Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 96

Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 96
96 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Á Akranesi stendur rakarastofa í litlu húsi við gatnamót Vesturgötu og Skólabrautar. Þar hefur hún ver- ið samfleytt í rekstri í 77 ár. Áður en byrjað var að raka og klippa karlmenn í þessu húsi þá hýsti það símstöð bæjarins. Að þessu húsi voru allar símalínur Akurnesinga strengdar í lofti þar sem talsíma- konur sátu síðan og gáfu samband sitt á hvað milli húsa og til og frá bænum. Í dag er það Hinrik Har- aldsson sem ræður ríkjum í þessu húsi. Þarna hefur hann rekið Rak- arastofu Hinriks í 49 ár, eða all- ar götur síðan 1965. Sjálfur varð hann sjötugur 25. nóvember síð- astliðinn. Afmælisárið er búið að vera viðburðaríkt. Hann flutti suð- ur eftir 70 ár á Akranesi og keypti sér rafmagnsbíl – en heldur áfram að klippa á Skaganum. Byrjaði 18 ára gamall Hinrik Haraldsson, eða Hinni rak- ari eins og hann er alltaf kallaður af viðskiptavinum sínum og íbúum Akraness, er sjálfsagt einn af reynd- ustu hárskerum Íslands í dag. Hann hefur starfað í faginu í 52 ár. Að raka og klippa er hans ævistarf. „Ég var 18 ára gamall 1962 þeg- ar ég byrjaði að læra rakaraiðn hjá Jóni Hjartarsyni. Hann var þá með sína stofu á Kirkjubraut 2 hér á Akranesi þar nú er verslunin Nína. Þegar þetta var þá hafði Jón nýlega keypt sinn rekstur af Ara Guðjóns- syni sem hafði verið með rakara- stofu áður. Ég hafði alltaf ætlað mér að verða rakari, alveg frá því ég var strákur. Hvers vegna veit ég ekki. Fyrst ætlaði ég á námssamning hjá Ara en það breyttist svo þegar Jón keypti. Jón var svo vinsamlegur að taka mig með í kaupunum.“ Var kallaður frá kirkjusmíði Þegar þetta var þá voru tvær rak- arastofur á Akranesi. Það var sú sem Jón Hjartarson lærimeistari Hinriks rak á Kirkjubraut 2 og síð- an önnur í eigu Geirlaugs Arasonar í gamla símstöðvarhúsinu við Vest- urgötu. Haustið 1965 hafði Hinrik tekið sér tímabundið leyfi hlé frá rakaranáminu hjá Jóni Hjartarsyni og vann hjá trésmiðjunni Akri. Þá gerðist nokkuð óvænt. „Ég man alltaf að við vorum að vinna við að stækka og endurbæta Akraneskirkju, byggja skrúðhús aft- an á hana, þegar Geirlaugur kom og kallaði á mig. Þarna bauð hann mér að kaupa af sér stofuna. Hann var búinn að taka þá ákvörðun að flytja búferlum til Reykjavíkur. Ég tók þessu boði, hvattur dyggilega af föður mínum sem stóð þétt með mér í þessu. Ég tók við stofunni rétt tæplega 21 árs gamall 1. októ- ber 1965. Til að byrja með lepp- aði Geirlaugur fyrir mig því ég var ekki kominn með full iðnréttindi. Svo tók ég sveinspróf eins fljótt og auðið var, og þá vildi svo skemmti- lega til að Jón Hjartarson var próf- dómari. Ég klippti Ragnar Schev- ing múrara hér í bæ sem margir eldri Skagamenn kannast vel við en lést fyrir allnokkrum árum. Hann var með svo þykkt og fallegt hár og gott að klippa hann.“ Vestfirðingur að ætt Hinrik er borinn og barnfæddur Skagamaður en ættaður af Vest- fjörðum. „Foreldrar mínir voru þau Haraldur Magnússon og Jóna Elíasdóttir. Pabbi fæddist á Flateyri og flutti hingað til Akraness 1942 eða þar um bil. Þeir komu hingað feðgar frá Flateyri. Á þessum árum fyrir og um miðbik síðustu ald- ar fluttu fjölmargir Vestfirðingar til Akraness. Faðir minn var í hópi tveggja eða þriggja bræðra. Einar Magnússon bróðir hans var með í för og settist líka hér að. Magn- ús afi minn fór hins vegar fljótlega á Reykjalund eftir að hafa greinst með berkla. Hann átti ekki aft- urkvæmt þaðan og lést þar. Síð- an kvæntust þeir bræður Einar og Haraldur faðir minn, systrum frá húsinu Sandfelli sem stendur enn við Kirkjubraut. Þeir ílentust því hérna, eignuðust mörg börn með sínum konum og bjuggu hér alla sína tíð. Mamma lést 1997 aðeins 72 ára en pabbi 2009 þá orðinn 85 ára gamall.“ Hinrik fæddist í húsinu Austur- völlum lýðveldisárið 1944. „Það hús stendur á horni Akurgerðis og Heiðarbrautar hér á Akranesi. Þarna bjuggum við í ein sex ár þar til við fluttum á Suðurgötu 19. Þar var ég til unglingsára, 15 – 16 ára. Þá keyptu foreldrar mínir Suður- götu 21. Þarna neðst á Suðurgöt- unni í þessu húsi man ég eftir því að hafa kynnst því fyrst að geta far- ið í sturtu.“ Mikill kraftur á Akranesi Hinrik minnist æskuáranna á Akra- nesi með gleði. Það var líf og fjör á Skaganum á árunum milli 1950 og 1960. Mikill kraftur í útgerð og fiskvinnslu og Sementsverksmiðjan að hefja rekstur. „Þarna var algengt að krakkar væru farnir að vinna 12 - 13 ára. Þeir voru að stokka upp línu, unnu í frystihúsunum og víð- ar. Maður tók þátt í þessu. Krakkar höfðu góða möguleika til að bjarga sér og afla tekna. Maður átti allt- af nóga peninga yfir veturinn. Ég vann við að skera hvalkjöt í Heima- skaga í tvö sumur. Eitt sumar ný- kominn með bílpróf vann ég meira að segja sem olíubílstjóri. Það var næg atvinna.“ Þarna neðst á Suðurgötunni, steinsnar frá iðandi lífi hafnarinnar, bjó Hinrik í foreldrahúsum þar til hann kynntist Fjólu V. Bjarnadótt- ur sem líka bjó á Akranesi. „Hún varð eiginkona mín. Við gengum í hjónaband annan í jólum 1964 og byrjuðum að búa.“ Nýbökuð hjón- in fluttu inn í kjallaraíbúð í gömlu bárujárnshúsi við Kirkjubraut. „Við byrjuðum að búa á Kirkjubraut 9, hjá Karli Benediktssyni í Skuld. Það er búið að rífa það hús núna. Það stóð þar sem nú er bílastæðið við veitingastaðinn Gamla Kaupfélag- ið. Þarna vorum við í kjallaranum. Það voru ekki miklar kröfurnar þá,“ segir Hinrik og hlær við. Störfuðu bæði við háriðn Ungu hjónin höfðu bæði atvinnu af því að vinna við háriðnina. Fjóla hafði lært hárgreiðslu hjá Ásu Hjartardóttur á Akranesi og út- skrifast úr því námi aðeins 18 ára gömul. „Fjóla byrjaði að læra hár- greiðslu aðeins 15 ára gömul. Á þessum árum var það nám aðeins þrjú ár en rakaranámið tók fjög- ur ár. Konur lærðu hárgreiðslu en karlar fóru í rakarann. Fjóla rak síð- ar hárgreiðslustofu hér á Akranesi í 38 ár. Hún var oft með starfsfólk, allt upp í þrjár konur sem störf- uðu hjá henni, og tók fjölda ungra stúlkna í nám til sín.“ Þau Hinrik og Fjóla voru ekki lengi í kjallaranum á Kirkjubraut- inni. Það var mikill framkvæmda- hugur í fólki á þessum árum. Akra- nes stækkaði hratt með nýjum ein- býlishúsahverfum í útjaðri bæjar- ins sem þá var við Esjubraut og þar sem varð Grundahverfi. „Árið 1966 byrjuðum við að byggja einbýlishús inni á Esjubraut. Þarna var fjöldi ungs fólks að koma sér upp þaki yfir höfuðið og sum búa þarna enn. Þá var maður ekki nema 22 ára gam- all. Það var mjög algengt á þess- um árum að fólk væri að byggja á þessum aldri. Svo var flutt í húsin hálf hrá. Menn voru ekkert að setja það fyrir sig þótt gólfin væru mál- uð, það vantaði hurðir og innrétt- ingar. Svo var bara bætt úr því í ró- legheitum. Við fluttum inn tveim- ur árum síðar, rétt fyrir jól 1968. Þá var Haraldur sonur okkar og frum- burður rétt rúmlega tveggja mán- aða gamall. Svo fæddist seinna barn okkar, dóttirin Bjarney árið 1974.“ Mögur ár á hippatímanum Reksturinn á rakarastofunni í litla húsinu við Vestugötu gekk upp nið- ur í áranna rás. Bítlatískan og síðar hippamenningin með tilheyrandi hársöfnun karlmanna setti ljót strik í reikningana. „Þegar allir fóru að safna hári á sjöunda og áttunda ára- tugnum þá var sáralítið að gera. Það verður bara að segjast. Tískan var sú meðal karlmanna að vera með mikið hár. Samdrátturinn hjá okk- ur rökurum varð mikill. Það bjarg- aði að Fjóla konan mín hafði nóg að gera á sinni stofu. Þetta ástand varð þó til þess að ég stofnaði bílasölu hér við rakarastofuna 1979, hrein- lega til þess að afla meiri tekna. Í allnokkur ár klippti ég menn og seldi notaða bíla jöfnum höndum. Ég hafði nægan tíma til að stússast í bílasölunni fram undir 1990. Þá hætti ég því og einbeitti mér aftur að rakarastofunni.“ Þegar grannt er skoðað þá er Hinni rakari hefur klippt og rakað Vestlendinga í hálfa öld: „Hér hefur mikið verið klippt í áranna rás og fjölmargt skeggrætt“ Hinni rakari á stofu sinni nú í desember. Í stólnum situr Skagamaðurinn Grettir Hákonarson og fær sína hársnyrtingu fyrir jólin. Hús rakarastofunnar sennilega einhvern tímann á fjórða áratug síðustu aldar. Þarna hefur verið rakarastofa í 77 ár. Ljósm. Ólafur Árnason/Ljósm.safn Akraness. Fyrsti rakarastóll á Akranesi er þessi frá 1904 og því 110 ára á þessu ári. Hann tilheyrði upphaflega Árna Sigurðssyni sem fyrstur stundaði hárskera- og rakaraiðn á Akranesi. Síðar komst hann í eigu Hinriks sem gaf Byggðasafninu í Görðum stólinn árið 1976 ásamt ýmsum gömlum rakáhöldum. Þessi mynd er tekin af gripunum á safninu. Hinrik mundar skærin á viðskipta- vin einhvern tímann á sjöunda áratugnum. Ljósm. Helgi Daníelsson/Ljósm.safn Akraness.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.