Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Qupperneq 8

Frjáls verslun - 01.07.2013, Qupperneq 8
8 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 Fljótt á litið er Warren Buffett bæði óspennandi og varkár fjárfestir. Uppáhaldshugtak hans er „margin of safety“ eða öryggisvikmörk. Það gengur í stórum dráttum út á að hafa borð fyrir báru í kauphallarviðskipt- um. Hugtakið þykir fremur óþjált í notkun og var aldrei með í viðskiptahandbók íslensku útrásarvíkinganna. Sonur kreppunnar Maðurinn er þó ekki leiðinlegri en svo að Warr en Buffett er af mörgum talinn færasti fjárfestir sögunnar og þykir afar orðheppinn – eins og fram hefur komið í bókum um hann. Það er til urmull tilvitnana í hann. Hann er orðinn ofurríkur á að fylgja kenningunni um öryggisvikmörk nánast í blindni og það sama er að segja um marga skjólstæðinga hans. Því vilja þeir ólmir koma fé sínu í ávöxt un hjá honum þótt hann taki fjórðung af gróðanum í þókn un. Árið 2008 var Buffett orðinn ríkasti maður heims og hefur síðan verið nærri toppi listans yfir mestu auðmenn. Heldur þó fallandi í fjármálakreppu okkar daga. Buffett fæddist ekki ríkur. Í raun og veru erfði hann ekkert nena áhugann á verðbréfum frá föður sínum. Og einhverja reynslu fékk hann af viðskiptum við að aðstoða afa sinn, kaup­ manninn á horninu, innanbúðar. 72 ár í kauphöllunum Hann virðist glettilega oft hafa á réttu að standa þegar kemur að mati á hlutabréfum. Vel af sér vikið því fyrstu bréf sín keypti hann 11 ára gamall fyrir 72 árum. Hér getur ekki verið um síendurtekna heppni að ræða. Mað urinn kann á markaðinn. Þjóðsagan segir raunar að að ­ eins einu sinni hafi hann kom ist hjá tapi fyrir einskæra heppni. Þá klikkaði eitthvað í mat inu en hann slapp fyrir horn. En þetta var á glansdögum kapp ans. Allt á þetta þó eðlilegar skýringar. Auðsæld er ekki hægt að rekja til heppni. Stöku sinn um detta menn vissulega í lukkupottinn en sjaldan oftar en einu sinni, og nær aldrei þrisvar. Skýringin á auðsæld Buffetts liggur í kreppunni miklu. Hún hófst með kauphallarhruni á Wall Street þriðjudaginn 29. október 1929. Warren Edward Buffett fæddist tæpu ári síðar. Howard faðir hans var verð bréfasali, fór illa út úr krepp unni eins og fleiri en komst af og varð síðar kunn ­ ur öld ungadeildarþingmaður fyrir Nebraska. Hann var afar íhalds samur og gagnrýndi New Deal­stefnu F.D. Roosevelts forseta harðlega. En kreppan ól líka af sér hagfræðinga, sem reyndu að skilja hvað hafði brugðist í kauphöllinni. Buffett varð lærisveinn þessara manna. Efnilegur fræðimaður Hin ungi Buffett var mikill náms ­ maður. Hann var uppáhalds­ nemandi hins fræga prófessors Benjamins Grahams og lagði stund á hagrannsóknir undir hans stjórn. Báða langaði til að öðlast fræðilegan skilning á eðli kauphallarviðskipta og gamli Graham er enn virtur kenn ingasmiður á því sviði. Þar sannast að fátt er eins hagnýtt og góð kenning. Graham lýsti fyrst hugmyndum sínum um öryggisvikmörk árið 1934. Hann byggði á reynslu úr kauphallarhruninu. Buffett kom til náms hjá honum árið Warren Edward Buffett ofurfjárfestir: TexTi: Gísli KrisTjánsson. „Auðsæld er ekki hægt að rekja til heppni. Stöku sinn­ um detta menn vissu lega í lukku­ pottinn en sjaldan oftar en einu sinni, og nær aldrei þrisvar. Skýringin á auðsæld Buffetts liggur í krepp unnni miklu.“ FRUmkVöðULL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.