Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 87
87MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Kveðjur úr héraði
Kveðja úr Dalasýslu
Gleðileg
jól
gamur.is 5775757 gamur@gamur.is
Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins óskar viðskiptavinum sínum
og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári.
Við þökkum samstarfið á liðnu ári og hvetjum Íslendinga áfram
til stórra afreka í endurvinnslumálum.
Hugsum áður en við hendum.
Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins.
Óskum íbúum Hvalfjarðarsveitar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu
sem er að líða
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Enn styttist í jól og allt fer á fullt
eins og vera ber. Tíminn líður
stundum svo hratt, sérstaklega þeg-
ar maður hættir að telja árin. En
samt er einmitt tíminn það mikil-
vægasta í lífi hvers manns. Hvernig
við nýtum hann af því við vitum öll
að hann er takmarkaður.
Þegar ég lít yfir árið, velti ég fyr-
ir mér í hvað tíminn fór þetta árið.
Kosningar, eldgos og skuldaleið-
rétting og jafnréttismál koma fyrst
upp.
Ofarlega í huga mínum er það
réttlæti sem er að fást með skulda-
leiðréttingunni margumtöluðu. En
það eru ekki allir sömu skoðunar.
Til dæmis var eldri maður sem kom
að orði við mig fyrir nokkru um
þessi mál. Hann sagði, ég skuldaði
ekki neitt og ég tapaði engu, hvað
fæ ég út úr þessu? Ég sagði að hann
hefði verið í fyrsta björgunarhópn-
um þar sem voru innistæðueigend-
ur. Þeim var bjargað fyrst og fengu
allgóða vexti líka. Það varð fátt um
svör. En ég gat séð að karl var góð-
ur með sig þegar hann áttaði sig á
að hann hefði fengið eitthvað fyrir
sinn snúð líka.
Á þessu ári hafa jafnréttismál
verið ofarlega á baugi. Konur í
stjórnunarstöður, jafnlaunastaðl-
ar og fleira í þeim dúr. Allt er þetta
gott og gilt. Sjálf tel mig jafnrétt-
issinnaða, en án öfga. Mikilvæg-
ast er að passa að jafnréttið breytist
ekki í forréttindi. Línan getur orðið
stutt þarna á milli. Ég er sannfærð
um að konur geti leyst flest verk af
hendi jafn vel og karlar eða jafnvel
betur. Og öfugt líka. En mér finnst
samt rangt að konur eigi að njóta
forréttinda vegna kynferðis. Hið
sanna jafnrétti hlýtur að felast í því
að sá hæfasti til verksins verði allt-
af fyrir valinu.
Í Dalasýslu fór fram persónukjör í
annað sinn og komust flestir að sem
lýstu áhuga og er það vel. Þar eru
einnig að styrkjast verulega stoðir
mjólkurstöðvarinnar, fiskvinnsla og
frysting með blóma, verkstæði og
viðgerðaþjónustur, upplýsingamið-
stöð, blómabúð og kaffihús, hand-
verksmarkaðir og fleira. En samt
höfum við einungis minnstu og
dýrustu gerð af matvöruverslun og
er það miður.
Vesturland er stórt landbúnað-
arhérað og því skyldi maður ætla
að þar stæðu menn saman í því að
standa vörð um afkomu sína. Eft-
irlitskerfin í landbúnaði eru að vaxa
stjórnlaust og sífellt virðist fjölga
verkefnum. Nú stefnir líka í eftirlit
með músaveiðum og hvaða aðferð-
um má beita við þær ef marka má
fréttir undanfarið. Þarf ekki að fara
að staldra aðeins við og íhuga hvert
er verið að stefna? Gleymum því
ekki að byggðirnar eru brothættar
og þar munar um hvert einasta bú
og hvern einasta mann.
Kæru vinir nær og fjær. Er ekki
upplagt að setja sér áramótaheit
eða markmið fyrir næsta ár? Gleðj-
umst með nágrannanum þegar vel
gengur og réttum honum hjálp-
arhönd þegar þörf krefur. Sýnum
hvort öðru umburðarlyndi og vel-
vild. Verum þolinmóð og hrósum
eftir megni og umfram allt, látum
ekki særandi orð falla að nauðsynja-
lausu. Þannig getum við lagt okkar
að mörkum til að bæta samfélagið
sem við búum í. Lykilorðið er sam-
staða og það er nákvæmlega það
sem lítil samfélög þurfa svo mjög á
að halda.
Það styttist í að við hjónin kveðj-
um þetta hérað og það munum við
gera með söknuði. Því vil ég nota
tækifærið og þakka allt gott okk-
ur auðsýnt og óska Dalamönnum
sem og öllum Vestlendingum góðr-
ar jólahátíðar og árs og friðar í hér-
aði á komandi árum.
Guðrún Jóhannsdóttir
Sólheimum í Laxárdal, Dalasýslu
Smáfuglar í Dölum sitja að snæðingi.
Ljósm. Björn Anton Einarsson, Toni.