Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2014, Page 52

Skessuhorn - 17.12.2014, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 og önnur landbúnaðartæki á nýja staðinn. Á sama tíma eignast sambýlingar safnsins frá fyrstu tíð, handverksfólkið í Ullar- selinu, jafnframt nýjan samastað í anddyri Landbúnaðarsafns. Í stað mjaltabáss verða nú ullarklæði af ýmsum gerðum og stærðum til sýnis og sölu. Aðsókn í söfnin á nýjum stað hefur verið góð í haust. Gamla skólahúsið falboðið Gamla barnaskólahúsið við Skólabraut í Stykkishólmi var sett á sölu í byrjun október, en það er teiknað af Guðjóni Samú- elssyni. Húsið var í eigu Stykkishólmsbæjar, en ásamt því aug- lýsti bærinn einnig húsnæði Amtsbókasafnsins við Hafnar- götu til sölu. Söluandvirði eignanna á að nýta til stækkunar grunnskólahússins í Stykkishólmi þannig að það nýtist einn- ig fyrir tónlistarskólann og amtbókasafnið sem eru til húsa í þeim eignum sem settar voru á sölu. Vegna þröngrar fjárhags- stöðu bæjarins var ákveðið að stíga þetta skref. Göngin malbikuð í fyrsta sinn Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna malbikunar helgina 17. til 20. október. Þetta er lengsta lokun ganganna frá opnun, enda verið að malbika göngin í fyrsta sinn frá júlí 1998. Þykir raunar undrum sæta að malbikið hafi enst svo lengi. Malbikunin gekk vel, en lokunin hafði áhrif á fjölda ferðamanna sem þurftu að leggja leið sína um Hvalfjörðinn á meðan á lokuninni stóð. Samkvæmt áætlunum mun Spölur ehf. sem rekur göngin skila þeim til íslenska ríkisins árið 2018 eftir að uppgreiðslu lána lýkur og verður umferð um þau þá gjaldfrjáls. Rætt hefur ver- ið um að halda gjaldtöku áfram til að tryggja fjármögnun á tvöföldun ganganna, en ýmsir hafa mótmælt því, þ.m.t. sveit- arstjórn Borgarbyggðar sem lýsti í mars samhljóða andstöðu sinni við hugmyndir um áframhaldandi gjaldtöku. Tölvusneiðmyndatæki tekið úr notkun Tölvusneiðmyndatæki Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi (HVE) var tekið úr notkun um mánaðamót október og nóvember. Tækið var úr sér gengið og búið að úrskurða það ónothæft. Endurnýjun tölvusneiðmyndatækisins hefur lengi verið á döfinni, en ekki verið möguleg vegna erfiðleika í rekstrarumhverfi stofnunarinnar. Hollvinasamtök HVE, sem stofnuð voru á síðasta ári, beittu sér fyrir söfnun á nýju tæki og voru haldnir tónleikar og ýmsir viðburðir í því skyni. Eft- ir fund með heilbrigðisráðherra var ákveðið að Hollvinasam- tökin pöntuðu nýtt sneiðmyndatæki í samráði við HVE. Söfn- un hollvinasamtakanna hefur gengið frábærlega og er nú ver- ið að velja tæki til að panta. Borgarbyggð selur eignarhlut sveitarfélagsins í Landnámssetri Borgarbyggð á nú engan hlut í Landnámssetri Íslands, en byggðarráð samþykkti í byrjun nóvember að selja 20% eign- arhlut sveitarfélagsins. Söluverð var 3,5 milljónir króna og kaupendur voru þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guð- mundsdóttir, sem eiga þá Landnámssetrið að fullu. Tæplega sjö milljóna króna hagnaður varð af rekstri félagsins á árinu 2013 og eignir þess námu í árslok 29 milljónum, en skuldir um 44 milljónum. Landnámssetrið er tvímælalaust einn vin- sælasti viðkomustaður ferðamanna á sunnanverðu Vestur- landi. Þar er opið allt árið og þess nú vænst að fleiri þjón- ustustaðir feti í fótspor þeirra enda eru ferðamenn nú á ferð- inni allt árið. Nýr Baldur í siglingar Fjölmenni var samankomið á bryggjunni í Stykkishólmi 13. nóvember þegar ný ferja Sæferða var til sýnis. Nýr Baldur fór í sína fyrstu siglingu síðar þann dag, en gamli Baldur lauk þjón- ustu sinni á Breiðafirðinum deginum áður. Honum var siglt til Grænhöfðaeyja þar sem ný verkefni bíða. Nýr Baldur er töluvert lengri og breiðari en sá gamli, en siglir jafn hratt. Hann er norskur að uppruna, var notaður til ferjusiglinga á milli eyja og bæja í Lófóten. Hann var allur endurbyggður árið 1989 og þá var gert við hann í Reykjavík áður en siglingar hófust yfir Breiðafjörð. Mikil gleði var með nýja skipið og til- koma þess talin boða byltingu í samgöngum yfir Breiðafjörð. Fyrstu fjölbýlishúsalóðir eftir hrun Byggðarráð Borgarbyggðar úthlutaði tveimur byggingalóðum fyrir fjölbýlishús í lok nóvember. Þetta voru fyrstu lóðaúthlut- anirnar undir fjölbýlishús í Borgarbyggð frá því fyrir hrun, eða í sex ár. Lóðirnar eru að Birkikletti 2, þar sem heimilað er að reisa allt að sex íbúða fjölbýli á þremur hæðum með kjall- ara og Arnarkletti 28, en gert er ráð fyrir að það hús verði af svipaðri stærð. Byggingarfélagið SÓ húsbyggingar í Borgar- firði fékk lóðirnar. Fleiri tengingar en fólk Í lok árs var lokið við að leggja ljósleiðara í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, 85 kílómetra lögn. Ljósleiðaratengingar í sveit- arfélaginu eru fleiri en íbúarnir. Í haust lauk lagningu ljósleið- ara í Hvalfjarðarsveit. Lagðar voru stofnlagnir í jörðu og eru hátt í tvö hundruð heimili nú tengd við ljósleiðarakerfið. Mik- il ánægja er með kerfið. Einar Jónsson hjá Hvalfjarðarsveit hafði eftirfarandi lýsingu eftir sveitunga sínum um muninn á nettengingu eftir tilkomu ljósleiðarans: „Einn maður lýsti gömlu tengingunni þannig að þegar hann kveikti á internet- inu, þá fór hann inn í eldhús og hellti sér upp á kaffi. Þegar kaffið var komið í bollann, þá var Moggavefurinn komin upp. Núna opnast síðurnar strax.“ kóp
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.