Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Ný reglugerð
um merkingar
matvæla
LANDIÐ: Landbúnaðar-
ráðherra undirritaði í síð-
ustu viku reglugerð um
miðlun upplýsinga um
matvæli til neytenda. Með
henni er ætlunin að tryggja
öflugri neytendavernd í
tengslum við matvælaupp-
lýsingar. Reglugerðin, sem
innleiðir reglugerð Evrópu-
sambandsins, gerir kröfu
um skýrari, ítarlegri og ná-
kvæmari upplýsingar um
innihald matvæla. Í reglu-
gerðinni er fjallað um al-
mennar meginreglur, kröf-
ur og skyldur er varða mat-
vælaupplýsingar, einkum
merkingar matvæla. Meðal
breytinga sem gerðar eru á
núgildandi reglum má nefna
að kröfur eru gerðar um
betri læsileika á umbúðum,
skýrari reglur um upplýs-
ingagjöf um ofnæmisvalda
í matvælum, kröfur um til-
teknar næringarupplýsing-
ar á forpökkuðum matvæl-
um og kröfur um uppruna-
merkingar á kjöti. Reglu-
gerðin gildir um stjórnend-
ur matvælafyrirtækja á öll-
um stigum matvælaferlisins
þegar starfsemi þeirra varð-
ar miðlun matvælaupplýs-
inga til neytenda. Hún gild-
ir um öll matvæli sem ætluð
eru lokaneytendum, þ.m.t.
matvæli sem stóreldhús af-
greiða og matvæli sem ætl-
uð eru fyrir stóreldhús.
–mm
Sjö sækja um
stöðu rektors
LbhÍ
SV.LAND: Alls sóttu sjö
um stöðu rektors við Land-
búnaðarháskóla Íslands, en
umsóknarfrestur rann út
5. desember síðastliðinn.
Þetta voru: Björn Þorsteins-
son, Freyr Einarsson, Guð-
mundur Kjartansson, Ívar
Jónsson, Jón Örvar G. Jóns-
son, Sigríður Kristjánsdóttir
og Þórunn Pétursdóttir. Há-
skólaráð LbhÍ ákvað á fundi
sínum sl. föstudag að vísa
umsóknum til valnefndar en
í henni sitja Ásgeir Jónsson,
Guðfinna Bjarnadóttir og
Torfi Jóhannesson.
–mm
Rof á vatns
afhendingu
AKRANES: Starfsmenn
Orkuveitu Reykjavík-
ur glímdu við það aðfarar-
nótt sl. sunnudags að gera
við tvær bilanir sem urðu á
Deildartunguæðinni á laug-
ardagskvöldinu. Heitt vatn
fór að streyma til Akraness
á ný fyrir hádegi en lág-
ur þrýstingur var fram eft-
ir degi meðan verið var að
safna nýjum birgðum. Á
næstu vikum verður tekinn
í notkun nýr 6200 kúbik-
metra heitavatnsgeymir á
Akranesi og á tilkoma hans
að draga úr hættu á heita-
vatnsleysi í bænum þegar
gera þarf við eða sinna end-
urnýjun aðveituæðarinnar.
–mm
Næsta blað
SKESSUHORN: Næsta
tölublað af Skessuhorni,
og jafnframt það síðasta á
árinu, kemur út þriðjudag-
inn 30. desember. Vegna
undirbúnings fyrir það blað
verða starfsmenn í vinnu
þessa viku, fríi alla næstu
viku. Vinnslu áramótablaðs
lýkur mánudaginn 29. des-
ember. Þeir sem vilja koma
efni á framfæri í áramóta-
blaðið sendi tölvupóst í
síðasta lagi á hádegi 29.
desember á skessuhorn@
skessuhorn.is en auglýsing-
ar á palina@skessuhorn.is
Pantanasími auglýsinga er
433-5500. Fyrsta blað nýs
árs kemur út miðvikudag-
inn 7. janúar.
-mm
Óhöpp
rakin til
veðurs og
færðar
LBD: Liðin vika í umdæmi
lögreglunnar í Borgarfirði
og Dölum einkenndist af
verkefnum sem tengdust
veðri og færð. Komu 18 slík
mál inn á borð lögreglu,
mörg vegna muna sem voru
að fjúka eða vegna vand-
ræða sökum færðar. Þrjú
umferðaróhöpp voru til-
kynnt til lögreglu. Bílvelta
undir Hafnarfjalli, aftan-
ákeyrsla á Holtavörðuheiði
og ekið var á hross í Dala-
sýslu. Lögregla telur að í
öllum tilvikum hafi veður
og færð að einhverju leyti
verið orsakavaldur. Eng-
in slys urðu á fólki í þess-
um umferðaróhöppum. Þá
var ein bifreið tekin úr um-
ferð í vikunni og skráning-
armerki klippt af þar sem
hún var ótryggð.
–þá
Óli Jón Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Loftorku í Borgarnesi, hef-
ur ákveðið að láta af starfi fram-
kvæmdastjóra um næstu áramót.
Óli Jón hefur gegnt starfinu und-
anfarin átta ár. Við starfinu tek-
ur Bergþór Ólason, sem hefur ver-
ið fjármálastjóri Loftorku í rúm
fimm ár. Félagið er til helminga
í eigu þeirra feðga. Óli Jón fer þó
ekki langt, heldur mun hann starfa
áfram hjá félaginu og hafa með
höndum margþætt verkefni.
Óli Jón Gunnarsson segir að
kominn hafi verið tími til að yngri
maður tæki við starfinu. „Ég hef
beðið í nokkurn tíma eftir þessum
ánægjulegu tímamótum, á með-
an Bergþór var að sinna sínu MBA
námi við Háskólann í Manches-
ter. Það er kominn tími til að yngri
maður taki við. Ég er búinn að vera
í krefjandi stjórnunarstörfum í 37
ár og hlakka til að slaka aðeins á
þótt mér þyki byggingabransinn af-
skaplega skemmtilegur.“
Bergþór er viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands og hefur und-
anfarin misseri lagt stund á MBA
nám við Manchester Business
School. Áður starfaði hann með-
al annars á fjármálamarkaði og sem
aðstoðarmaður ráðherra. Hann
segir þetta mikla áskorun að tak-
ast á við. „Ástand á þeim markaði
sem við störfum á er jafnt og þétt
að batna, verkefnum að fjölga og
þau eru að stækka. Það er í mörg
horn að líta í jafn umfangsmikl-
um og fjölbreyttum rekstri og hér
er stundaður og ég held að enginn
álasi karli föður mínum að vilja geta
haft örlítið meira svigrúm en und-
anfarna áratugi. Starfsmannahóp-
urinn hjá okkur er þéttur og góður
og í honum býr gríðarleg reynsla í
framleiðsu forsteyptra eininga, röra
og blautsteypu. Ég er bjartsýnn á
framhaldið og sannfærður um að
hér muni félagið styrkjast jafnt og
þétt á næstu misserum,“ segir Berg-
þór.
mm
Flotbryggja í höfninni í Stykkis-
hólmi dró ankerin og skekktist í
hvassviðrinu síðastliðinn miðviku-
dag. Bryggjan bognaði mikið og
þurfti að færa innstu bátana svo ekki
færi illa, að sögn Hrannars Péturs-
son hafnarstjóra. Bryggjan slitnaði
þó ekki heldur drógust steinarnir
eftir botninum og má ætla að ysti
steinnin hafi farið sjö metra eftir
botninum. sá
Þær Sigga Ketils og Valdís, félagar í
Prjónaklúbbi RKÍ á Skaganum, eru
í önnum þessa dagana að fylla á sér-
útbúna fatapoka sem fara til barna
í Hvíta-Rússlandi núna fyrir jólin.
Fötin koma af Akranesi í gegnum
Búkollu og svo fá börnin ytra líka
nýprjón frá prónahópnum; húfur,
sokka og vettlinga. Ekki amalegt
það. Um 20 konur eru í prjóna-
klúbbnum og hittast vikulega til
að prjóna og skipuleggja sitt starf.
Sigga og Valdís ætla sér að pakka
í 300 poka og segjast alltaf setja
meira en á pokanum standi.
mm/kp/ Ljósm. Kristinn Pétursson
Fylla á fatapoka sem fara til bágstaddra
Flotbryggja skekktist í hvassviðri
Feðgarnir Bergþór og Óli Jón í
Loftorku.
Bergþór verður framkvæmdastjóri
Loftorku í Borgarnesi