Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Síða 91
TOMIÐ OG TILVERAN
venjulegar konur eins og mig sem þetta skrifar - eða annan ritstjóra Rits-
ins - heldur eru það dramatískar dívur sem þær velja að fyrirmynd, ýktar
og stækkaðar, eins og Cher, Madonna, Tina Tumer, Dusty Springfield
o.fl.
Um leið varar Butler lesendur við að smætta kynið niður í það sem
hægt er að sýna eða gjöminginn sem slíkan. Það sem er sýnt byggist líka
og ekki minna á því sem ekká er hægt að sýna og ekki má sýna. Þarna
tengir hún sálgreininguna við gjöminginn og gjömingshæfnina við
þunglyndið.
Odipusarflækjan byggist á því að drengurinn sem aldrei má elska föð-
urinn verður að hætta að þrá viðfang siimar fyrstu ástar, þ.e. móðurina,
og verður að færa þrá sína yfir á staðgengil hennar, aðra konu sem ekki
er honum bönnuð, á meðan stúlkubamið verður líka að hætta að þrá
móður sína til að geta samsamað sig henni og fært þrá sína yfir á föð-
urinn og síðar staðgengil hans. Báðar þessar sálfræðilegu hrókeringar
byggjast á því að sjálfsveran hafi þegar afsalað sér ástinni á sama kyni
þegar kemur að lausn flækjunnar. „Faðirinn og staðgengill hans geta að-
eins orðið viðfang þrár stúlkunnar á forsendum slíkrar afheitunar og
samsömun við móðurina verður óstyrk undirstaða samsömunar.“16
Odipusarflækjan leikur aðalhlutverk í sálgreiningu Freuds, hún er sú
taugaveiklun sem allar aðrar taugaveiklanir ganga út frá, hún er kjarni
þeirra, ef svo má að orði komast. I henni er hins vegar gert ráð fyrir því,
segir Judith Butler með réttu, að bann við samkynhneigðri þrá sé komið á
undan ödipusarflœkjunni. Hvemig má það vera? Afneitun eða neitun (e.
forclosure, þý. Vemeinung) er ákveðið form neitunar sem verður til í dul-
vitundinni, þar sem hún máir út og neitar að gefa því birtingarmynd sem
ekki má vera til.17 Það þýðir að hið fyrsta boðorð valdsins til sjálfsver-
unnar er ekki aðeins bannið við því að þrá foreldra af sama kym; kjami
þessa banns er þessi: Þú skalt ekki þrá! Missirinn eða hið sálfræðilega
áfall (trauma) sem á eftir fer er ekki bælt (e. repressed, þý. verdránkt) í
þeim skikúngi sem við leggjum venjulega í það orð, þ.e. að ég vil ekki við
16 „Only on the condition of this foreclosure of homosexuality can the father and
substitues for him become objects of desire, and the mother become the uneasy site
of identification.“ Judith Butler, ,Melancholy Gender/Refused Identification“, bls.
248.
1 í dulvitundinni ríkja önnur lögmál en í vitundinni. Rökmynstur eins og neitunin er
þar ekki til og kynið þar af leiðandi ekki heldur. Neitun sem fer ffam í dulvitundinni
þurrkar þannig hið afiieitaða út og neitar því um birtingarrétt.
89