Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
margir aðrir lögðu þessu góða málefni lið. Lúkas er endurlífg-
unar- og hjartahnoðstæki til notkunar í sjúkrabílum. Sjúkra-
flutningamenn í Búðardal þjónusta stórt svæði og meðaltími
sjúkraflutninga er um 2,5 klukkustund. Tækið kemur sér því
vel enda sér það algjörlega um hjartahnoð án þess að þreytast
eða vera fyrir öðrum við endurlífgunina. Safnað var fyrir Lúk-
asi víða á Vesturlandi á árinu. Fyrstir til að ríða á vaðið voru
Sigurður Már Sigmarsson neyðarflutningamaður hjá sjúkra-
flutningum á Akranesi og Guðjón Hólm Gunnarsson aðstoð-
arvarðstjóri hjá Neyðarlínunni sem hófu söfnun fyrir Lúkasi á
Akranesi. Fleiri byggðarlög í landshlutanum fylgdu í kjölfarið
og nú má finna Lúkas í sjúkrabílum í Ólafsvík, Stykkishólmi,
Dölum og í síðustu viku hófst söfnun í Borgarnesi og kemur
Rótaryklúbburinn að henni ásamt fleirum.
Sólarkísilverksmiðja
á Grundartanga
Faxaflóahafnir og bandaríska fyrirtækið Silicor Materials
skrifuðu í maí undir samkomulag um að stefnt yrði að því að
ný sólarkísilverksmiðja fyrirtækisins yrði valinn staður í landi
Klafastaða við Grundartanga. Verksmiðjan mun framleiða til-
búið hráefni til framleiðslu á sólarkísilrafhlöðum. Áætlanir
gera ráð fyrir að bein störf hjá Silicor verði 450, en ljóst að af-
leidd störf og starfsemi verður mun meiri að umfangi. Davíð
Stefánsson, verkefnisstjóri fyrirtækisins á Íslandi, sagði í sam-
tali við Skessuhorn í nóvember að seldar afurðir verksmiðj-
unnar verði sambærilegar að verðmæti og loðnu- og síldveið-
ar við Íslandsstrendur. Ýmis fyrirtæki hafa fylgst af áhuga með
fyrirætlununum, rætt er um byggingu vöruhótels á Grund-
artanga og fyrirtæki sem vinna að fullframleiðslu á sólarkísil
og vinnslu úr aukaafurðum hafa sýnt verkefninu áhuga. Stefnt
er að því að framleiðsla hefjist í verksmiðjunni árið 2017, en
áætlað er að uppbygging Silicor Materials muni kosta 94
milljarða króna. Nú þegar gætir hreyfingar á fasteignamark-
aði vegna þessara fyrirætlana Ameríkananna, m.a. er aukin
fasteignasala á Akranesi og eftirspurn eftir byggingarlóðum.
Töp og sigrar
Kosið var til sveitarstjórna hér á landi síðasta dag maímán-
aðar. Sögulegt við kosningarnar á landsvísu var lítil kjörsókn
og doði, einkum hjá yngra fólki. Ýmsir höfðu ástæðu til að
gleðjast þegar úrslit kosninganna tóku að birtast. Aðrir síð-
ur. Í þremur sveitarfélögum á Vesturlandi féllu sitjandi meiri-
hlutar, þ.e. á Akranesi, í Borgarbyggð og Stykkishólmi. Á
Akranesi unnu sjálfstæðismenn stórsigur, fengu fimm menn
í bæjarstjórn, höfðu tvo áður, og mynduðu meirihluta að auki
með einum fulltrúa Bjartrar framtíðar. Í Stykkishólmi vann H
listi framfarasinnaðra Hólmara sigur, fékk fjóra bæjarfulltrúa
og hreinan meirihluta í bæjarstjórn. L listi fékk þrjá fulltrúa.
Valdahlutföll snérust því við og Sturla Böðvarsson fyrrverandi
bæjarstjóri, alþingismaður, ráðherra og forseti Alþingis varð
að nýju bæjarfulltrúi og jafnframt bæjarstjóri. Þá stóðst meiri-
hluti sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ áhlaup þriggja mótfram-
boða og Kristinn Jónasson stefnir í að verða a.m.k. tveggja
áratuga bæjarstjóri. Meirihluti vinstri manna í Grundarfirði
hélt sömuleiðis velli. Persónukosningar fóru fram í fimm
sveitarfélögum á Vesturlandi, þ.e. í Hvalfjarðarsveit, Dala-
byggð, Skorradalshreppi, Helgafellssveit og Reykhólasveit. Í
Dölum var þetta í annað skiptið í röð sem kosið var óhlut-
bundinni kosningu, þrátt fyrir stærð sveitarfélagsins. Eftir
áskoranir var orðið við því í Hvalfjarðarsveit að falla frá lista-
kosningum og voru því einstaklingar í kjöri, líkt og í Dölum.
Aldursforseti sveitarstjórnarmanna, Davíð Pétursson á Grund
hætti setu í sveitarstjórn Skorradalshrepps eftir áratugi. Nýir
sveitarstjórar tóku víða við. Regína Ásvaldsdóttir hélt áfram
á Akranesi eftir að hafa gegnt starfinu fyrir vinstri menn um
tíma. Þorsteinn Steinsson var ráðinn bæjarstjóri í Grundar-
firði, Kolfinna Jóhannesdóttir í Borgarbyggð og Skúli Þórð-
arson í Hvalfjarðarsveit. Sömu sveitarstjórar eru í Snæfellsbæ
og í Dölum. Kosið var listakosningu í Eyja- og Miklaholts-
hreppi. Tveir listar voru í kjöri og eðli málsins samkvæmt
sigraði annar.
Óútskýrður fugladauði
við Fróðárrif
Um 70 dauðar ritur fundust við Fróðárrif á Snæfellsnesi í
byrjun júní og að auki dauðir skarfar og æðarfugl á svipuðum
slóðum. Um mánuði fyrr fundust um 50 dauðir æðarfuglar
í varpi skammt frá Fróðárrifi. Sérfræðingar skoðuðu svæðið
en ekki fannst skýring á þessum mikla fjölda dauðra sjófugla.
Sýni úr æðarfugli sem fannst í maí var sent til Bandaríkjanna
og grunur beindist helst að því mengun væri að finna í ein-
hverjum af ferskvatnstjörnum á svæðinu þar sem báðar fugla-
tegundirnar sækja sér neysluvatn.
Víkingur kvaddur
Kaflaskil urðu í atvinnusögu Akraness 11. júlí þegar Víking-
ur AK 100, sem gerður hefur verið út frá Akranesi í yfir 50 ár,
var kvaddur. Skipinu var siglt til Danmerkur þar sem það var
rifið. Fjöldi fólks var mættur til að fylgjast með brottförinni
enda skipið eins konar holdgervingur sjómennskunnar á Akra-
nesi og því margir sem bera sterk tengsl til skipsins. Segja má
að himnarnir hafi grátið þegar skipið hélt úr höfn en úrhell-
isrigning var á meðan. Víkingur var smíðaður í Bremerha-
ven árið 1960 fyrir Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness,
sem var fyrsta almenningshlutafélagið á Akranesi og eitt af
fyrstu almenningshlutafélögum landsins. Víkingur AK land-
aði síðast loðnu á vertíðinni 2013 en er í prýðilegu ásigkomu-
lagi miðað við aldur og fyrri störf. Haraldur Bjarnason blaða-
maður var messadrengur í hinstu för Víkings og birti Skessu-
horn ítarlega lýsingu úr ferðinni og viðtöl við menn um borð
og úti í Danmörku. Skrifaði Haraldur þar lokakaflann í sögu
skipsins. Ekki er loku fyrir það skotið að skrif Haraldar verði
notuð til útgáfu bókar um skipið, en HB Grandi ákvað nýver-
ið að styrkja hann til nánari skráningar á Víkingssögunni.
Allt morandi í makríl
Makrílveiðar settu svip sinn á mannlífið í sumar, ekki síst á
Snæfellsnesi. Ekki eru nema nokkur ár síðan makríllinn fór að
sjást við Íslandsstrendur en hann er nú veiddur í stórum stíl og
skapar mikla atvinnu fyrir fólk í sjávarútvegsgreinum. Makríll
var ekki unninn á Akranesi en á þremur stöðum á Snæfells-
nesi; í Rifi, Grundarfirði og Stykkishólmi og víða var unn-
ið allan sólarhringinn. Á tímabili lönduðu um 50 makrílbát-
ar í Snæfellsbæ og þeir aflahæstu lönduðu um 11-12 tonnum
yfir daginn. Oft myndaðist löng löndunarbið þegar bátarn-
ir komu drekkhlaðnir að landi. Sjávarútvegsráðherra bannaði
síðan makrílveiðar smábáta frá og með 5. september, en þau
tíðindi komu mönnum í opna skjöldu. Mokveiði hafði ver-
ið á miðunum og búist var við að veiði yrði leyfð langt fram
í september. Urðu margir ósáttir við þessa ákvörðun. Daginn
sem ráðherra stöðvaði veiðarnar voru veidd 200 kíló af sprikl-
andi makríl í einn bátinn í höfninni í Ólafsvík meðan beðið
var löndunar. Margir höfðu á orði að þarna hafi ráðherrann
ótímabært stöðvað arðbærustu veiðar Íslandssögunnar.
Bugavirkjun gangsett
Raforkuframleiðsla hófst í Bugavirkjun á Leirárgörðum í
Hvalfjarðarsveit um miðjan júlí. Framkvæmdir við virkjunina
hófust síðsumars 2012 og hafa staðið síðan með nokkrum töf-
um sem urðu á framkvæmdum veturinn 2012-13, m.a. vegna
Framhald á næstu opnu