrirtækjum og öðrum velunnurum
hugheilar jóla- og nýjárskveðjur
Þökkum gott samstarf og stuðning á árinu
Stjórn Hollvinasamtaka HVE SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Fjárhagsáætlun
Akraneskaupstaðar
samþykkt samhljóða
Frumvarp að fjárhagsáætlun
Akraneskaupstaðar fyrir árið
2015 svo og þriggja ára áætlun
fyrir árin 2016-2018 var sam-
þykkt í bæjarstjórn Akraneskaup-
staðar síðastliðinn fimmtudag.
„Áframhaldandi aðhald í rekstri,
niðurgreiðsla skulda og aukin
framlegð, bætt þjónusta við fatl-
aða íbúa og auknar fjárfestingar
eru meðal helstu áhersluatriða
bæjarstjórnar Akraneskaupstað-
ar á næsta ári,“ segir í tilkynn-
ingu frá bæjarstjórn.
Í fjárhagsáætlun fyrir 2015
er gert ráð fyrir 80 milljóna
króna rekstrarafgangi árið 2015
og verður það þriðja árið í röð
sem gert er ráð fyrir jákvæðri
afkomu í rekstri sveitarfélags-
ins. Ráðgert er að greiða niður
skuldir um 348 milljónir króna,
þar af eru lífeyrisskuldbinding-
ar um 80 milljónir. Skuldahlut-
fallið er áætlað 113% á árinu
2015 en stefnt er að því að það
fari lækkandi og verði 105%
árið 2018. Almennar gjaldskrár
munu taka verðlagsbreytingum,
3,4% á árinu 2015.
Fjárfestingar aukast á milli
ára en gert er ráð fyrir um 434
milljónum króna í fjárfestingar,
framkvæmdir og viðhald eigna.
Þar vega mest útgjöld vegna fyr-
irhugaðrar þjónustumiðstöðvar
fyrir aldraða að Dalbraut 6 og
breytingar á húsnæði við Vest-
urgötu 102 til að mæta búsetu-
þörf fatlaðra. Ennfremur er gert
ráð fyrir áframhaldandi upp-
byggingu í gamla miðbænum,
meðal annars með stofnun hús-
verndarsjóðs þar sem íbúar geta
sótt um styrki til að endurgera
eldri hús. Þá verður farið í end-
urbætur á götum og leikvöllum
í bænum.
Rekstrarútgjöld í aðalsjóði
hækka á milli ára um 7,67% en
þar af hækka útgjöld til skóla-
mála um 236 mkr. vegna ný-
gerðra kjarasamninga. Útgjöld
til skólanna nema 2.350 millj-
ónum króna. Til velferðarmála
er varið 764 milljónum, þar
af rúmlega 400 milljónum til
málaflokks fatlaðra. Gert er ráð
fyrir fjármagni vegna stofnunar
þróunarfélags á Grundartanga-
svæðinu og vegna vinnu starfs-
hópa sem vinna að mótun skipu-
lags vegna Sementsreitsins og
vegna hafnarsvæðisins og Breið-
arinnar, en vænst er uppbygg-
ingar í tengslum við öll þessi
svæði á næstu árum.
Veltufjárhlutfallið er áætlað
1,03 á árinu 2015 og er stefnt að
því að það fari hækkandi á næstu
þremur árum og verði 1,82 árið
2018. Sama gildir um eiginfjár-
hlutfallið sem er 53% á árinu
2015 og áætlað 56% árið 2018.
Þá er gert ráð fyrir því að fram-
legðarhlutfallið aukist úr 5,40%
árið 2015 í 7% árið 2018.
mm
Vetrarríki við Sólmundarhöfða á Akranesi í gær. Ljósm. mþh.
Hjónin Pauline McCarthy og
Tryggvi Sigfússon á Akranesi halda
fremur óhefðbundin jól á ári hverju.
Á hverju aðfangadagskvöldi opna
þau heimili sitt þeim sem ella væru
einir á jólum. Pauline hefur búið á
Íslandi í 23 ár og hefur haldið slík
boð í 21 ár. „Ég byrjaði á þessu
þegar ég bjó í Reykjavík. En fyrst
eftir að ég flutti á Akranes þekkti ég
engan og gat því ekki boðið neinum
heim. Fyrir þriðju jólin okkar hér á
Akranesi hafði ég hins vegar kynnst
fólki hjá Rauða krossinum og við
buðum fólki heim í gegnum Rauða
krossinn. Í dag geri ég bara við-
burð á Facebook. Við höfum einn-
ig hengt upp auglýsingar í Háskóla
Íslands, þar eru svo margir erlendir
nemendur sem eru einir á jólunum.
Það er svo sorglegt að vera einn á
jólunum,“ útskýrir Pauline í samtali
við Skessuhorn.
Ellefu næturgestir
á jólanótt
Aðfangadagskvöld verður fyr-
ir vikið mjög fjölbreytt á heimili
Pauline og Tryggva. Mismunandi
fjöldi gesta er og misjafnt hvaðan
úr heiminum þeir koma. „Það hef-
ur komið til okkar fólk alls staðar
að úr heiminum. Stundum er einn
gestur, stundum eru þeir 17. Í ár
reikna ég með átta manns, en það
gæti þó bæst við. Í fyrra komu tólf
gestir, einn héðan af Akranesi en
hinir úr Reykjavík. Þá þurftu ell-
efu manns að gista hjá okkur á jóla-
nótt, þannig að það var sofið í öll-
um rúmum og sófum,“ segir Paul-
ine og brosir. Þá er einnig breyti-
legt hvaða matur er hafður á borð-
um á aðfangadagskvöld. Pauline
sér að mestu leyti um eldamennsk-
una sjálf ásamt Tryggva. „Yfir-
leitt verður þetta eins og hlaðborð.
Stundum koma gestirnir með eitt-
hvað með sér. Það er alveg velkom-
ið en ekki nauðsynlegt, enda hafa
sumir lítið á milli handanna. Við
höfum verið með ýmislegt á borð-
unum, svo sem kjúkling, svínakjöt
og lamb.“
Aðspurð um hvernig jólaboðin
ganga fyrir sig svarar hún: „Þetta
hefur alltaf gengið mjög vel og
verið nóg til af mat. Við borðum
jólamat og opnum litlar jólagjaf-
ir. Eitthvað lítið og sætt sem nota-
legt er að fá í jólagjöf. Svo syngj-
um við stundum jólalög og fleira.
Í fyrra eyddi spænsk kona jólunum
með okkur og hún kenndi okkur að
dansa salsa. Þetta er mjög breyti-
legt á milli ára,“ segir Pauline að
endingu. Hún ítrekar að allir eru
velkomnir í jólaboðið sem verð-
ur klukkan 18 á aðfangadagskvöld,
jafnt útlendingar sem Íslendingar.
Hægt er að hafa samband við hana
í síma 824-2640 eða með tölvu-
pósti: akranes.celt@gmail.com
grþ
Heldur jólaboð fyrir
ókunnuga á aðfangadag
Pauline McCarthy býður fólki heim,
sem annars væri eitt á jólunum.