Skessuhorn - 17.12.2014, Qupperneq 66
66 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum
öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar
á komandi ári
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is
Úrslit í jólasögukeppni
eldri grunnskólabarna
Í aðventublaði Skessuhorns í lok
nóvember var kynnt samkeppni
um gerð jólasögu meðal nem
enda eldri bekkja grunnskólanna
á Vesturlandi, eða nemenda í
8.10. bekk. Nokkrar sögur bár
ust. Er öllum þeim sem sendu
inn sögur þakkað fyrir þátttök
una. Það var sagan Tæknivæð
ing jólasveinanna sem bar sig
ur úr býtum. Hún er eftir Ernu
Elvarsdóttur, nemanda í 10.
bekk Grunnskóla Borgarfjarðar
á Varmalandi. Erna fær að laun
um glæsilegan Nokia Lumia 635
snjallsíma frá Omnis, söluaðila
Símans á Vesturlandi.
Tæknivæðing jóla
sveinanna
Við erum stödd í helli jólasvein-
anna, nánar tiltekið í Baulunni.
Grýla þeytist fram og aftur um
hellinn frekar brúnaþung. Þrett-
ándinn er á morgun og enginn jóla-
sveinn er kominn heim ennþá. Hún
ákveður að gera eitthvað í málinu.
Hún grípur pokann sinn og rýkur
út. Hún æðir niður Norðurárdal-
inn og þegar hún er komin að bæn-
um Hraunsnefi sér hún einhvern
kunnuglegan á vappi fyrir utan. „Ja
hver rækallinn, hrópar hún upp fyr-
ir sig. Er þetta ekki hann Askasleik-
ir minn þarna.“ Hún fer heim að bæ
og ræðir við hann. „Hvað ert þú að
gera hérna Askasleikir minn,“ spyr
hún hissa. „Ja, mamma mín þannig
er nú málunum háttað. Við bræð-
urnir vorum orðnir eitthvað svo
gamaldags, svo við ákváðum bara
að breyta því.“
„Hvað segirðu Askasleikir, gam-
aldags?“ „Já mamma, til dæmis ég.
Það borðar enginn úr öskum leng-
ur svo ég get ekkert verið að sleikja
þá. Það á heldur enginn aska leng-
ur nema Þjóðminjasafnið. Og þar
má ekki snerta bara horfa! Svo ég
ákvað bara að ráða mig í uppvask
hérna á Hraunsnefi. Þá fæ ég að
sleikja diskana sem eru nýju ask-
arnir.“
„Já hérna hér Askasleikir minn,
ég á nú ekki til neitt aukatek-
ið orð. Hvar eru þá bræður þín-
ir?“ „Hann Stekkjastaur fékk vinnu
í Kaupfélagi Borgfirðinga, hann
fær ekki borgað í peningum held-
ur mjólkurdufti. Hann var orðinn
svo þreyttur á því að reyna að elt-
ast við þessar rolluskjátur. Svo hef
ég frétt að Stúfur, Þvörusleikir og
Pottaskefill séu á Austurvelli, því að
þar er alltaf fullt að fólki að berja í
potta og pönnur með sleifum. En
mamma mín nú má ég ekki vera að
því að tala við þig lengur því það er
að koma hópur á jólahlaðborð svo
ég þarf að drífa mig. Þú getur farið
yfir að Erpsstöðum, ég hef heyrt að
Skyrjarmur sé þar.“
„Jæja þá, vertu sæll.“ Grýla gekk
af stað yfir Bröttubrekku. Skömmu
seinna var hún komin að Erpsstöð-
um. Þar hitti hún Skyrjarm. „Sæll
Skyrjarmur, hvað ert þú að gera
hér?“ „Ég fékk vinnu við það að
gera skyrkonfekt og fæ eins mik-
ið af skyri og ég get torgað.“ „Ja-
há! En veist þú nokkuð um bræður
þína,“ spyr Grýla. „Hann Giljagaur
er í Mjólkursamsölunni og Ket-
krókur er í Kaupfélagi Skagfirð-
inga. Hann heyrði að það væri ekki
hollt að borða mikið af hangikjöti.
Hann tók það mjög alvarlega og
er eiginlega alveg hættur að borða
hangikjöt. Hann vinnur í Kaup-
félagi Skagfirðinga og fær kjöt fyr-
ir. Svo hef ég heyrt að Hurðaskell-
ir sé í Húsasmiðjunni að prufa hjar-
ir.“ „Þið eruð nú meiri vitleysing-
arnir, segir Grýla og hristir haus-
inn.“ „Jæja ég þarf að fara að drífa
mig mamma mín, þú getur farið í
Hörpuna, ég hef heyrt að Glugga-
gægir sé þar að þrífa glugga.“
„Vertu sæll Skyrjarmur minn.“
Grýla setti pokann sinn á bakið og
gekk af stað til Reykjavíkur. Þegar
hún var komin að Hörpunni sá hún
Gluggagægir. „Sæll Gluggagæg-
ir minn, veist þú nokkuð um bræð-
ur þína?“ „Já, hann Bjúgnakræk-
ir er í SS, hann var orðinn eitthvað
þreyttur á bjúgum og skipti yfir í
pylsur. Gáttaþefur er í Geirabakarí
að steikja laufabrauð og Kertasník-
ir er í Ikea. Hann er alveg hættur
að borða kerti, því ekki fást tólgar-
kerti lengur og nú þegar læknar eru
í verkfalli er vont að vera að borða
mikið af sprittkertum, þau eru svo
þung í maga. En honum finnst nú
samt gaman að horfa á þau. En
mamma mín nú þarf ég að hætta að
tala.“
Grýla kvaddi og dreif sig heim í
hellinn. Þegar hún kom þangað tók
á móti henni risa flatskjár. Leppa-
lúði hafði farið í Omnis og keypt sér
risa flatskjá. Hann var orðinn leiður
á því að liggja í rúminu allan dag-
inn og gera ekki neitt. „Æi Leppa-
lúði minn, er sama vitleysan hlaup-
in í þig og strákana,“ sagði Grýla og
settist niður fyrir framan tölvuna
og fór að skoða nýjar innréttingar
í hellinn á heimasíðu Ikea.
Erna Elvarsdóttir
14 ára. Nemandi í 10. bekk
Grunnskóla Borgarfjarðar,
Varmalandi.
Brekku, Norðurárdal.
Erna Elvarsdóttir fermdist síðasta vor. Þessi skemmtilega mynd var tekin við það tilefni á heimaslóð. Ljósm. Unnur Ólafs-
dóttir.