Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Bræður lesa BORGARNES: Bræðurnir Ævar Þór og Guðni Líndal Benediktssynir komust ekki í Landnámssetrið í síðustu viku vegna veðurs, en neita að láta veðurguðina stöðva sig. Þeir bjóða til sögu- stundar á Sögulofti Land- námssetursins í Borgarnesi fimmtudaginn 18. desemb- er klukkan 17:30. Frítt er inn, frí bókamerki og plak- öt og upplestur á tveimur af skemmtilegustu barnabók- um þessi jólin; Leitinni að Blóðey og Þinni eigin þjóð- sögu. –þit Meiri afli í nóvember LANDIÐ: Heildarafli ís- lenskra fiskiskipa í nóvem- ber síðastliðnum var um 88 þúsund tonn. Það er 7,6% meiri afli en í sama mán- uði árið áður. Á tólf mánaða tímabili var heildaraflinn u.þ.b. 1.078 þúsund tonn og minnkaði um 20,6% miðað við fyrra tólf mánaða tíma- bil. Magnvísitala á föstu verðlagi var um 3,4% lægri miðað við nóvember í fyrra, en á tólf mánaða tímabilinu desember 2013 til nóvem- ber 2014 hefur orðið lækk- un á magnvísitölunni um 10,8% miðað við sama tímabil ári fyrr. –mm Hljóðvist verð­ ur kortlögð GRUNDARTANGI: Um- hverfis,- skipulags- og nátt- úruverndarnefnd Hvalfjarð- arsveitar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2015 verði ráð- ist í kortlagningu hávaða frá iðnaðarsvæðinu á Grund- artanga. Það verði gert í samræmi við reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir. Nefndin leggur þetta til í ljósi þeirra athugasemda sem bárust vegna breytts aðalskipulags og landnotkunar í Kata- neslandi á Grundartanga nú nýverið. Vegna athuga- semdanna var haft samráð við Ólaf Hjálmarsson verk- fræðing vegna mögulegra aðgerða til að skoða ástand hljóðvistar á athafna- og iðnaðarsvæðinu á Grundar- tanga. –þá Þurrkara og þvottavél stolið AKRANES: Lögreglunni á Akranesi barst í vikunni tilkynning um að þvottavél og þurrkara hafi verið stol- ið úr þvottaherbergi í fjöl- býlishúsi í bænum. Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni fyrir að aka sviptur ökuréttindum. Annar öku- maður var tekinn fyrir að aka undir áhrifum áfengis. –þá Dramatískur sigur Skagamanna KARFAN: Skagamenn unnu dramatískan sigur á Þór á Akureyri sl. mánu- dagskvöld í fyrstu deild- inni í körfubolta. Sveiflur voru í leiknum og það var Áskell Jónsson besti maður ÍA og vallarins sem skoraði sigurstigið af vítalínunni í 83:82 sigri ÍA. Skagamenn náðu þar með að laga stöðu sína í deildinni eru komnir með 8 stig og jafnir Breiða- bliki í 5.-6. sæti. ÍA er að nálgast fjögur efstu leiðin og Skagamenn geta stigið skrefi nær með sigri í næstu umferð. Ísfirðingar, sem eru í næstneðsta sæti deild- arinnar, koma í heimsókn á Skagann nk. föstudag en þá fer fram síðasta umferð 1. deildar á þessu ári. Hjá ÍA skoraði Jamarco War- ren 28 stig, Áskell Jónsson 25, Fannar Freyr Helgason 10, Magnús Bjarki Guð- mundsson 7, Birkir Guð- jónsson 6, Jón Rúnar Bald- vinsson 4 og Oddur Helgi Óskarsson 3. –þá Aflatölur fyrir Vesturland 6. ­ 12. desember. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes 6 bátar. Heildarlöndun: 12.051 kg. Mestur afli: Emilía AK: 2.782 kg í einni löndun. Engum afla var landað á Arnarstapa. Grundarfjörður 11 bátar. Heildarlöndun: 233.714 kg. Mestur afli: Hringur SH: 62.436 kg í einni löndun. Ólafsvík 13 bátar. Heildarlöndun: 106.984 kg. Mestur afli: Kristinn SH: 21.288 kg í þremur lönd- unum. Rif 17 bátar. Heildarlöndun: 352.998 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 62.651 kg í einni löndun. Stykkishólmur 6 bátar. Heildarlöndun: 118.280 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 47.393 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Rifsnes SH –RF: 62.651 kg. 9. desember 2. Hringur SH – GRU: 62.436 kg. 9. desember 3. Örvar SH – RIF: 62.095 kg. 6. desember 4. Þórsnes SH – STY: 47.393 kg. 8. desember 5. Farsæll SH – GRU: 46.987 kg. 7. desember mþh Jólatónleikar Kirkjukórs Ólafsvík- ur eru orðnir hluti af aðventunni í Snæfellsbæ og eiga þeir sína dyggu gesti sem koma og njóta kvöldsins með kórnum. Þetta árið var engin undantekning og fóru tónleikarn- ir fram í Ólafsvíkurkirkju 11. des- ember síðastliðinn. Á efnisskránni voru að sjálfsögðu jólalög og var yf- irskrift tónleikanna Hátíðleg jóla- stemning og létt sveifla. Veronica Osterhammer kórstjóri söng tvö einsöngslög eins og henni er einni lagið við undirleik Valentinu Kay. Í lok tónleika bað stjórn kórsins um orðið og vildi þakka kórstjóranum Veronicu Osterhammer og und- irleikaranum Elenu Makew fyrir þeirra góðu störf bæði í þágu kórs- ins og einnig tónlistarlífs í Snæ- fellsbæ og færði af þessu tilefni þeim og Valentinu Kay blómvendi að gjöf. Áður en kórinn kvaddi með því að syngja tónleikagesti út sagði Veronica frá því að hvað kórstarfið væri fjölbreytt og skemmtilegt og hvatti nýja félaga til að mæta á æf- ingu nú eftir áramótin því að eitt af verkefnunum framundan væri með- al annars ferð til Þýskalands þar sem haldnir yrðu tónleikar. Kynnt- ir voru þrír nýir kórfélagar sem komu í kórinn nú í haust og þeim klappað lof í lófa. Að venju endaði kvöldið svo í safnaðarheimilinu þar sem gestir og kórfélagar gæddu sér á kaffi og konfekti. þa Undir síðustu vikulok lauk lagn- ingu ljósleiðarastrengs í jörð í Helgafellssveit. Lagðir voru alls 70 kílómetrar og verða tengingar um 60 til að byrja með eða fleiri en íbúðarhús í sveitarfélaginu. Í byrjun árs verður gengið frá ten- ingum til notenda sem og bún- aðinum í símstöðinni í Stykkis- hólmi en þar verður gert ráð fyrir 144 notendum í Helgafellssveit- inni. „Við áætlum að þetta end- ist næstu 30 árin,“ segir Jóhann- es Eyberg Ragnarsson bóndi í Hraunholti, fyrrverandi sveitar- stjórnarmaður í Helgafellssveit, og sá sem hefur haft með verkið að gera fyrir hönd sveitarfélags- ins. Fyrsti metrinn af ljósleiðara- lögninni var plægður niður 12. september á Sauraengjum í miðri sveitinni í átt til Stykkishólms. Lagningu lauk við Hamraenda hjá Stykkishólmi. Segir Jóhannes að verkið hafi verið vel undirbú- ið og gengið frábærlega vel, en aðeins voru fimm menn í vinnu- flokknum. Verktaki var Austfirsk- ir verktakar, Sveinn Guðjónsson. Segir Jóhannes vel vandað til verksins. Flestir þeir sem tengj- ast ljósleiðaranum verða sum- arbústaðaeigendur. Aðeins er bú- skapur stundaður á 14 bæjum í Helgafellsveitinni en búseta þó á mörgum fleiri. Áætlaður kostn- aður við lagningu ljósleiðarans var 57 milljónir króna. þá Hátíðleg stund þegar Kirkjukór Ólafsvíkur heldur jólatónleikana Mokað yfir ljósleiðarann í Ögurslandi. Ljósleiðaralögn að ljúka í Helgafellssveit Sveinn Guðjónsson hjá Austfirskum verktökum og Jóhannes Eyberg Ragnarsson bóndi á Hraunhálsi við lagningu ljósleiðarans skammt frá bænum Ögri sl. fimmtudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.