Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 71

Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 71
71MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 WWW.3XTECHNOLOGY.COM | WWW.SKAGINN.COM Við óskum viðskiptavinum og samstarfsaðilum okkar, sem og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með kærri þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu. HUGHEILAR JÓLA- OG NÝÁRSKVEÐJUR ir upp úr. Hekla, dóttir Heiðrún- ar, spilar á harmónikku og syng- ur allan daginn og sonurinn Snorri var í lúðrasveitinni þegar hann var yngri og spilar oft á hljómborð sér til ánægju heima fyrir. Það ætti því ekki að koma á óvart að á heim- ili Heiðrúnar eru mörg hljóðfæri. „Eitt sinn ætlaði ég að fara út í búð að kaupa mjólk en kom heim með bassa! Maðurinn minn hefur gert mikið grín af því,“ segir hún og skellihlær. Kom verulega á óvart Heiðrún segir að það hafi komið sér verulega á óvart þegar hún hlaut menningarverðlaunin í haust. Hún fékk símtal og var beðin að koma niður á skrifstofu Akraneskaup- staðar. „Ég hélt að það væri verið að fara að ræða við mig um eitthvað spilerí fyrir jólin en svo var mér sagt frá þessu. Ég átti síður en svo von á einhverju svona og mér brá ofboðs- lega mikið.“ Hún er þó stolt af við- urkenningunni og þakklát. „Að fá viðurkenningu fyrir vinnuna sem maður hefur lagt á sig er alveg ólýs- anlegt. Ég tel ekki tímana sem ég vinn, hugsa frekar um útkomuna. Þó maður fái launin ekki alltaf öll í peningum, þá er svo margt ann- að sem skiptir máli. Eins og áhugi og vilji barnanna og punkturinn yfir i-ið er að fá svona viðurkenn- ingu,“ segir hún þakklát. Hún bætir því við að hún og Samúel hafi áður fengið viðurkenningu frá Akranes- kaupstað sem henni þótti vænt um, eftir að söngleikurinn var sýndur. „Það óskuðu mér mjög margir til hamingju eftir að ég fékk menning- arverðlaunin og ég var fegin að fá svona jákvæð viðbrögð. Það hefði ekki verið gaman að fá svona við- urkenningu ef fólkið í samfélaginu hefði ekki verið sátt við það.“ Þrjú verkföll á árinu Árið hefur verið viðburðarríkt hjá Heiðrúnu. Hún er líklega ein af fáum sem hefur farið í mörg verk- föll á einu og sama árinu. Líkt og flestir vita fóru allflestar kennara- stéttir í verkföll á þessu ári. Heið- rún starfar á þremur mismun- andi skólastigum og tók því þátt í þremur verkfallsaðgerðum 2014; þegar grunnskóla- og framhalds- skólakennarar fóru í verkföll og svo auðvitað þegar tónlistarkenn- arar fóru í verkfall núna í haust. „Það verkfall varð fimm vikna langt. Það sem kom mér mest á óvart við það verkfall var að eng- ar samningaviðræður áttu sér í raun og veru stað fyrr en eftir fjór- ar vikur.“ Hún segir að verkfallið hafi haft mikil áhrif á sig persónu- lega. „Ég hefði aldrei getað trú- að því hvað það hafði mikil áhrif á mig að vera í verkfalli í svona langan tíma. Það sem bjargaði mér var kennslan í Brekkubæjarskóla og tónlistartímar á starfsbraut- inni í fjölbrautaskólanum. Krakk- arnir þar eru svo dásamlega þakk- lát og glöð og það er svo gaman að kenna þeim. Þau björguðu al- veg geðheilsunni minni í verkfall- inu í haust,“ segir hún og brosir. Hún segir verkfall tónlistarkenn- ara hafa haft ýmsar afleiðingar sem bitnað hafi á nemendum. Má þar nefna tónleikana Ungir – Gaml- ir sem áttu að vera á Vökudögum í byrjun nóvember en hefur verið frestað fram á vor. „Eins hafa yfir- leitt verið haldnir nokkrir jólatón- leikar með nemendum úr tónlistar- skólanum en núna verða þeir mun færri. Samstarfið í tónlistarvalinu féll líka niður og því verða minni tónleikar tengdir því. Við erum að reyna að klóra í bakkann og bjarga því sem bjargað verður.“ Er í hljómsveit Þrátt fyrir að vera jafn mikið í tónlist og raun ber vitni semur Heiðrún ekki mikið tónlist sjálf. Hún segist semja eitt og eitt lag. „Ég hef gert það, en ekki mikið. Ég er með eitt og eitt í kollinum en á erfitt með að koma þeim frá mér.“ Hún er þó í hljómsveit sem spilar aðallega frumsamda tón- list. Hljómsveitin heitir Hvísl og er skipuð Heiðrúnu, Samúel Þor- steinssyni, Gunnari Sturlu Her- varssyni, Elfu Margréti Ingva- dóttur og Gunnhildi Vilhjálms- dóttur. „Gunnar Sturla er snilling- ur í að semja og við spilum mikið af lögum eftir hann. En við erum líka með nokkrar ábreiður sem við setjum í okkar eigin búning. Við erum með ansi mörg hljóðfæri í þessari hljómsveit, svo sem harm- ónikku, trompet, klukkuspil, alls kyns slagverk, melodiku og klar- ínett,“ útskýrir hún. Hljómsveit- in hefur verið starfandi í rúmt ár en ekki komið mikið fram opin- berlega. „Það stendur nú til bóta. Við ætlum til dæmis að halda tón- leika á Akranesi á næsta ári, ein- hverja svona kósý tónleika á góð- um stað.“ Heldur í danskar hefðir Spjallinu við Heiðrúnu fer senn að ljúka. Tíminn hefur liðið hratt og hún þarf að fara að kenna nemend- um Brekkubæjarskóla. Hún seg- ir þennan árstíma vera skemmti- legan, bæði í vinnunni og heima. „Mér finnst aðdragandi jólanna svo skemmtilegur tími. Kertaljós og kósýheit, samverustundir með fjölskyldunni og það er svo gaman að spila jólatónlist með nemend- um. Jólaljósin eru líka kærkomin, þau lífga svo upp á myrkrið sem fylgir þessum árstíma.“ Hún seg- ist njóta þess að upplifa aðdrag- anda jólanna með börnunum sín- um. Fjölskylda Heiðrúnar hélt jólin í Danmörku þau ár sem þau bjuggu þar og halda enn í dansk- ar hefðir. „Við gerum enn eplaskíf- ur og höfum lifandi ljós á jólatrénu á aðfangadagskvöld og á gamlárs- kvöld,“ segir Heiðrún kát að end- ingu. Svo er hún rokin í tónlist- arkennsluna, enda bíða krakkarn- ir spenntir eftir að fá að syngja og spila jólalögin. grþ Jólatré Heiðrúnar og fjölskyldu er ansi danskt að sjá en þau halda í danskar hefðir og hafa lifandi ljós á trénu. Ljósm. úr einkasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.