Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2006, Síða 157
ORIENTALISM (2003)
um jafhvel forystumenn Palestínuaraba fyrir að slá af kröfum sínum gagnvart
ísraelum.8
Said bjó yfir fleiri hliðum. Hann átti það sameiginlegt með Adomo að hafa
gríðarmikinn áhuga á tónlist; skrifaði mikið um hana, m.a. tónlistargagnrýni um
árabil í bandaríska vikuritið The Nation.9 Hann sá jafhvel samsvörun milli tónlistar og
ffæðilegrar nálgunar; kontrapunktur var honum viss fyrirmynd að því hvernig hann
vildi segja ólíkar sögur í einu og sömu frásögninni.10 Slíka aðferð má greina í Culture
and Imperialism (1993) sem hann skrifaði sem nokkurs konar ffamhald af Orientalism.
Þar tekur hann til meðferðar þau óh'ku en þó tengdu ferli sem birtast í heims-
valdastefnunni og viðbrögðum við henni á Indlandi og víðar í Asíu."
Sú ritgerð sem hér fer á eftir ber vott um hvassa samfélagsrýni Saids en hana
samdi hann á vordögum ársins 2003, fáeinum mánuðum fyrir andlát sitt, í tdlefni af
endurúfgáfu Orientalism. Skömmu áður höfðu vestrænir herir undir forystu Banda-
ríkjamanna og Breta og með samþykki hinna „staðföstu ríkja“ í „stríðinu gegn
hryðjuverkum“ ráðist inn í Irak. I ritgerðinni setur Said hemaðinn í Irak í samhengi
við umfjöllun sína um óríentalisma aldarfjórðungi áður. En Said kemur víðar við og
tekur upp stef sem höfðu verið viðfangsefni hans í gegnum tíðina. Ahugi hans á
hlutverki og stöðu menntamannsins rímar við þann þunga sem hann gjama lagði á
að skilgreina sjálfan sig sem húmanista þó svo að margir þeirra sem litrið hefur verið
á sem sporgöngumenn hans í fræðum kennd við póstkólóníalisma hafi tengt húman-
isma því kenningakerfi sem þeir vildu spoma gegn.12
Þótt ritgerðin hafi verið skrifuð í upphafi Írakstríðsins, þegar hörmungar þess
vora á byrjunarstigi, á efhi hennar ekki síður við í dag. Skörp greining Saids á
orðræðu- og hagsmunabundnum forsendum hemaðarins í Irak sýnir mikilvægi gang-
rýninnar fræðimennsku í að draga fram og afbyggja þær aðferðir til ofbeldis, kúgun-
ar og mismununar sem innbyggðar em í vestræna menningu. Said ítrekar það sjón-
armið að hlutlæg fræðimennska getd ekki staðið utan síns sögulega og póhtíska
umhverfis og hvetur þannig menntamenn til að takast í skrifum sínum á við hinar
ótölulegu birtingarmyndir óréttlætis í veröldinni.
Ólajur Rastrick
8 Said gagnrýndi t.d. Arafat harðlega í aðdragandanum að Óslóarsamkomulaginu þar
sem ekki var gert ráð fyrir að palestínskir flóttamenn fengju að snúa aftur tdl her-
námssvæða ísraela frá því x Sex daga stríðinu.
9 Sjá t.d. bók hans Musical Elaborations, New York: Columbia University Press, 1991
og On Late Style: Music and Literature Against the Grain, New York: Pantheon Books,
2006.
10 Edward W. Said, „Culture and Imperialism“, Power, Politics and Culture, bls. 183-
207, bls. 184.
11 Edward W. Said, Culture and Imperialism, London: Chatto & Windus, 1993.
12 Sbr. t.d. Gyan Prakash, „Can the ‘Subaltem’ Ride? A Reply to O’Hanlon and Wash-
brook“, Comparative Studies in Society and History, 34,1/1992, bls. 168-184; Robert
Young, White Mythologies. Writing History and the West, London og New York: Rout-
ledge, 1990, bls. 119-140.
x55