Þjóðlíf - 01.07.1990, Page 105
Ur keanslustund við Heyrnleysingjaskólann.
BARÁTTA FYRIR
TÁKNMÁLIÐ
Framtíð Heyrnleysingjaskólans í óvissu. Gunnar Salvarsson: Ekki hœgt að
hugsa sér meiri andhverfu blöndunar en heyrnalausa og heyrendur í sama bekk.
Heyrnarlausir eiga rétt á að táknmálið verði viðurkennt sem þeirra móðurmál.
Er framhaldsskólinn lokaður heyrnarlausum? Heyrnarlausum fcekkar.
— Við sjáum fram á fækkun nemenda
hér í skólanum á næstu árum. Framtíð
skólans er í mikilli óvissu. Ráðgjafar
menntamálaráðherra hafa lagt til að
skólinn verði lagður niður í núverandi
mynd og að kennsla heyrnarlausra verði
flutt í hinn almenna grunnskóla.
Menntamálaráðherra hefur hins vegar
tekið andmæli okkar til greina og fallið
frá þeirri tillögu, sagði Gunnar Salvars-
son skólastjóri Heyrnleysingjaskólans
þegar Þjóðlíf leit þar inn nýverið til þess
að kynna sér starfsemi hans.
Nemendur við Heyrnleysingjaskól-
ann eru um fjörutíu, og starfandi
kennarar við skólann eru tuttugu og sex.
SÆVAR GUÐBJÖRNSSON
Nú fæðast að meðaltali um tvö heyrnar-
laus börn á ári. Fæðingum heyrnarlausra
barna hefur fækkað verulega eftir að bólu-
setning gegn rauðum hundum var tekin
upp hér á landi fyrir um áratug síðan og er
útlit fyrir verulega fækkun nemenda í
Heyrnleysingjaskólanum. Þrátt fyrir það
telur Gunnar að full þörf sé fyrir skólann.
— Eftir að hugmyndir um blöndun hafa
orðið sterkari á síðustu árum hefur þeirrar
tilhneigingar gætt að menn hafa haldið að
þeir gætu steypt öllum í sama mótið,
menn hafa sagt: fatlaðir annars vegar og
ófatlaðir hins vegar og það ber að stefna að
samskipan þessara hópa. Þessi hópur sem
allt í einu er afmarkaður með hugtakinu
fatlaðir, er mjög ólíkur innbyrðis. Við
segjum hiklaust að heyrnarlausir eigi
meiri samleið með heyrandi jafnöldrum
og eigi ekki að vera settir undir þennan
hatt, fatlaðir. Hins vegar er útilokað að
blanda saman heyrnarlausum og heyrandi
krökkum á grunnskólaaldri því að for-
senda þess að til verði eitthvað sem heitir
blöndun er að hóparnir tali sama mál, að
það verði einhver samskipti á milli hóp-
anna. Það er ekki nóg að krakkarnir sitji
hlið við hlið. Þegar við erum að tala um
SKOLAMAL
ÞJÓÐLÍF 105