Skessuhorn - 17.12.2014, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudög-
um. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáaug-
lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.150. Rafræn áskrift kostar 1.950 kr. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Að auki skrifuðu Haraldur Bjarnason og Kolbeinn Óttarsson Proppé efni í jólablaðið.
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Tinna Ósk Grímarsdóttir (vefauglýsingar) tinna@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Gleðilega hátíð!
Nú fer í hönd hin helga hátíð ljóss og friðar sem ég vona af einlægni að all-
ir muni njóta. Jólin eru hátíð allra kristinna manna sem minnast þess þegar
frelsarinn fæddist og boðaði svo síðar á stuttri ævi trú sem segja má að hafi
verið límið í hinum vestræna heimi í tvær aldir. Í öðrum heimsálfum trúa
aðrir svo á heilagar kýr og enn aðrir á Allah. Út í þá sálma þori ég ekki að
fara nánar auk þess sem ég hef ekkert vit á trúmálum. Þrátt fyrir alla van-
trú hin síðari ár hér heima, þegar margir hafa kosið að segja skilið við þjóð-
kirkjuna, held ég að allir haldi samt áfram að halda jólin hátíðleg, hver á
sinn hátt.
Hvað sem allri trú líður verður árið 2015 vonandi ár aukinnar mannúð-
ar. Fréttir eru hræðilega oft fluttar um ofbeldi og stríð í Austurlöndum fjær,
sprengingar og gíslatöku. Hér heima vona ég að allir fái að búa við sóma-
samleg kjör og enginn líði skort. Mín skoðun er að ef slíkt gerist á Íslandi,
einhverri stærstu og bestu matarkistu heims, þá er eitthvað að. Þrátt fyr-
ir að landið hafi átt í tímabundnum þrengingum í efnahagslífinu þá er það
réttlætismál að allir eigi í sig og á, stórir sem smáir. Um þá vil ég að sleg-
in verði skjaldborg, því það er kominn tími til að stjórnmálamenn sem og
aðrir sem með ráðstöfun peninga fara, viti hvað orðið skjaldborg merkir.
Á yfirstandandi ári hefur jöfnuður ekki verið orð sem mönnum hefur ver-
ið tamt að nota. Það að mannúðarsamtök eins og Samhjálp, Mæðrstyrks-
nefnd, Fjölskylduhjálp og hvað þau öll nú annars heita, þurfi að vera starf-
andi, sýnir svo ekki verður um villst að það er vitlaust gefið í þjóðfélaginu.
Ég ætla því að endurtaka ósk mína frá fyrri árum um að aðgerðir til aukins
jöfnuðar meðal þegna landsins verði efstur á baugi stjórnvalda á komandi
ári. Ef útflutningsgreinar og peningamenn eru aflögu færir, þá skal auka
skattlagningu þeirra.
En mannúð er sannanlega að finna hvað sem þessum orðum líður. Í ýms-
um myndum. Dæmi um slíkt, og um leið samtakamátt sem getur tekið sig
upp hjá fólki, er söfnun sem staðið hefur yfir á vegum Hollvinasamtaka
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að undanförnu. Þetta félag á rætur á öllu
starfssvæði HVE. Nú hefur verið safnað til kaupa á nýju sneiðmyndatæki til
notkunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Þeir sem hafa þurft að kynnast
þjónustu sem þar er veitt vita að sneiðmyndatæki er álíka mikilvægt tæki og
fjósaskófla var í fjósum á árum áður. Tæki sem þetta greinir sjúkdóma, brot
og kvilla í fólki. Það auðveldar meðferð og flýtir lækningu. Tækið sparar
að jafnaði fimm ferðir með sjúklinga á dag til Reykjavíkur, alla daga ársins.
Ég er því stoltur yfir að nú hefur tekist að safna fyrir nýju tæki. Ég vil bæði
þakka fyrir þennan samtakamátt Vestlendinga en óska um leið til ham-
ingju öllum þeim sem kosið hafa að leggja þessu verkefni lið. Þetta er fal-
leg gjöf og gott vegarnesti inn í jólin. Ég þakka öllum, þar með töldum full-
orðna manninum sem gaf milljónir af sparifé sínu, öðrum einstaklingum,
félagasamtökum, fyrirtækjum, stofnunum og einnig fyrir safnanir á vegum
smærri og stærri hópa. Þrátt fyrir að margir haldi því fram að nú séu runn-
ir upp tímar fálætis gagnvart náunganum, þá sannar þessi söfnun að fólki
er ekki sama um umhverfi sitt, aðstæður og náungann. Þetta er einmitt sá
kærleikur sem kristin trú útbreiðir.
Að endingu vil ég nota þennan vettvang til að óska lesendum Skessu-
horns gleðilegrar hátíðar, ljóss og friðar með kærri þökk fyrir samskipt-
in á árinu sem er að líða. Njótum þess að vera til og verum góð hvert við
annað.
Magnús Magnússon.
Stofnfundur Starfsendurhæfing-
ar Vesturlands var haldinn í End-
urhæfingarhúsinu Hver á Akranesi
fimmtudaginn 11. desember síðast-
liðinn. Stofnendur starfsendurhæf-
ingarinnar eru Samtök sveitarfélaga
á Vesturlandi, Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, Símenntunarmiðstöð-
in á Vesturlandi, Vinnumálastofnun
á Vesturlandi, Stéttarfélag Vestur-
lands og Verkalýðsfélag Akraness.
Þá kom fram á fundinum að fleiri
verkalýðsfélög á Vesturlandi gætu
átt eftir að bætast í hóp stofnaðila.
Til stóð að á fundinum yrði skrifað
undir samstarfssamning við Virk en
fulltrúar þeirra voru veðurtepptir
í Reykjavík daginn sem stofnfund-
urinn var haldinn. Starfsendurhæf-
ingin gerir því á næstunni samn-
ing við Virk um rekstrarframlag og
vinnur náið með hagsmunaaðilum
að því að sérsníða lausnir fyrir þá
sem þurfa á þjónustunni að halda.
Athvarf og endurhæfing
Á fundinum var skipulagsskrá
starfsendurhæfingarinnar kynnt
og undirrituð. Einnig hélt Thelma
Hrund Sigurbjörnsdóttir forstöðu-
maður starfsendurhæfingarinnar
erindi þar sem hún sagði frá starf-
seminni eins og hún hefur verið hjá
Hver undanfarna mánuði en hún
sagði minna um framtíðina, enda
ætti hún eftir að ráðast. Hún sagði
frá því að Hver hefði verið tilrauna-
verkefni sem stofnað var til á Akra-
nesi vegna þess að það vantaði úr-
ræði fyrir einstaklinga sem þurftu að
komast á endurhæfingarlífeyri. Það
væri athvarf fyrir þá sem misst hafa
hlutverk í lífinu vegna ýmissa áfalla
og er starfsendurhæfing. Markmið-
ið væri að brjóta félagslega einangr-
un og að endurhæfa einstaklinga til
atvinnuþátttöku eða náms. Þá er
einnig reynt að vinna að auknum
lífsgæðum þátttakenda og eftir at-
vikum fjölskyldum þeirra.
Reynt að mæta þörf
Þjónustusvæði starfsendurhæfing-
arinnar er allt Vesturland. Starfs-
stöð Starfsendurhæfingar Vestur-
lands er á Akranesi en stefnt er að
því að þátttakendur fái þjónustu í
heimabyggð ef kostur er. Þá verð-
ur boðið upp á einstaklingsbundna
úrlausn á vanda þátttakenda eins og
kostur er. „Við munum reyna að
skapa þjónustu eftir þörf og reynt
að mæta þeirri þörf sem upp kem-
ur, mögulega í samvinnu við aðr-
ar stofnanir í landshlutanum. Við
reynum að vera lausnamiðuð og
finna lausnir ef upp kemur vandi,“
sagði Thelma meðal annars í erindi
sínu. Stjórn Starfsendurhæfingar
Vesturlands er skipuð sex fulltrúum
til tveggja ára í senn og sex vara-
mönnum. Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi skipa þrjá fulltrúa í
stjórn og Símenntunarmiðstöð-
in, HVE og Vinnumiðlun Vestur-
lands skipa hver um sig einn full-
trúa. Þá mun forstöðumaður einnig
sitja stjórnarfundi með málfrelsi og
tillögurétt.
grþ
sifjakobs.com
Attractive & Fashionable Jewellery
STACK´N STYLE
Corte rings in sterling silver and zirconia
From 10.900 kr
Þjóðbraut 1 300 Akranes
S: 431 3333 www.gjafahus.is
Fundarmenn fylgdust einbeittir með því sem fram fór. Ljósm. grþ.
Starfsendurhæfing Vesturlands stofnuð
Á fundinum undirrituðu fulltrúar stofnaðila skipulagsskrá starfsendurhæfingar-
innar. Ljósm. Akraneskaupstaður.