Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 16
16 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013
SkoðUN
þau hafa orðið
Sigurður B. Stefánsson segir að sumartíminn sé að jafnaði ekki sá besti í helstu kaup
höllum heims og á ýmsu hafi
gengið þetta sumarið.
„Hágildi náðist í maí í mörg
um kauphöllum eftir góðan
hækk unarlegg frá nóvember
2012. 10% lækkun heimsvísitölu
hluta bréfa tók við í maí og júní
og í fyrri hluta september stóð
hún um 4% neðan við hágildið
frá maí. Árangurinn á Wall Street
er nokkru betri en lega S&P 500
er þó einnig um 4% neðan við
hágildi frá maí.“
Sigurður segir að það sé eink
um á nýmarkaði og í löndum
hrávöruútflytjenda sem útkoma
sumarsins sé slök. „Shanghai
vísitalan í Kína er 13% neðan við
hágildið í febrúar og í Brasilíu er
Bovespavísitalan 15% neðan
við gildið sem var um áramót.
Sama prósentulækkun á við í
Rússlandi.
Hrávöruvísitalan er 3% neðan
við áramótagildið og þrátt fyrir
6,4% hækkun gullverðs í ágúst
sl. er verð í byrjun september
enn 15% lægra en um síðustu
áramót.“
Sigurður segir að það sem valdi
veiku gengi á hrávörumarkaði
og veikleika í kauphöllum
nýmarkaðs og hrávörulanda sé
hækkun á gengi Bandaríkjadoll
ara á árinu.
„Straumur fjármuna á alþjóðleg
um markaði beinist í átt að Wall
Street þetta árið. Tilkynning
Bens Bernanke seðlabanka
stjóra um að kaup seðlabankans
á ríkisskuldabréfum yrðu ef til
vill minnkuð fyrir lok árs leiddi
til þess að fjárfestar hafa selt
skuldabréf úr söfnum sínum og
vextir hafa hækkað hressilega.
Áhrif á hlutabréf á Wall Street
hafa ekki verið jákvæð og
hugsanlega bíður haustsins að
nýr leggur hækkunar taki á sig
mynd.“
Beinist í átt að
Wall Street
siguRðuR B. stefÁnsson
– sjóðstjóri hjá eignastýringu landsbankans
ERLEND
HLUTABRÉF
Dow Jones síðustu tólf mánuðina
Í stjórnunarfræðum er sagt að nýr stjóri hafi hundrað daga til að sanna sig á vinnu stað. Á þessum
hundr að dögum verði hann að
sýna hver ræður og að hinn nýi
stjóri sé ákveðinn, réttsýnn og
helst óskeikull.
Af einhverjum ástæðum er
mið að við hundrað daga. Þetta
er líka gert í stjórnmálunum.
Eng inn virðist vita með vissu
af hverju 100 er einmitt sá
dagafjöldi sem máli skiptir. Af
hverju ekki 10 dagar eða 1000
dagar? Fræg er bók Arthurs
Schles ingers yngri um 1000
daga stjórnartíð Kennedy
bræðra í Washington. Þeir voru
að allan tímann.
Fleiri og fleiri stjórnunarfræð
ingar efast um að þessi „hundr
aðdagakenning“ styðjist við
staðreyndir. Það er gott að efast
um viðtekin sannindi og það
gerði breski stjórnunarfræð
ingurinn Bridget Ferrands.
Hún tók ítarleg viðtöl við áttatíu
for stjóra og mannauðsstjóra
um hvenær nýr stjórnandi nái í
raun og veru tökum á starfi sínu.
Gerist það innan þessara hundr
að daga? Er nýi stjórinn ef til vill
alskapaður á hundraðasta degi?
Niðurstaðan varð að þetta væri
allt vitleysa. Miklu nær er að
miða við heilt ár eða jafnvel enn
lengri tíma. Nýr stjórnandi telur
sig oftast vera búinn að ná tök
um á starfi sínu á öðru ári. Það
er niðurstaðan af viðtölunum við
stjórana. Þeir höfðu eðlilega allir
verið nýir í starfi einu sinni og
mundu þetta.
Raunar voru svörin mjög
breyt ileg. Ef stjórinn færist upp
í topp stöðuna innan fyrirtækis
er hann oftast kominn á beinu
brautina fyrr en ef hann kemur
ókunnug ur til leiks. En enginn
stjóri kannast við að það taki
hundrað daga að ná tökum á
starfinu á toppnum.
Stjórarnir sögðu líka að þeir
hefðu verið hræddir og stress
aðir fyrstu hundrað dagana.
Þeir reyndu að halda andlitinu
en voru skjálfandi á beinunum.
Þess ir fyrstu dagar fóru einkum í
að kynna sér reksturinn og kynn
ast starfsfólkinu – og að láta
engan taka eftir óöryggi og hiki.
Engu að síður er mikilvægt
að nýta fyrstu hundrað dagana
vel. Það eru til nokkur góð ráð
fyrir nýjan stjóra að styðjast við
meðan þessir fyrstu hundrað
dagar eru að líða – ef ekki er
búið að reka hann áður en
hundr aðdagamarkinu er náð.
1. Verkefnið: Mikilvægt er
að skilja hvernig fyrirtækið er
rekið. Hvort er þörf á róttækum
breyt ingum eða áframhaldandi
þróun? Gott er að nota fyrstu
hundrað dagana til að átta sig á
þessu.
2. Ásýndin: Ekki vera of
ákveðinn. Það getur leitt til
ein angrunar frá fyrsta degi. Nýi
stjór inn má ekki heldur vera of
hikandi. Þarna þarf að finna
meðalveg.
3. Samskipti: Of náin sam
skipti við næstu undirmenn geta
skapað tortryggni. Of kuldalegt
viðmót getur valdið ein angrun.
Þarna þarf líka að finna meðal
veg.
4. Þolinmæði: Oftast veit nýi
stjórinn minna en allir aðrir í
fyrir tækinu. Hann þarf því að
hlusta á aðra og hafa þolinmæði
til að læra.
5. Snarræði: Nýr stjóri verður
stundum að grípa til skjótra
úrræða ef vandinn þolir ekki bið.
Þá er mikilvægt að hafa augun
opin og átta sig fljótt á að ekki er
allt eins og það á að vera.
6. Tveir herrar: Stjórinn þarf að
þjóna tveimur herrum; stjórninni
og starfsmönnunum. Til að þetta
takist vel er gott að tala alltaf
máli starfsmanna við stjórnina
og máli stjórnarinnar við starfs
mennina.
Hundrað-daga-dellan
gísli kRistjÁnsson
– blaðamaður
STJÓRNUNAR-
MOLI
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
53
85
1
0
/2
01
3
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
■ Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
■ Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
■ Afsláttur sem Icelandair býður er veittur af fargjöldum á því farrými sem fyrirtæki óska hverju sinni.
■ Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair
njóta þess í hagkvæmari rekstri,
betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
Vertu með okkur