Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 18

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 18
18 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 Ingibjörg Þórðardóttir segir að fasteignamarkaðurinn sé á svipuðu róli og verið hefur síðustu mánuði og hafa samning­ ar verið á bilinu 110­120 á viku upp á síðkastið. „Nýbyggingum er að fjölga og byggingarkranar farnir að sjást víða en það er ákveðin vísbending um aukna bjartsýni á fasteignamarkaði. Fasteigna­ verð hefur hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði og vísitala íbúðaverðs komin nálægt 370, sem er u.þ.b. 5% hækkun frá áramótum. Það er talsverð eftirspurn eftir minni eignum og í raun og veru er frekar að það vanti eignir en að það sé offramboð.“ Ingibjörg segir að jákvæðni ríki á fasteignamarkaðnum. „Ég sé ekki annað en að markaðurinn horfi til enn betri vegar. Verði af fyrirhuguðum lánaleiðréttingum mun það leiða til þess að margir sjá sér fært að losa um eignir og þá annaðhvort minnka við sig eða jafnvel stækka húsnæði eftir þörfum fjölskyldunnar hverju sinni.“ Vantar eignir ingiBjöRg ÞóRðaRdóttiR, – formaður félags fasteignasala FASTEIGNA- MARKAÐURINN Högni Óskarsson segir að streita og áreiti séu ekki einu orsakavaldar starfskulnunar og að starfskuln­ un komi líka upp þó að rekstur gangi vel. Hann tekur sem dæmi frumkvöðla sem hafa unnið mikið í að fyrirtækjareksturinn gangi vel. „Þeir hafa oft byrjað með lítið umleikis, orðið fastir í að vera eina driffjöðrin í vextinum, hafa þurft að ganga í öll verk og tryggja að allt gangi upp 110%. Þetta tekur á þegar fyrirtækið stækkar og verður flóknara. Vissulega eru sömu áhættu­ þættir fyrir starfskulnun hér og í stærri fyrirtækjum; mikið álag, lítill stuðningur, óljós markmiðs­ setning og agaleysi í tímastjórn­ un og framsali verkefna. Lausnirnar eru vel þekktar en þær felast m.a. í að skapa gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs, koma upp óformlegu stuðnings­ neti vina og fagmanna utan fyrirtækisins til að tryggja örvandi umræðu og svo má nefna ferska sýn og hvatningu.“ Högni segir að í vinnunni sé skilvirkt framsal lykilatriði, hár­ beitt tímastjórnun, með nógan tíma fyrir frávik auk þess sem draga þurfi úr fullkomnunaráráttu. „Auk þessa er mikilvægt að leita fleiri skýringa á mögulegri starfskulnun en þeim sem tengj­ ast vinnuferlum. Frumkvöðull­ inn getur hafa fest í hlutverki bardagamanns upphafsáranna; velgengni fer þá að grafa undan sjálfsmyndinni, efasemdir um eigið ágæti og ákvarðanir verða ríkjandi. Þetta kallar á endurskil­ greiningu á eigin hlutverki með eða án ytri aðstoðar. Stóra málið fyrir þennan áhættuhóp, þótt það hljómi eins og öfugmæli, er að skapa sér nýjar ögranir; kannski nýtt fyrirtæki eða umbreyta því gamla.“ Högni óskaRsson – geðlæknir og stjórnendaþjálfari SKIpULAGIÐ Í vINNUNNI SkoðUN Starfskulnun og endurnýjun ingRid kuHlman – framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN Ingrid Kuhlman segir það skipta máli fyrir stjórnendur að gera fundi sína árang urs ­ ríkari. „Kostnaðurinn og tíminn sem fer í að halda fundi er gríðar legur og oft engan veginn sam bærilegur við árangur fund ­ anna.“ Ingrid bendir á nokkrar leiðir til að gera fundi árangursríkari. Hún segir að í fyrsta lagi sé gott að halda fundi eins oft og mögulegt er en aldrei meira en nauðsynlegt er. „Ef viðkomandi stjórnandi er með fullnægjandi upplýsingar þarf ekki að halda fund né ef vandamálið er skýrt og einfalt. Gott er að halda fund ef mikilvægt er að allir þurfi að vera sammála um ákvörðun sem stendur til að taka.“ Í öðru lagi tengist ákvörðunin fundarmeðlimum. „Það ætti að boða aðeins þá sem þarf á að halda eða munu koma með mikilvægt framlag. Svo er líka gott að boða fundarmenn eins mikið og hægt er fyrir hvern dagskrárlið þannig að menn geti þá komið og farið eftir þörfum. Í þriðja lagi er oft áhrifaríkara að halda tvo stutta fundi frekar en einn langan vegna þess að menn eru þá oft ferskari og með meiri einbeitingu. Betri árangur næst auk þess þegar fólk er undir tímapressu.“ Ingrid segir að í fjórða lagi mætti halda oftar standandi fundi en reynslan sýnir að þeir eru oft styttri. Í fimmta lagi er nauðsynlegt að gera nákvæma tímaáætlun; taka fram hvenær fundurinn á að byrja og enda og tímasetja einstaka dagskrárliði. „Hætta er á að fundurinn dragist á lang­ inn án nákvæmrar tímaáætl­ unar eða þá að fólk lendi í tímaþröng og að sleppa þurfi dagskrárliðum.“ Það getur í sjötta lagi verið gott fyrir vinnustaði að reikna út kostnaðinn við hvern fund. Árangursríkari fundir landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Andagift · Nýjungar · Ásýnd · Bylting · Virkni · Virði · Fyrirbæri · Hátækni · Ferli Merkingarfræði · Vörumerkjastjórnun · Þróun · Nanó · Vörur · Hagnaður Stöðugleiki · Stuðningur · Markhópagreining · Hugvit · Mörkun · Netið · Kraftur · Sýn Stafrænt · Vitund · Einstaklingar · Loftslag · Útstreymi · Tengslanet · Frumkvæði Framleiðsla · Heimur · Framfarir · Viðskipti · Afþreying · Forskot · Sprotaþing Ráðgjöf · Framkvæmd · Skipti · Samherjar · Prófanir · Kennsla · Reynsla · Innblástur Árangur · Markaður · Mannauður · Örverur · Rannsóknir · Stofnun · Samvinna Starfsemi · Orðræða · Burðarás · Fræði · Skýrsla · Ísland Fólk · Kunnátta · Markmið · Forysta · Sjónarmið · Frumkvæði · Samskipti Jákvæðni · Teymi · Frumgreinar · Metnaður · Markaðsstarf · Sköpun Viðskiptavinur · Endurnýjun · Eftirlit · Iðnaður · Fjölþjóðlegt · Uppbygging Gleði · Sprotafyrirtæki · Alþjóðlegt · Yfirsýn · Hagsæld · Matvæli · Nýtt · Gæði Hnattvæðing · Þekking · Verndun · Nýting · Raunvísindi · Virkja · Íþróttir Fyrirbærafræði · Blómstra · Fræði · Sköpunargleði · Vísindi · Gagnagrunnur Fjöldi · Óvissa · Örvun · Sjóðir · Orka · Hugverk · Ferðaþjónusta · Kynning Öryggi · Upplýsingar · Könnun · Samkeppnisforskot · Framtíð · Tengsl Sérfræðiþekking · Sérstaða · Greiðslumiðlun · Lærdómur · Velferð · Nýliðun Örgjörvi · Þjónusta · Möguleikar · Grunnur · Vöxtur · Vitneskja · Gildi · Sóknarfæri Verslun · Vörumerkjagreining · Afl · Smíði · Staðsetning · Vörumerki · Verðmæti Samkeppni · Vinnuafl · Merking · Hugkvæmni · Stuðningur · Áætlun · Tekjur Rekstur · Rými · Upplifun · Gagnavinnsla · Aðlögun · Tónlist · Boðmiðlun · Tækifæri Erfðir · Miðlun · Upplýsingastreymi · Vinnsla · Hugmyndir · Framvinda · Heilbrigði Góðvild · Rafeindasmásjá · Um hvað vilt þú tala? · Tungumál · Leiðsögn Umhverfi · Bókvit · Hönnun · Verkfræði · Upplýsingaöflun · Vinna · Samstarf Samfélagsmiðlar · Þekkingargarður · Sjálfstæði · Frumkvöðlar · Verkvit · Sjálfbærni Athugun · Útgáfa · Framtak · Tækni · Nýsköpun · Brautryðjandi · Gagnaöryggi Raforka · Þekkingarsvið · Virðisauki · Markhópur · Sérfræðingur · Vöruskipti Hlutverk · Vöruþróun · Evrópa · Áhugi · Breidd · Framsýni · Hæfileikar · Atvinna Regluverk · Skapandi · Tölvur · Væntingar · Fræðimennska · Spennandi · Praktík Norrænt · Handverk · Vindar · Haf · Ferill · Verkefni · Virkjun · Athafnasemi Tónmennt · Hagsýni · Framtíð · Upplýsingabylting · Forystuhlutverk · Fagmennska Landamæri · Rannsóknaráætlun · Kerfi · Fræðsla · Menntun · Laugardaginn 9. nóvember stendur Landsbankinn fyrir nýstárlegum nýsköpunarviðburði á Háskólatorgi í samstarfi við Háskóla Íslands og MassTLC. Þar er hægt að setjast niður með um 100 stjórnendum og sérfræðingum og fá ráðgjöf varðandi uppbyggingu og vöxt fyrirtækja. Fáðu nánari upplýsingar og skráðu þig á landsbankinn.is/unconference. Reykjavík 9. nóvember 2013 #IIU2013 Iceland Innovation UnConference I I U
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.